Vísbending - 25.12.2020, Síða 26
26 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
FYRIRTÆKI ERU FÓLK
Á meðal viðskiptavina Landsbankans eru hjón sem reka vel staðsett, meðalstórt hótel
á landsbyggðinni� Þegar Covid19 skall á reiknuðu þau út að reiðuféð þeirra og yfir
dráttarheimildin hjá bankanum myndi duga til að þau gætu greitt kokkinum laun, en
þó aðeins í lágmarksstarfshlutfalli� Önnur störf myndu þau sjálf taka að sér, launalaust�
Þannig gátu þau haldið hótelinu opnu� Annað starfsfólk yrði að fara á hlutabótaleiðina�
Um leið og von um bjartari tíma færi að glæðast vildu þau vera tilbúin til að fá fólkið aftur
til starfa og geta byrjað að greiða aftur laun, því til að geta tekið á móti ferðamönnum
þarf starfsfólk til að undirbúa hótelið, löngu áður en tekjur skila sér í kassann� Þau áttu
líka nóg fyrir rimlagjöldunum, þ�e� ýmsum opinberum gjöldum, sem nauðsynlegt var að
greiða til að þau gætu haldið fyrirtækinu� Hlutverk Landsbankans var að koma til móts
við þau með því að sjá til þess að afborganir af lánum og greiðslur væru tímasettar í takt
við breyttan veruleika� Þannig fengju þau ráðrúm til að fá starfsfólkið aftur til starfa, nógu
snemma til að geta gripið tækifærin sem gefast þegar ferðaþjónustan tekur aftur við sér�
95% FYRIRTÆKJA ERU LÍTIL
Í hugum sumra eru fyrirtæki einhvers konar ópersónulegar stofnanir� Svo er auðvitað
ekki� Það er fólk sem stofnar fyrirtæki, fólk sem hefur ástríðu og hugsjónir og er tilbúið
að leggja á sig mikla vinnu og strit, svo ekki sé talað um fórnir� Sum fyrirtæki eru stór
en flest eru lítil� Um 95% fyrirtækja sem eru í viðskiptum við Landsbankann teljast vera
lítil eða pínulítil (e� micro)� Það er mikilvægt að hlusta vel á fólkið sem rekur og á þessi
fyrirtæki, stór sem smá� Þetta fólk er ómissandi við að halda efnahagslífinu gangandi� Það
ræður aðra í vinnu, greiðir laun, skatta og gjöld og býr til verðmæti úr þeirri þekkingu
og reynslu sem það hefur aflað sér�
MIKLAR BREYTINGAR Á SKÖMMUM TÍMA
Fyrir utan þær efnahagslegu áskoranir sem margir glíma nú við, þá hefur umhverfið allt
breyst� Landsbankinn hefur verið á fleygiferð við að breyta þjónustu sinni til að geta
áfram veitt einstaklingum og fyrirtækjum bankaþjónustu á tímum samkomutakmarkana�
Þegar faraldurinn skall á settum við í hraðgírinn við að rafvæða allt sem áður kallaði á að
fólk kæmi í útibú� Við gerðum okkar allra besta til að gera þjónustuna eins aðgengilega
og hægt var� Við bættum við fólki sem veitir aðstoð í gegnum síma og flýttum þróun
á stafrænum lausnum� Við unnum með fyrirtækjum að því að finna lausnir og með
stjórnvöldum að því að meta stöðuna til að hægt væri að mæta þeim miklu áskorunum
sem blöstu við – og blasa raunar enn við�
VEXTIR HAFA LÆKKAÐ SEX SINNUM
Það skipti miklu máli fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem urðu fyrir tekjufalli að hafa
fengið andrými í upphafi faraldursins, s�s� með því að fá greiðslufresti á lánum� Þá hafa
lækkandi vextir hjálpað mikið til, en Landsbankinn hefur lækkað vexti hratt og vel, sem
hefur skilað sér til þeirra sem eru með lán hjá bankanum� Almennt séð er greiðslubyrði
lána sífellt lægri hluti af mánaðarlegum útgjöldum einstaklinga� Nú þegar atvinnuleysi er
í hæstu hæðum er ekki von á öðru en að einhverjir lendi í erfiðleikum en þá er mikilvægt
að hafa sem fyrst samband við bankann og leita lausna� Hjá þeim sem staðan er betri,
er mikilvægt að nýta núverandi vaxtastig, og þar með lægri greiðslubyrði, til að leggja
meira fyrir til að geta brugðist við ef og þegar vextir hækka� Þetta á auðvitað sérstaklega
við um þau sem eru með óverðtryggð lán�
BJARTSÝNI
Á árinu 2020 höfum við aldrei lánað jafn mikið til einstaklinga og aldrei lækkað vexti
jafn títt� Þrátt fyrir miklar áskoranir höfum við getað sinnt viðskiptavinum okkar vel
og bæði viðskiptavinir og starfsfólk er ánægt með hvernig tekist hefur til� Við höfum
umbreytt þjónustunni hraðar en nokkru sinni fyrr og starfsfólk bankans hefur verið fljótt
að tileinka sér ný vinnubrögð� Við erum virkilega bjartsýn fyrir árið 2021 og mætum
sterk til leiks� Best af öllu verður að fá að hitta fólk aftur, augliti til auglitis�
LILJA BJÖRK
EINARSDÓTTIR
bankastjóri Landsbankans