Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020 L æknirinn Kristín Sigurðardóttir tekur brosandi á móti blaðamanni en hún býr í bjartri og fallegri íbúð með útsýni yfir bæði borgina og hafið. „Þú ert fyrsti gesturinn hér inn síðan kórónuveiran bankaði upp á,“ segir hún. Við setjumst í stofuna með kaffi í bollum, hlýðum Víði og pössum að hafa fulla tvo metra á milli okkar. Tíminn flýgur því það er af nógu að taka og sögurnar margar og áhugaverðar. Kristín er slysa- og bráðalæknir og hefur búið bæði í London og Newcastle, þar sem hún var í sérnámi, og á Kanaríeyjum þar sem hún starfaði sem sjávarútvegslæknir. Þar lenti hún í ýmsum ævintýrum, meðal annars að bjarga lífi stórslasaðs sjómanns. Við komuna heim til Íslands þurfti Kristín að hætta að starfa sem sjúkrahúslæknir vegna veikinda en hún er ein af þeim sem hafa veikst vegna rakaskemmda í húsnæði Landspítalans. Hún hefur fetað nýjar leiðir í lífinu og finnur sig vel í því að fræða fólk um streitu og seiglu. Hún viðurkennir að lífins vegur hefur ekki allt- af verið beinn og breiður, eða eins og hún seg- ir: „Lífið er svo hlykkjótt.“ Heilluð eftir kviðarholsaðgerð Kristín er dóttir Guðnýjar Kristjánsdóttur frumutæknis og leiðsögumanns og Sigurðar Björnssonar krabbameinslæknis. Fjölskyldan bjó í Reykjavík, og um skeið á Blönduósi, fyrstu æviár Kristínar en hélt svo vestur um haf til Bandaríkjanna þar sem faðir hennar var í sérnámi. Kristín var orðin unglingur þegar þau aftur fluttu heim og segist hún þá varla hafa getað skrifað íslensku. „Það var dálítið erfitt því ég þurfti að byrja á að lesa Litlu gulu hænuna og Gagn og gaman. Íslenskan mín var svo léleg,“ segir Kristín og segist hafa verið harðákveðin í að fara aftur til Bandaríkjanna að loknu menntaskólanámi, enda hálfgerður Ameríkani eftir þessi átta ár. „En þegar ég var í MR breyttist ég í svaka- legan Íslending. Planið hafði verið að fara út í nám í sjónvarpsþáttagerð en sumarið eftir út- skrift gerði ég mér grein fyrir að ég yrði að gera eitthvað annað ef ég ætlaði að vera áfram á Íslandi. Ég ætlaði aldrei í læknisfræði en pabbi leyfði mér að koma upp á spítala að horfa á tvær aðgerðir og þá varð ég alveg hug- fangin. Önnur aðgerðin var aðgerð á tá en hin var stór kviðarholsaðgerð þar sem garnirnar voru nánast úti. Mér fannst ótrúlegt hvernig hægt væri að hjálpa fólki og þetta heillaði mig alveg upp úr skónum,“ segir Kristín. Leiðin lá því beint í læknadeildina um haust- ið. „Eftir að ég fór inn á spítalana fann ég að þarna lá mín ástríða. Í læknanáminu og sem unglæknir leysti ég af víða um land. Ég var þá orðin svo mikill Íslendingur og fannst þetta meiriháttar tækifæri á að ferðast og kynnast landinu. Ég var á Akureyri, Vestfjörðum og Stykkishólmi,“ segir hún en á þessum árum eignaðist hún fyrsta son sinn með manni sínum Geir Þráinssyni, sem hún segir blöndu af sjó- manni og viðskiptafræðingi. Fattaði ekki að vera stressuð Hjónin fluttu til London með drenginn lítinn en Kristín hafði komist inn í nám í slysa- og bráðalækningum. „Ég valdi stað sem var ná- lægt vinum mínum og svo leit þetta út fyrir að vera góður spítali. Ég sendi bara þessa einu umsókn og var svo fengin út í viðtal. Þá kom í ljós að sex hundruð manns höfðu sótt um stöð- una,“ segir Kristín og brosir. „Mér finnst það svo heillandi með Ísland að við föttum ekki hvað við erum raunverulega lítil þjóð – og það bara hvarflar varla að okkur að við fáum ekki tækifæri. En okkur bjóðast líka fleiri tækifæri en mörgum öðrum. Flestir sendu út tugi umsókna en það er dæmigert fyrir okkur Íslendinga að senda bara eina. Sá sem tók viðtalið var yfir slysa- og bráðalækn- ingum í Bretlandi og sagðist hafa ákveðið að líta á umsóknina því hann tók eftir íslensku eftirnafninu,“ segir hún og útskýrir að það sé kostur að vera Íslendingur frá litlu landi; það þykir áhugavert. „Og ég fékk stöðuna, kannski líka af því ég fattaði ekki að vera stressuð í viðtalinu, enda vissi ég ekki þá að ég væri ein af sex hundruð!