Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.5. 2020
LESBÓK
HJÚKK Eflaust hafa einhverjir átt erfiða viku og verið
litlir í sér eftir að haft var eftir látúnsbarkanum og Ís-
landsvininum David Coverdale á þessum vettvangi fyrir
viku að hann gæti hugsað sér að leggja hljóðnemann á
hilluna á næsta ári. Öll spjót stóðu raunar á kappanum
eftir þau ummæli og í samtali við hlaðvarpið Appetite
for Distortion í vikunni var hann beðinn að útskýra orð
sín betur. Þá kom í ljós að hann hafði aðeins svarað
spurningu í hálfkæringi og ætlaði að vera fyndinn. Hið
rétta er að Coverdale er hvergi af baki dottinn og von-
ast til að standa á sviði með sveit sinni, Whitesnake, vel
fram yfir sjötugt en kappinn nær einmitt þeim aldri á
næsta ári. „Það jafnast ekkert á við að standa fyrir
framan þúsundir manna og heyra þá syngja með.“
Alls ekki að hætta
Spéfuglinn David
Coverdale.
AFP
SJÓNVARP Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur
hafið gerð tólf nýrra þátta í hinni vinsælu
Talking Heads-einleikjaseríu eftir Alan Bennett
sem sló í gegn bæði 1988 og 1998. Annars veg-
ar er um að ræða endurgerð á gömlum þáttum
og hins vegar glænýja þætti sem Bennett skrif-
aði á síðasta ári. Einleikirnir eru að mestu
skrifaðir fyrir konur og munu sumar af vinsæl-
ustu sjónvarpsleikkonum Breta leika í þeim,
þeirra á meðal Jodie Comer, Sarah Lancashire,
Lesley Manville og Kristin Scott Thomas.
Verkefninu hefur verið vel tekið enda ekki
sjálfgefið að hrinda slíku af stokkunum
á óvissutímum.
Jodie Comer
er í Talking
Heads-
seríunni.
AFP
Ulrich situr ekki auðum höndum.
Ágæt lexía
FARALDUR Gömlu þrassbrýnin í
Metallica eru með afkastamestu
tónleikaböndum okkar tíma og
skipuleggja sig að jafnaði langt
fram í tímann. Lars Ulrich trommu-
leikari ræddi þetta í samtali við
streymisþáttinn Salesforce í Banda-
ríkjunum á dögunum og þá óvenju-
legu stöðu sem komin er upp vegna
heimsfaraldursins. „Það er ágæt
lexía fyrir fólk eins og okkur sem
erum vön að hafa örugga stjórn á
minnstu smáatriðum í okkar lífi að
vera allt í einu í þeirri stöðu að hafa
ekki hugmynd um hvernig restin af
2020 á eftir að verða,“ sagði Ulrich.
Einnig kom fram að hann væri í
góðu sambandi við félaga sína í
bandinu, enda þótt þeir séu hver í
sínu ríkinu, og aldrei að vita nema
þeir fari að huga að efni fyrir nýja
plötu, úr því öllum tónleikum hefur
verið frestað um óákveðinn tíma.
Félagarnir Billy Gibbons, DustyHill og Frank Beard náðuþeim merka áfanga á síðasta
ári að hafa starfað saman í banda-
rísku blúsrokksveitinni ZZ Top í
hálfa öld. Það gerir þá að því bandi í
rokksögunni sem lengst hefur starf-
að saman í óbreyttri mynd, ef heim-
ildir svíkja ekki. Alltént ef miðað er
við bönd sem náð hafa frægð og
frama á alþjóðavísu. Maður veit aldr-
ei hvað leynist í bílskúrum og kjöll-
urum þessa heims. Jafnvel kartöflu-
geymslum.
Aðeins Gibbons frá upphafi
Ef við miðum við fyrstu útgefna
plötu þá er ZZ Top líka það rokk-
band sem lengst hefur starfað með
upprunalegri liðskipan. Fyrsta plata
þeirra félaga, sem heitir því frum-
lega nafni ZZ Top’s First Album,
kom út á því ágæta ári 1971.
Ef við miðum hins vegar við allra
fyrstu útgáfu bands þá dæmist ZZ
Top úr leik en aðeins Gibbons kom
að stofnun sveitarinnar árið 1969,
ásamt bassaleikaranum og organist-
anum Lanier Greig og trymblinum
Dan Mitchell. Þannig skipuð gaf ZZ
Top út sína fyrstu smáskífu, Salt
Lick, sama ár. Eftir það hættu Greig
og Mitchell og Billy Ethridge og
Frank Beard komu í þeirra stað.
Ethridge vildi ekki skuldbinda sig og
það opnaði dyr fyrir Dusty Hill.
ZZ Top. Menn verða
ekkert mikið svalari
en þetta. Frank Beard
er þessi með mott-
una. Dagsatt.
ZZ Toppar
allt í langlífi
Ekkert rokkband hefur starfað lengur saman í
óbreyttri mynd en ZZ Top, 51 ár, og eru hvergi
nærri hættir. Liðskipan U2 hefur ekki breyst í 42
ár og allir á þeim bæ komu að stofnun bandsins.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
U2 lagði heiminn að fótum sér á níunda áratugnum og er enn í fullu fjöri.
AFP
Steven Tyler og Joe Perry úr Aerosmith í essinu sínu á Grammy-hátíðinni í janúar sl.
AFP
Höfuðin kveðja sér hljóðs á ný