Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Síða 19
Heimilið stækkar mjög mikiðef útisvæðið er þannighannað að það er eins og
viðbót við stofuna. Til þess að þeim
tilgangi sé náð þurfa útihúsgögnin að
henta okkar lífsstíl og vera þægileg.
Það þarf að fara vel um okkur og við
verðum að geta látið eins og við séum
í útlöndum þótt við séum heima.
Ef þú elskar að liggja og lesa
skaltu koma þér upp sólbekk. Það er
hægt að fá ódýra sólbekki á mörgum
stöðum í bænum og ekki verra ef
hægt er að brjóta þá saman þannig
að lítið fari fyrir þeim í vetrar-
geymslu.
Toppurinn á tilverunni er að vera
með þægilegan útisófa. Á dögunum
lenti HAVSTEN-línan í IKEA en
hún inniheldur útisófa sem hægt er
að púsla saman að vild. Hægt er að
breyta honum úr hægindastól í
tveggja sæta sófa, þriggja sæta eða
hreinlega tíu sæta sófa ef þú hefur
pláss í það.
Sófinn er afar frábrugðinn öðrum
þægilegum útisófum sem oft eru
stórir og þungir en hann er gerður úr
léttu duftlökkuðu stáli og er með
mjúkum og þægilegum púðum sem
þola bæði sterka sólargeisla og létt
regn.
„Ég vildi gera fjölhæfan sófa sem
auðvelt er að færa til og útfæra á
ýmsa vegu og ég vildi einnig að hann
passaði í flatar pakkningar svo auð-
velt væri að taka hann með sér heim
úr versluninni,“ segir Andreas Fred-
rikson, hönnuður HAVSTEN, sem
færði honum hin virtu Red Dot-
hönnunarverðlaun.
Með HAVSTEN-sófann á þínu úti-
svæði getur þú leikið þér að vild enda
er hann hlutlaus grunnur sem þú
getur bætt við og fært til eftir þörf-
um. Svo geturðu bætt við mottu,
flottri lýsingu eða útiborði og þá ertu
komin/n með nýjan heim.
Ef þú ert þessi týpa sem vill hafa
allt gegnheilt þá er BOND-
HOLMEN-línan frá IKEA mögu-
lega eitthvað fyrir þig. Stólarnir eru
hannaðir til að veita góðan stuðning
og borðin eru nógu stór fyrir alla fjöl-
skylduna. Viðurinn er vandaður og
endingargóður og þola þessi hús-
gögn margt.
Þegar þú ert búin/n að ákveða
hvaða stíl þú vilt hafa á þínu útisvæði
er sniðugt að koma sér upp fylgi-
hlutum sem búa til stemningu.
Saumaðu púða til að hafa í úti-
húsgögnunum, ræktaðu sumarblóm
á svölunum (eða keyptu gerviblóm)
og keyptu sólhlíf ef þú vilt ekki verða
eins og gamalt útjaskað Chester-
field-sófasett í framan eftir alla úti-
veruna.
Fallegir púðar á bekk gera það að verk-
um að útisvæðið verður ekki dauft og
goslaust. Þú getur keypt falleg efni og
saumað púða eða keypt þá tilbúna.
Færðu stof-
una út í garð
Á tímum sem þessum þar sem við sjáum fram á
að verja sumrinu heima hjá okkur er ekki úr vegi
að velta því fyrir sér hvað við getum gert til þess
að heimilið verði vistlegra og þá sérstaklega
útisvæðið heima hjá okkur. Hér eru nokkrar
góðar hugmyndir ef þú vilt gera útisvæðið
nokkrum prósentum meira heillandi.
Marta María mm@mbl.is
Hægt er að búa til
magnaða stemningu með
HAVSTEN-sófanum.
3.5. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Þú finnur bæklinginn
husgagnahollin.is
AFSLÁTTUR
20%ALLIR
SÓFAR
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafirði
Skeiði 1
SÓFA
DAGAR
RIMINI
2,5 og 3ja sæta,
meira á bls. 2 og 3
www.husgagnahollin.isS
ENDUM FR
ÍT
T
V
E F
V E R S L U N AFSLÁTTUR
20%ALLIRSÓFAR
SÓFADAGAR
www.husgagnahollin.is
F
R
Í HEIMSEND
IN
G
V E
F V E R S L U N