“ Vinnan þarna opnaði enn fleiri dyr og Krist- ín endaði á að vinna á mjög virtum spítala, King’s College Hospital, og vann hún þar á bráðadeild. Margir héldu að erfiðust væru vandamál vegna ofbeldis og eiturlyfja en Kristín segir annað hafa slegið sig meira. „Það sem sló mig frekar í Bretlandi var hversu mikinn einmanaleika sumir bjuggu við. Sums staðar var líka mikið atvinnuleysi og ég sá jafnvel fólk sem var af þriðju kynslóð at- vinnuleysingja, skorti algjörlega trú á að það gæti mögulega unnið og hreinlega kunni það ekki,“ segir hún. „Þótt það sé margt frábært í breska spítala- kerfinu sló það mig líka að sjá fólk með sjúk- dóma sem voru mun lengra gengnir en eðlilegt var og því komið með mikla fylgikvilla vegna þess. Þetta fólk hefði átt að verið komið til sér- fræðinga eða á spítalann löngu fyrr, áður en afleiðingar sjúkdómanna voru orðnar svona slæmar. Þá sá ég virkilega hvað við Íslend- ingar búum við góða heilbrigðisþjónustu.“ Steig út úr lífinu Um þremur árum eftir að þau fluttu til Eng- lands varð Kristín ólétt, en hún var þá að vinna á slysa- og bráðadeild í Newcastle. „Ég skellti mér í sónar einn daginn og þá kom í ljós að þeir voru tveir. Við íslenskar kon- ur látum nú ekki meðgöngu hafa áhrif á okkur í námi eða vinnu og maður vinnur eins lengi eins og maður stendur, eða þannig var gamli hugsunarhátturinn, sem er ekki réttur. Ég man að í fyrri meðgöngu var ég svo slæm af grindargliðnun að ég þurfti að setjast upp í rúm til sjúklinganna af því ég gat ekki staðið, sem er auðvitað ekki í lagi,“ rifjar hún upp. „En þarna var ég að vinna á fullu og ég man að síðasta vaktin sem ég tók í Bretlandi, sem ég vissi svo sem ekki þá að yrði síðasti dag- urinn, var mjög þung. Við lentum í endur- lífgun, og það var bílslys og mótorhjólaslys þennan dag, auk annars. Ég var send í það léttasta; að hlúa að manni sem hafði misst framan af handlegg. Hann var sá minnst slas- aði. Og það var enginn hjúkrunarfræðingur til að aðstoða mig. Ég hafði verið hlaupandi um allan daginn og ég man ég hugsaði: ef ég fer í fyrirburafæðingu núna, þá er hér enginn til að sinna mér. Ég var að fá samdrætti en þarna var ég komin um 22 vikur. Ég hugsaði að þetta væri alls ekki í lagi. Ég fór svo beint eftir vakt- ina í sónar og þá var mér sagt að ég ætti að hvíla mig í viku,“ segir hún. „Það sem gerðist á þessari viku var að dreng- irnir tóku svakalegan vaxtarkipp; þeir höfðu ver- ið langt undir eðlilegri stærð en þarna náðu þeir að ná upp í nýja vaxtarkúrfu. Ég man hvað ég fékk mikinn móral. Á fyrstu meðgöngunni hafði ég verið á neyðarbílnum og þyrlunni, og hugsaði aldrei út í það. Svo eftir vikuna var mér ráðlagt að taka það rólega. Einn vinur minn sem var læknir í Noregi sagði mér að vökudeildir væru fullar af fyrirburum aðstoðarlækna. Svo var það yfirlæknirinn sem tók mig tali og sagði mér að hann vildi ekki fá mig til baka fyrr en ég væri búin að eignast tvo heilbrigða drengi,“ segir Kristín sem segist þá hafa þurft að taka ákvörð- un um hvort hún vildi vera áfram á Englandi eða fara heim til Íslands til að fæða, en vegna þess að hún gekk með tvíbura hafði hún aðeins viku til stefnu því eftir það mátti hún ekki fljúga. „Þannig að ég gekk út af þessari hasarvakt og stuttu síðar gekk ég út úr húsinu mínu með Sigurð Þráin son minn, þá fimm ára gamlan. Þarna steig ég bara fyrirvaralaust út úr lífi mínu í Bretlandi. Þetta var skrítinn snúningur. En þegar ég hugsa til baka hefur líf mitt oft verið svona,“ segir Kristín og segist ekki hafa snúið aftur til Bretlands. Hún gekk fulla með- göngu, miðað við tvíbura, og drengirnir Stefán Árni og Tryggvi Snær fæddust litlir en heil- brigðir í lok ársins 2000. Sjö ára útlegð Eftir fimm ár á Íslandi stakk Geir upp á því að þau flyttu til Kanaríeyja, en honum hafði verið boðið spennandi starf þar ytra. „Ég var þá svo innilega tilbúin til að gefa drengjunum færi á að kynnast öðrum menning- arheimi og öðrum gildum. Þegar ég hafði komið heim frá Bretlandi brá mér dálítið að sjá hvern- ig Ísland hafði breyst og ég man ég spurði vini mína hvað hefði orðið um litla, sæta, saklausa Ísland. Þá hafði ég verið fimm ár í burtu frá slysadeildinni hér heima og ég sá allt í einu miklu meira ofbeldi og meiri eiturlyfjaneyslu. Mér fannst svo mikill hraði og ofgnótt í þjóð- félaginu þarna í góðærinu og erfitt að ala drengina upp við þetta gildismat, þannig að ég var mjög tilbúin að fara út í nýtt ævintýri, læra nýtt tungumál og gefa strákunum tækifæri á að búa erlendis. Upphaflega ætluðum við að vera eitt ár og sjá svo til en árin urðu sjö.