Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Side 17

Vísbending - 25.12.2020, Side 17
17V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 í kjölfar spænsku veikinnar hafa leitt í ljós að aukning dauðsfalla sem hlutfalls af fólksfjölda um 10% hafi valdið 2­3% hækkun launa� Þannig hafi 4 prósent af saman­ lagðri hækkun launa frá 1914 til 1919 stafað af auknum dauðföllum vegna farsóttarinnar�3 Rannsóknir hafa einnig fundið jákvætt samband á milli tíðni dauðsfalla í hverju ríki Bandaríkjanna og vaxtar framleiðslu og tekna á mann frá 1921 til 1930�4 Eitt dauðsfall á hverja þúsund íbúa skýrði 0,2% meiri hagvöxt á ári hverju næsta áratuginn� Tengslin eru enn sterkari ef dauðsföll fólks á vinnufærum aldri voru notuð í stað dauðsfalla innan allra aldurshópa�5,6 Ein nýleg rannsókn kannaði efnahagslegar afleiðingar farsótta aftur til 14� aldar�7 Niðurstaðan var sú að far­ sóttum sem valda a�m�k� 100 þúsund dauðsföllum fylgi tímabil hækkandi launa sem geti varað í áratugi� Sú mann­ skæðasta var svarti dauði (75­100 milljónir), þá spænska veikin og síðan Asíuflensan 1957­58� Launahækkanir verða vegna mannfellis og/eða vegna þess að sparnaður og í kjölfarið fjárfesting eykst sem veldur því að fjármagnsstofn­ inn verður meiri á hvern vinnandi mann og framleiðni vinnuafls meiri� Niðurstöðurnar sýndu að drepsóttir hafi lækkað raunvexti í 30­40 ár en kaupmáttur launa hækki� Þriðji áratugur 20� aldar var mikill uppgangstími í flestum ríkjum, einkum í Bandaríkjunum� Norðurlöndin voru ekki þátttakendur í fyrri heimsstyrjöldinni en fóru ekki varhluta af spænsku veikinni� Í Svíþjóð létust um 37 þúsund manns og 18 þúsund í Danmörku� Myndin hér til hliðar sýnir vísitölu VLF á mann� Sjá má að VLF á mann fellur aðeins 3 Sjá Manfred Garrett (2006). 4 Sjá Braunerd og Siegler (2003). Þeir leiðréttu fyrir áhrif tekna á mann í upphafi tímabilsins, hlutdeild landbúnaðar í vinnuafli og fjölda innflytjenda. 5 Hluti af ástæðunni fyrir þessum hagvexti stafar af því að gjaldþrota fyrirtækja voru fleiri í þeim fylkjum sem höfðu fleiri dauðsföll. Þess vegna varð meiri samdráttur þar á meðan á farsóttinni stóð og því meiri hagvöxtur í kjölfarið. 6 Rannsóknir á áhrifum svarta dauða, sem olli dauða um 25% af íbúum Vesturlanda, virtust í fyrstu benda til þess að laun hefðu hækkað á 14. öld en síðari rannsóknir drógu þessar niðurstöður í efa (sjá til. Hirshleifer, 1987). 7 Jordá, Singh og Taylor, 2020. 8 Sjá Almond, 2006. 9 Skv. Barro of fleiri (2020) og Johns Hopkins University, COVID-19 Map - Johns Hopkins Coronavirus Resource Center (jhu.edu). 10 Heimild: Vísindavefur Háskóla Íslands, Vísindavefurinn: Hvað var spánska veikin? (visindavefur.is). árið 1918 en síðan fylgir myndarlegur hagvöxtur áratugina tvo á eftir� Þótt hagkerfin hafi náð sér fljótt á strik þá lék spænska veikin einstak­ linga grátt� Alls létust um 40 milljónir manna í sam­ tals 48 ríkjum (skv� mati Barro, Ursúa, og Weng, 2020) og hún hafði var­ anleg heilsufarsleg áhrif á aðra� Ein rannsókn sýndi fram á að einstaklingar sem voru í móðurkviði á meðan á farsóttinni stóð urðu fyrir skaðlegum áhrifum�8 Þeir árgangar sem voru rétt ófæddir á meðan faraldurinn gekk yfir í Bandaríkjunum hættu að meðaltali fyrr í skóla, tíðni bæklunar var hærri og tekjur síðar á ævinni lægri� Börn mæðra sem sýktust voru 15% minna líkleg til þess að ljúka námi í fram­ haldsskóla og laun karla sem áttu mæður sem sýktust af spænsku veikinni meðan á meðgöngu stóð höfðu að meðaltali 5­9 prósent lægri laun� Spænska veikin felldi m�a� einn frægasta félagsfræðing sögunnar, Max Weber og listmálarann Gustav Klimt� Aðrir sýktust en náðu aftur heilsu, svo sem Walt Dis­ ney, Mahatma Gandhi, Lloyd George forsætisráðherra Breta, Franklin Roosevelt og listmálarinn Edvard Munch� Woodrow Wilson, forseti Bandaríkjanna smitaðist af spænsku veikinni og sagt er að hann hafi ekki verið heill heilsu þegar Versalasamningarnir voru gerðir árið 1919, ef til vill með alvarlegum afleiðingum fyrir frið í Evrópu� ÞÁ OG NÚ Færri dauðsföll hafa fylgt COVID­19 veikinni en spænsku veikinni� Þá létust um 40 milljónir manna en hingað til hafa dauðsföll verið rúmlega 1,5 milljónir í heimin­ um�9 Dauðsföll eru einnig fá á Íslandi í samanburði við spænsku veikina en samkvæmt Vísindavefnum létust 484 Íslendingar af mannfjölda sem var 91�368 í upphafi árs 1918�10 Til samanburðar var mannfjöldi í upphafi árs 2020 364�134� Ef dánartíðnin væri sú sama og í spænsku veikinni myndu um 1930 manns látast í stað þeirra 28 sem hafa látist í ár� Einnig lagðist spænska veikin meira á ungt fólk (15­44 ára) í samanburði við COVID­19� Heimild: Jorda-Schularick-Taylor Macrohistory database. 6,500 6,000 5,500 5,000 4,500 4,000 3,500 3,000 2,500 VLF á mann (vísitala) Ár 14 16 18 20 22 24 26 28 30 32 34 36 38 Danmörk Svíþjóð MYND 1 VERG LANDSFRAMLEIÐSLA Á MANN Í DANMÖRKU OG SVÍÞJÓÐ (vísitala, 2005=100)

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.