Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 14
14 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
„ÞÚ ERT Á MUTE“
Verða þetta orðin sem við munum tengja við árið 2020 eða verða það „fordæmalausir tímar“ og „erfiðar aðstæður í efnahagslífinu“ sem koma upp í hugann þegar fram líða stundir? Þegar
við veltum fyrir okkur hvernig árið 2020 var, árið sem
margir vildu helst að hefði liðið hraðar og vilja gleyma
sem fyrst, þá eru líka jákvæðir hlutir sem koma í ljós� Árið
hefur verið ár aðlögunar fyrir einstaklinga og fyrir fyrirtæki
og aðlögunarhæfni er mun meiri en við þorðum að vona�
Stöðugt hefur þurft að aðlaga sig að þeim takmörkunum
sem í gildi hafa verið hverju sinni og fyrir mörg fyrirtæki
hefur rekstrarumhverfið einnig verið mjög erfitt� Verkefnin
hafa verið mörg og krefjandi sem fyrirtækin hafa þurft
að glíma við og stjórnendur standa einnig frammi fyrir
nýjum veruleika sem snýr ekki bara að erfiðu efnahagsá
standi heldur eru einkenni vinnustaða gjörbreytt frá því
sem áður var�
BREYTT STJÓRNUN
Fjarvinna og fjarfundir eru komin til að vera� Ekkert eitt
módel er til sem segir hversu mikla fjarvinnu á að leyfa
eða ekki leyfa, heldur mun hver og einn vinnustaður þurfa
að finna sinn takt og aðlaga breytt vinnufyrirkomulag að
sinni menningu� Fyrir flesta íslenska stjórnendur þá er
þetta nýr veruleiki og það er áskorun að hafa ekki fólkið
sitt hjá sér í raunheimum og eiga meirihluta samskipta í
gegnum samskipta eða fundarkerfi� Samskiptamynstrið
hefur breyst og það mun verða einhver tími þar til það
verður jafnt skilvirkt og samskiptamynstrið í raunheimum�
Dýnamíkin á fjarfundum er ekki sú sama og í fundarher
bergjum í raunheimum og eflaust kannast einhverjir við
það af fjarfundum að vera búnir að tala í einhvern tíma
þangað til þeir heyra loksins „það heyrist ekki í þér, þú
ert á mute“�
Þrátt fyrir að fjarfundir séu almennt mjög skilvirkir
þá henta þeir ekki í öll málefni� Til að mynda er yfirleitt
auðveldara að eiga samskipti í raunheimum þegar kemur
að ýmsum starfsmannamálum� Það eru dæmi um það að
starfsmenn sem voru að hefja störf á nýjum stað á árinu
hafa ekki hitt neina samstarfsmenn í raunheimum og
móttaka nýrra starfsmanna er eitthvað sem hefur þurft
að aðlaga mjög hratt að breyttum aðstæðum� Það er fjár
festing að ráða nýja starfsmenn og með breyttu vinnufyr
irkomulagi er mun erfiðara fyrir þá að mynda tengsl við
samstarfsmenn� Rannsóknir hafa sýnt að jákvæð fylgni
sé milli frammistöðu starfsmanns og þess að eiga góðan
vin í vinnunni� Eins er helgun þeirra starfsmanna sem
eiga góðan vin í vinnunni meiri� Því er mikilvægt að
finna leiðir til að starfsmenn tengist og finna lausn á því
hvernig við getum fengið starfsmenn til að taka „spjallið
við kaffivélina“ í umhverfi þar sem allir eru með sína
eigin kaffivél�
Eitt mikilvægasta hlutverk stjórnandans er að hjálpa
starfsmönnunum sínum að vaxa� Til að hægt sé að sinna
því hlutverki er mikilvægt að hlusta en það er ekki eins
skilvirkt í gegnum skjáinn� 73855 reglan er regla sem
lýsir því hvernig við komum tilfinningum til skila í sam
skiptum og reglan hjálpar okkur að skilja af hverju það er
ekki eins skilvirkt að eiga samskipti í gegnum skjá� Reglan
segir okkur að 7% tilfinninga sé miðlað með töluðu orði,
38% með raddblæ og 55% prósent með líkamstjáningu�
Það er því mun erfiðara að lesa í líðan fólks og meiri líkur
á því að stjórnendur taki ekki eftir einhverju merkjum frá
starfsmönnum sem þeir tækju eftir í raunheimum� Það
er því mikilvægt að byrja að nota fleiri leiðir til styðja við
fólkið sitt heldur en samtöl í gegnum skjá�
Þessar ofantaldar áskoranir eru aðeins örfáar af þeim
fjölmörgu áskorunum sem stjórnendur standa frammi
fyrir gagnvart starfsmönnum og ljóst er að enn frekari
breytingar munu eiga sér stað� Það er mikilvægt fyrir alla
stjórnendur að hafa traust starfsmanna sinna og það hefur
ekki breyst að það eykur traust að hafa skýra stefnu og
GRÉTA MARÍA
GRÉTARSDÓTTIR
verkfræðingur