Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 6

Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 6
PB V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 Gleðilega hátíð J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • j l. is • S ÍA landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER 29. SEPTEMBER 2020 Fjórði aðgerðapakkinn kynntur: Samtök atvinnulífsins hótuðu að segja upp Lífs- kjarasamningunum. Verkalýðshreyfingin sagði einboðið að forsendur samnings- ins stæðust og forysta hennar sagðist ekki trúa því að samstaða væri um það á meðal atvinnurekenda að leggja í stríð á vinnumarkaði. Þessi staða endaði á því að ríkisstjórnin sá sig knúna til að höggva á hnútinn og bjóða fram nýjan pakka. Hann var metinn á 25 milljarða króna og innihélt átta aðgerðir. Þær voru helst þær að tryggingagjald var lækkað tímabundið, tekjufallsstyrkir voru kynntir til leiks og framlög til nýsköpunarmála voru aukin um fimm milljarða króna. 18. SEPTEMBER 2020 Skemmtistöðum og krám á höfuðborgar- svæðinu var lokað tímabundið eftir að upp komst um stór hópsmit sem tengd- ust skemmtanalífinu. Smitin marka upp- haf þriðju og stærstu bylgju faraldursins, en skömmu seinna lét ríkisstjórnin loka líkamsræktarstöðvum og sundlaugum að tillögum sóttvarnarlæknis eftir því sem fleiri greindust með veiruna. 1. OKTÓBER 2020 Fjárlög kynnt. Halli á rekstri ríkissjóðs í ár er áætl- aður 269,2 milljarðar króna. Upphaflega gerðu fjár- lögin ráð fyrir að halli næsta árs yrði 264,2 milljarðar króna, en sú upphæð hefur nú hækkað upp í 320 milljarða króna. Til samanburðar má nefna að að hall inn á rekstri rík is sjóðs árið 2008, þegar banka- hrunið varð, nam 194 millj örðum króna. 3. DESEMBER 2020 Heilbrigðisráðuneytið segist stefna að því að hjarðónæmi myndist gegn veirunni á fyrsta fjórðungi næsta árs og að samið yrði um kaup á nægilega mörgum skömmtum til að bólusetja 75 prósent þjóðarinnar á næstu dögum. Viku seinna tilkynnti ráðuneytið að fyrstu skammtarnir berist til landsins um áramót. 20. NÓVEMBER 2020 Fimmti aðgerðapakkinn kynntur og sagt að hann myndi kosta allt að 70 milljarða króna. Stóra viðbótin þar voru svokallaðir viðspyrnustyrkir upp á allt að 20 milljarða króna fyrir rekstaraðila sem höfðu orðið fyrir allt að 60 prósent tekjufalli. Auk þess var ákveðið að hækka grunnatvinnu- leysisbætur næsta árs upp í 307.403 krónur og greiða öryrkjum aukaeingreiðslu. 9. NÓVEMBER 2020 Jákvæðar niðurstöður fást úr fyrstu rann- sóknarniðurstöðum frá bóluefnaframleið- endunum Pfizer og BioNTech og hluta- bréfaverð hækkar víða um heim. Aukna bjartsýni mátti einnig gæta meðal fjárfesta hérlendis, en Úrvalsvísitala Kaup- hallarinnar hækkaði um fimm prósent þennan dag. Ritstjóri: Jónas Atli Gunnarsson Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir Útgefandi: Kjarninn miðlar ehf�, Fiskislóð 31 B, 101 Reykjavík Sími: 551 0708 Net fang: visbending@kjarninn�is Umbrot: Ágústa Kristín Bjarnadóttir Prentun: Umslag ehf� Öll réttindi áskil in� © Ritið má ekki afrita án leyfis út gef anda�

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.