“ Fjölskyldan settist að í spænsku borginni Las Palmas á Gran Canaría-eyju. „Ég byrjaði á að koma strákunum fyrir og fara í spænskunám,“ segir Kristín og nefnir að dvölin hafi verið mikið ævintýri. Drengirnir þrír fundu sig vel í fótbolta sem leiddi þau á mót úti um allt; bæði á mörgum eyjum Kanarí- eyja og uppi á meginlandi Spánar, m.a. í La Macia Barcelona-fótboltaþorpinu. Fljótlega fóru þó spennandi verkefni að banka upp á. „Þarna voru íslenskar útgerðir sem stund- uðu veiðar undan ströndum Afríku og þær fóru að leita til mín, en stundum urðu slys eða veikindi um borð í skipunum, eða gæta þurfti að þeim sem lögðust inn á spítala í Las Palmas. Þannig að ég hellti mér þarna út í sjávar- útvegslæknisfræði. Ég tók að mér ýmis verk- efni og átti þá mörg ævintýrin. Ég var send til Máritaníu til að taka út heilbrigðiskerfi þar, en athuga þurfti hversu vel væri hægt að sinna þar veikum eða slösuðum sjómönnum. Það þurfti að meta hvaða staðir kæmu best til greina til að taka á móti sjúklingum, og meta hvenær þyrfti að kalla út her, sjúkraflug eða þyrlu,“ segir Kristín og nefnir að þá hafi komið sér vel sú reynsla sem hún hafði eftir að hafa unnið sem þyrlulæknir á Íslandi, ein fárra kvenna sem því starfi hafa gegnt. Einnig hafði Kristín á árum áður kennt í Stýrimannaskól- anum og í Slysavarnaskóla sjómanna. „Ég þekkti því vel þessa menningu. Þannig að þegar skipin komu í land var ég fengin til að fara um borð og græja skipin. Þetta var of- boðslega skemmtilegt starf. Það var áberandi hvað íslensku útgerðirnar hugsuðu vel um ör- yggi og heilsu áhafnarmeðlima og ánægjulegt að taka þátt í því.“ Franskan bjargaði mannslífi Eitt sinn var Kristín send til Marokkó þar sem hún átti að taka á móti slösuðum sjómanni og fylgja honum í sjúkraflugi til Las Palmas þar sem læknisþjónustan var mun betri en vænta mætti þarna í Marokkó. Það átti eftir að verða minnisstæð ferð. „Ég var á leiðinni í skólann með strákana þegar ég fékk símtal. Skipið var úti á miðunum með meðvitundarlausan sjómann sem hafði lent í slysi. Þetta hljómaði mjög illa og jafnvel það illa að viðkomandi ætti varla möguleika á að lifa. Mér fannst meiriháttar hvað útgerðin var tilbúin til að gera allt til þess að bjarga þessum manni og þegar svona stóð á var ekk- ert til sparað,“ segir hún. „Þessi sjómaður var með mikla höfuð- og andlitsáverka og innvortis meiðsl meðal ann- ars. Mér var sagt að fara af stað með flugvél sem beið út á velli. Ég gat komið við á lækna- stofu og kippt með einhverju smávegis en ann- ars var ég ekki með neitt í höndunum. Síðan átti að redda hjúkrunarfræðingi og læknabún- aði, en við flugum af stað til Marokkó og það „Lífið er svo hlykkjótt“ Kristín Sigurðardóttir hefur lifað spennandi og skemmtilegu lífi sem slysa- og bráðalæknir en læknisfræðin heillaði hana upp úr skónum þegar hún fékk að fylgjast með stórri aðgerð sum- arið eftir menntaskóla. Á lífsins leið hefur hún búið og starfað í Bretlandi og á Kanaríeyjum og lent þar í ýmsum ævintýrum. Í dag fræðir hún fólk um streitu og seiglu en hana skortir sjálfa ekki seigluna. Kristín þurfti að hætta að vinna sem sjúkrahúslæknir vegna veikinda af völdum rakaskemmda en horfir björtum augum til framtíðar og er full af nýjum hugmyndum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Það komu alltaf fleiri og fleiriog þarna voru mikil öskur oglæti á arabísku. Ég neitaði að látaþau fá þennan meðvitundarlausa mann. Að lokum náðu þeir í lækni sem talaði frönsku. Þá allt í einu braust fram franska.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.