Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Side 17
andi haldið forsætisráðuneytinu í þingkosningum eft- ir fall frú Thatcher. Eftir því sem leið á tíð hans minnkaði traust á honum innan flokksins og þing- meirihlutinn skrapp saman við hverjar aukakosn- ingar. Tony Blair vann því glæsilegar kosningar 1997. Hann fékk 43% atkvæðanna og var einstaklega heppinn að auki í skiptingu atkvæða á flokka í ein- stökum kjördæmum svo hann kom með 418 þing- menn til neðrideildar á móti aðeins 148 þingmönnum Íhaldsflokks Major. Blair með 43% atkvæða var með 63% þingmannanna. Honum voru því allir vegir fær- ir. Til samanburðar fékk Boris Johnson 43,6% at- kvæða í kosningunum í desember sl. og 365 þing- menn, eða 53 þingmönnum færri en Blair, og þótti það þó mikill sigur. Blair vann þrennar kosningar í röð en það hefur enginn annar leiðtogi flokks hans gert. Ólík gifta Gordon Brown leiddi flokkinn í einum kosningum og tapaði þeim. Brown verður seint boðið sæti í félagi Íslandsvina og framganga hans í kjölfar bankahrunsins á Vestur- löndum var níðingsleg gagnvart Íslandi. En honum var að öðru leyti ekki alls varnað. Blair varð ungur forsætisráðherra og 53ja ára vildi hann komast lengra og hann horfði til Evrópu. Hann vildi verða eins konar forseti eða búrókratískur leið- togi hennar. En til þess að eiga von í þann feita bita varð hann að kasta pundinu fyrir evru og gera Eng- landsbanka að ómerkilegu útibúi sem sendi Seðla- bankanum í Frankfurt langar skýrslur sem lang- menntaðir sérfræðingar væru hafðir í að lesa alls ekki og hafa þann persónulega styrk að láta aldrei nokkru sinni eins og þeir hefðu gert það. Gordon Brown með sína sterku stöðu sem fjár- málaráðherra og krónprins Verkamannaflokksins náði að koma í veg fyrir að Blair tækist að farga pundinu fyrir eigin frama. Tony Blair varð því að setja framavonir í valdakerfi veraldar aftur fyrir sig og taka til óspilltra málanna við að „safna auði, með augun rauð, “eins og það var orðað af langalangafa á Grund í Eyjafirði. Á því sviði hefur Blair vegnað mjög vel og mun enn vera að moka. Corbyn sameinar B-in En þótt grunnt hafi verið á því góða á milli Blair og Brown seinustu árin vildu þeir báðir koma í veg fyrir að Bretar færu úr ESB. Þeir grunuðu báðir Jeremy Corbyn um græsku. Hann hafði oftar en nokkur þingmaður Verkamannaflokksins greitt atkvæði í þinginu gegn forsætisráðherra sínum og fjármála- ráðherra hans. En það gerði þeim ekki mikið til, svo yfirþyrmandi var meirihlutinn í þinginu. En það sem meira var að Corbyn hafði lítt dulið fjandskap sinn og fyrirlitningu í garð Brusselvalds- ins. Sem flokksforingi gætti hann sín betur. En hans raunverulega skoðun skein þó iðulega í gegn. Þegar hann á lokaspretti formennsku sinnar þurfti að eiga við Boris Johnson bjó hann til, að mestu þvingaður þó, millileið í útgöngumálum. Nýtt þjóðaratkvæði væri leiðin, en hann vildi þó ekki gefa upp hvaða út- komu hann myndi mæla með við þá kosningu! Þessari leið knúði hann flokkinn til að fylgja, en hún var æði ósannfærandi og fann hvergi hald og var uppskrift að ruglanda meðal kjósenda flokksins. Þetta útspil, með öðru hiki, gaf fólki sem alla sína tíð (og í marga ætt- liði) hafði kosið til vinstri nú afsökun fyrir því að kú- venda í þessum kosningum og kjósa Íhaldsflokk Bor- isar. Við það fuku til hans kjördæmi sem höfðu verið trú Verkamannaflokknum frá stríðslokum, fyrir 75 árum og jafnvel lengur! Baráttan við að fá vilja kjós- enda efndan hefur verið mjög á brekkuna. En hefði Gordon Brown ekki tekist að koma í veg fyrir upp- töku Breta á evru hefði hún sennilega verið óvinn- anleg! Kannski var Gordon aðallega að setja grjót í götu Blair en það kom svo sannarlega að góðu gagni. Þrálátari veira en hin Blair og Brown sáu að barátta þeirra fyrir því að Bretar færu hvergi úr ESB væri nú sennilega komin á endapunkt og beittu sér í framhaldinu fyrir því að þar með lyki tíð Jeremy Corbyn. Það var svo sem nokkuð sjálfgefið en þeir vildu báðir tryggja að í stól formanns kæmi ekki aftur maður af sama sauðahúsi. Óhjákvæmilegt væri að fá nú til forystu mann sem eyrnamerkja mætti sem hófsaman vinstrimann og sækja undir því flaggi inn á miðjuna á ný. Jeremy Corbyn er ekki persónulega ógeðfelldur stjórnmálamaður. En hann hafði, rétt eins og Banda- ríkjamaðurinn Bernie Sanders, sem er um margt áhugaverður, ungur fengið í sig illkynja pólitíska veiru sem aldrei fór og ekkert beit á. Eini kostur pólitísku veirunnar í núverandi mynd er að hún er, öfugt við þá krýndu, ekki lengur smit- andi, þótt sjúklingurinn hafi ekki læknast af áratuga gömlu smiti. Það sem einna best bítur á hana er reynslan og sagan, og þá bæði ný og gömul. Það þarf mjög eitrað afbrigði af veiru og kannski stökkbreytt til að lifa það af að standa frammi fyrir sögunni og sjá hversu illa fer fyrir þeim þjóðum sem hún leggst á eða nær of mikilli útbreiðslu hjá um sinn. Öfugt við kórónutýpuna leggst veiran, sem náði þeim Corbyn og Sanders ungum, helst á nytsama sakleysingja, og leikur þá marga grátt. Þeir eru að auki ónæmir fyrir bólusetningu. Morgunblaðið/Ásdís 3.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.