Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Side 24

Vísbending - 25.12.2020, Side 24
24 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 HORFUR Á VIÐSPYRNU EFTIR ERFITT ÁR Árið sem nú er að renna sitt skeið hefur verið mörgum landsmönnum afar erfitt og væntanlega öllum mjög sérkennilegt� Fyrir lítið land með risastóran ferðaþjónustugeira var óhjákvæmilegt að skellurinn vegna COVID­19 faraldursins yrði harður� Nýjustu tölur bera með sér að samdrátturinn í ár er krappur og verður líklega sá mesti á einu ári í nútíma hagsögu landsins� Í rauninni hefur framgangur kreppunnar verið í stórum dráttum í samræmi við þá mynd sem ýmsir drógu upp í vor� Stærstur hluti efnahagsþrenginganna stafar beint af því þunga höggi sem útflutningi landsins var greitt af veirunni skæðu en einnig hafa afleidd áhrif á innlenda eftirspurn aukið á samdráttinn� Það bætir þó talsvert úr skák að heimili og fyrirtæki hafa í auknum mæli beint kaupum sínum á vörum og þjónustu að innlendum aðilum og þannig viðhaldið fleiri störfum og meiri efnahagsumsvifum en ella væri� Ljóst er að yfirstandandi vetur verður harður í efnahagslegu tilliti� Tekjubrestur ferða­ þjónustunnar, hömlur á margvíslega starfsemi vegna sóttvarnaaðgerða og afleidd áhrif á efnahagsstarfsemina alla mun áfram lita íslenskan efnahag sterkum litum næsta kastið� Atvinnuleysi á enn eftir að ná hámarki og fyrirtækin þurfa mörg hver áfram verulegan stuðning til að lifa harðindin af� Sem betur fer er ljóstýran við enda ganganna bæði að verða bjartari og þokast nær okkur� Líkur á að hagkerfið taki kröftuglega við sér þegar lengra líður á næsta ár hafa batnað verulega með tilkomu áhrifaríkra bóluefna� Góðu heilli eru flestar forsendur til staðar fyrir myndarlegri viðspyrnu� Starfskraftar, fasteignir, farartæki og aðrir innviðir ferðaþjónustunnar eru vel í stakk búnir til að taka við myndarlegri fjölgun ferðamanna� Efnahagsreikningar bæði heimila, fyrirtækja og hins opinbera eru enn allsterkir á heildina litið öfugt við upphaf síðasta áratugar og ímynd Íslands með sína hreinu náttúru og víðerni ætti að falla vel að áhuga ferðamanna á að fá sem mesta tilbreytingu eftir innilokunarár en fara á sama tíma að gát hvað varðar smithættu og slíkt� Að mínu mati hefur kórónukreppan staðfest flest það sem við væntum þegar faraldur­ inn fór að geisa síðastliðinn vetur� Sá lærdómur sem við drógum af hruninu hefur til að mynda nýst okkur í aðdraganda skellsins nú� Gengið var hægt um gleðinnar dyr þegar góðærið var mest, safnað í sarpinn bæði hjá einkageiranum og hinu opinbera og þess gætt að búa hagkerfið undir mögru árin� Viðbrögð hins opinbera og Seðlabankans hafa í stórum dráttum verið býsna árangursrík á sama tíma og bankarnir hafa kappkostað að nýta aukið svigrúm eftir tilslakanir á kvöðum og kröfum til þess að styðja við viðskiptavini sína eftir megni� Gjaldþrotum fyrirtækja hefur fjölgað hægar en óttast var, eignamarkaðir haldist fremur stöðugir og kaupmáttur almennings verið varinn á sama tíma og veiking krónu hefur aukið líkur á viðspyrnu útflutningsgreina þegar um hægist� Framundan er það verkefni að koma sem flestum heimilum og fyrirtækjum klakklaust í gegnum efnahagslegan frostavetur og hugsanlega hráslagalegt vor� Takist það eru meiri líkur en minni á að hagkerfið verði aftur farið að blómstra að ári liðnu og kórónukreppan fari í sögubækurnar sem efnahagslegar náttúruhamfarir sem ollu miklum tímabundnum búsifjum en ekki langvinnum skaða� BIRNA EINARSDÓTTIR bankastjóri Íslandsbanka

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.