Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 15

Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 15
PBV Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 sýn� Því er mikilvægt að líta einnig á þær áskoranir sem snúa að rekstri fyrirtækja og hvernig eigi að tækla þær þegar efnahagsaðstæður eru erfiðar� Flest fyrirtæki hafa á þessu ári þurft að aðlaga sig að sífelldum breytingum á takmörkunum vegna sóttvarna­ aðgerða� Það hefur gert það að verkum að stöðugt þarf að vera að bregðast við� Jákvæð afleiðing af þessu er að hjá mörgum fyrirtækjum er ákvörðunartaka orðin hraðari� Ekki er bara ákvörðunartakan orðin hraðari heldur hefur upplýsingaflæði til starfsmanna aukist til að framkvæmdin sé hröð� Þannig eru oft fleiri starfsmenn en áður vel upp­ lýstir um ákvarðanir sem teknar eru til að auka líkur á því að þær séu rétt útfærðar� ALGENGU MISTÖKIN Það eru ekki allir stjórnendur sem telja það réttan tíma­ punkt í erfiðu ástandi að endurskoða stefnuna� Það er þó einmitt á þeim tímapunkti þegar rekstrarumhverfið er krefjandi að endurskoða þarf stefnu og framtíðarsýn því umhverfið er að breytast og oft á meiri hraða en áður� Algeng mistök hjá stjórnendum er að gleyma sér í amstri dagsins þannig að allur fókus og orka fer á verkefni sem eru sífellt að koma upp og verður að „leysa strax“� Stjórnendur verða því oft of seinir að átta sig á breytingum í umhverfinu og hvaða áhrif þær hafa á fyrirtækið� Þeir greina þar af leiðandi ekki hver áhrifin verða á reksturinn til framtíðar� Það að styrkja stoðir tekjumódelsins og sjá tækifæri í erfiðu efnahagsástandi er erfitt� Því er stefnumótun og framtíðarsýn sett til hliðar eða því frestað að taka stórar ákvarðanir� Fyrirtækið fer í varnarstöðu og reynt er að halda í óbreytt ástand með því að lækka kostnað og öll áhersla er á kostnaðarstrúktúr fyrirtækisins� Oft á tíðum er það nauðsynlegt en líka er það oft auðvelda leiðin� Það er auðvelt að hætta við verkefni sem ekki eru byrjuð að skapa tekjur en á sama tíma eru þetta verkefni sem geta skilið á milli þess hvort fyrirtækið lifi eða ekki í framtíð­ inni� Mikilvægt er að greina vel þær ákvarðanir sem snúa að þróun sem enn er ekki tekjuskapandi en styður við framtíðarvöxt� Það getur haft afdrifarík áhrif að hægja á eða hætta við eitthvað ef til dæmis samkeppnisaðilinn heldur áfram þróun� Mun samkeppnisaðilinn þá hafa forskot sem verður erfitt að brúa þegar ástandið batnar? TILBÚIN Í UPPSVEIFLUNA Ástandið mun nefnilega batna og þá er eins gott að vera vel undirbúin með skýra stefnu og framtíðarsýn� Mikilvægt er að átta sig á hvernig þær breytingar sem hafa orðið og þær sem munu verða hafi áhrif á viðskiptamódel fyrirtæk­ isins� Hvaða breytingar eru komnar til að vera og hvernig ætlar fyrirtækið að bregðast við? Þetta er mikilvægt fyrir stjórnendur að vera með á hreinu og gera aðlaganir á við­ skiptamódelinu þar sem við á� Hvernig verður séð til þess að fyrirtækið sé fljótt að skala upp aftur? Hvaða tækifæri eru í ástandinu og hvernig ætlum á að nýta þau? Stjórnendur eru misjafnir eins og þeir eru margir� Sumir eru fæddir leiðtogar og eiga auðvelt með að gera aðlaganir á stefn­ unni og koma henni til skila� Það er nefnilega lykilatriði í erfiðu ástandi að sýna starfsmönnum fram á að það sé ljós við enda ganganna, stefnan er skýr, nýta á tækifærin sem ástandið hefur haft í för með sér til að gera betur og aðlaga viðskiptamódelið� Þá er betra að vera með stjórnanda sem er ekki á „mute“ því með skýrri framtíðarsýn fær starfsfólk þá trú sem þarf til að koma því í gegnum erfið tímabilið því það treystir því að stjórnandinn leiði það í rétta átt� Áskoranir stjórnenda þegar efnahagsástandið er erfitt eru því fjölmargar og krefjandi en á sama tíma þá eru þær einnig lærdómsríkar� Þegar fram líða stundir þá munu stjórnendur horfa til ársins 2020, sem ársins þar sem þeir lærðu mikið� Öfluðu sér nýrrar þekkingar og reynslu sem jók hæfni þeirra� Líta þarf á verkefnin sem tækifæri til að þróast og verða öflugri stjórnendur með fleiri verkfæri í kistunni og þá verða þeir betur undirbúnir til að tækla næstu niðursveiflu� Niðursveiflan mun koma, það er bara spurning hvernig og hvenær hún verður� Ljósmynd: Bára Huld Beck

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.