Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Side 4

Vísbending - 25.12.2020, Side 4
4 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 Traustur fyrirtækjarekstur og öflug nýsköpun kallar á samstarfsaðila sem skilur þarfirnar. Arion banki býður fyrirtækjum af öllum stærðum og í öllum geirum alhliða þjónustu með fagmennsku, innsæi og þekkingu að leiðarljósi. Hafðu samband á fyrirtaeki@arionbanki.is, við þjónustuver í síma 444 7000 eða í netspjalli á arionbanki.is. Búum í haginn fyrir atvinnulíf framtíðarinnar arionbanki.is EFNAHAGSÁRIÐ 2020 - STIKLAÐ Á STÓRU Á SÉRSTÆÐU ÁRI 28. FEBRÚAR 2020 Fyrsta tilvik COVID-19 greint á Íslandi. Daginn áður hafði fyrsti blaða- mannafundur sótt- varnalæknis, landlæknis og yfirlögregluþjóns hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra farið fram og honum streymt beint í sumum fjölmiðlum landsins. 13. MARS 2020 Samkomur takmarkaðar á Íslandi í fyrsta sinn vegna faraldursins. Þær takmarkanir voru svo hertar 24. mars 21. MARS 2020 Fyrsti aðgerðapakki stjórn- valda kynntur. Hann var sagður 230 milljarða króna virði og Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efna- hagsráðherra, kallaði hann „stærstu efnahagsaðgerðir sögunnar“. Skömmu áður var búið að samþykkja lög um hlutabætur en þær voru þó kostn- aðarmetnar inn í þennan pakka. Á meðal annarra stórra aðgerða voru að Seðlabankanum var veitt heimild til að veita ábyrgðir fyrir lánum til fyrirtækja upp á tugi milljarða króna, frestun á greiðslum opinberra gjalda var heimilum, gisináttaskattur var afnumin, bankaskattur lækkaður, ferðagjöf kynnt til leiks, endur- greiðsla á virðisaukaskatti hækkuð og samþykkt var að greiða út barnabótaauka. Þá var fólki leyft að nota séreignarsparnað sinn til að komast í gegnum þessa erfiðu tíma. Pakkinn hefur enn sem komið er kostað langt undir 230 milljörðum króna. FEBRÚAR MARS Blaðamannafundir eru þær samkomur sem mest hefur farið fyrir á árinu, þeir hafa verið vinsælasta sjónvarpsefni ársins� Af mörgu er að taka í yfirferð á helstu aðgerðum en hér er stiklað á stóru yfir þær aðgerðir sem hafa haft mest áhrif á efnahagslífið hér á landi� 12. MARS 2020 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, setur á ferðabann milli Evrópu og Bandaríkjanna. Í kjölfarið lokuðu mörg ríki innan Schengen-samstarfsins sínum landamærum, sem áður hafði þótt óhugsandi. Evrópusambandið tilkynnti svo, þegar leið á marsmánuð, um ferða- bann innan Schengen - ríkjanna.

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.