Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Síða 30

Vísbending - 25.12.2020, Síða 30
30 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 Þrátt fyrir kreppuástand og ferðatak­ markanir hefur erlendum ríkisborg­ urum haldið áfram að fjölga hér á landi það sem af er ári� Í lok september hafði þeim fjölgað um tæplega 2�500 og voru orðnir 51 þúsund talsins� Það jafngildir um 14 prósentum af öllum landsmönnum� Til viðmiðunar fjölgaði erlendum ríkisborgurum nokkuð árið 2008, þrátt fyrir fjármálakreppuna sem hófst í október það ár� Á milli 2009 og 2012 fækkaði þeim þó umtalsvert, en árið 2009 fækkaði erlendum ríkisborg­ urum um 2�700 manns� Á síðustu átta árum hefur þeim svo fjölgað jafnt og þétt en hlutfall erlendra ríkisborgara hefur rúmlega tvöfaldast á þeim tíma� Líkt og við mátti búast hefur kórónukreppan, ásamt efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar til að milda áhrif hennar, sett sinn svip á fjárhag hins opinbera� Með gjald­ þrotum fjölda fyrirtækja og greiðslum ríkisins á launum starfsmanna í gegnum hlutabótaleiðina minnkaði skattstofn hins opinbera sem hefur leitt til minni tekna� Á fyrstu níu mánuðum ársins voru tekjur hins opinbera 59 milljörðum krónum minni en á sama tíma í fyrra� Á sama tíma kröfðust efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem fólu meðal annars í sér umrædda hlutabótaleið, tekju­ fallsstyrki og ferðagjöf til allra landsmanna, aukinna útgjalda hins opinbera� Því kemur ekki á óvart að heildarútgjöld ríkisins voru 94 milljörðum krónum meiri á fyrstu níu mánuðum ársins heldur en á sama tíma í fyrra� Fjárlagahallinn, sem nam rúmlega 44 milljörðum króna á milli janúar og október í fyrra, hefur því aukist til muna á einu ári, og nam hann 197 milljörðum króna á sama tímabili í ár� Það er rúm fjórföldun� 1. ERLENDUM RÍKISBORGURUM HELDUR ÁFRAM AÐ FJÖLGA 2. KREPPAN STRAX SJÁANLEG Í RÍKISFJÁRMÁLUM 0 100 200 300 400 500 600 700 Heildarútgjöld Heildartekjur 2020 2019 Fjárhagur hins opinbera um mitt ár 2019 og 2020 Heildar- tekjur Heildar- útgjöld 48,640 51,120 0 10,000 20,000 30,000 40,000 50,000 60,000 2019 2020 Fjöldi erlendra ríkisborgara 6 0 5 0 4 0 3 0 2 0 1 0 0 20 48,640 2 5 20 2020 Í TÖLUMÁRIÐ

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.