Vísbending - 25.12.2020, Side 31
31V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
Eftir ellefu ár af sam
felldum afgangi af
vöru og þjónustuvið
skiptum hvarf hann í ár
eftir að kórónuveiran
fór að herja á heim
inn� Heildarútflutn
ingstekjur hér á landi
á fyrstu níu mánuðum
ársins námu um 685
milljörðum króna en
það er tæplega þriðj
ungi minna en á sama
tímabili í fyrra�
Hins vegar leiddi
faraldurinn einnig til
þess að innflutningur
á vöru og þjónustu
minnkaði til muna, eða úr tæpum 900 milljörðum króna niður í 685 milljarða króna� Því nam hallinn í vöru og
þjónustuviðskiptum við útlönd einungis 10 milljörðum króna, en hann hefði getað orðið margfalt meiri ef ekki hefði
verið fyrir samdráttinn í innflutningi�
3. MINNI INNFLUTNINGUR KOM Í VEG FYRIR
MIKINN HALLA Á UTANRÍKISVIÐSKIPTUM
Hrunið í ferðaþjónust
unni sést enn betur þegar
tekjur af komu ferða
manna fyrstu níu mánuði
ársins eru skoðaðar en
þær voru 71 prósenti
minni en á sama tíma bili
í fyrra� Lítinn samdrátt má
hins vegar sjá í útflutn
ingstekjum á áli en þær
minnkuðu aðeins um sex
prósent á milli ára�
Athygli vekur að verð
mæti útfluttra sjávarafurða
jókst um þrjú prósent
á milli ára þrátt fyrir að
minna hafi verið flutt út af
fiski í ár� Hér hefur rúm
lega 20 prósenta veiking krónunnar í kjölfar kreppunnar hjálpað til en með henni fá sjávarútvegsfyrirtæki fleiri krónur
fyrir hvern seldan fisk erlendis ef verð hans í erlendum gjaldmiðlum fellur ekki jafnmikið� Þó er rétt að taka það fram
að krónan hefur verið í styrkingarfasa síðustu vikurnar�
4. VEIKARI KRÓNA HJÁLPAÐI SJÁVARÚTVEGINUM ...
0
50,000
100,000
150,000
200,000
250,000
300,000
350,000
400,000
450,000
Sjávarafurðir Ál Erlendir ferðamenn
2019 2020
Útflutningur á völdum vörum og þjónustu í milljónum
króna fyrstu níu mánuði áranna 2019 og 2020
450, 0
400, 0
350, 0
300, 0
250, 0
200, 0
150, 0
100, 0
50, 0
0
0 200,000 400,000 600,000 800,000 1,000,000 1,200,000
Innflutningur
Útflutningur
2020 2019
Verðmæti inn- og útflutnings í milljónum króna fyrstu
níu mánuði áranna 2019 og 2020
Útflutn-
ingur
Innflutn-
ingur