Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 32
32 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
5. ... EN JÓK VERÐBÓLGUNA
6. SMITBYLGJURNAR SJÁST Í ATVINNULEYSISTÖLUNUM
Önnur afleiðing veikari krónu
er þó sú að innflutt vara og
þjónusta hækkar í verði�
Þar sem stór hluti af neyslu
Íslendinga er innfluttur kemur
því ekki á óvart að vísitala
neysluverðs hafi hækkað tölu
vert í kjölfar veikingarinnar�
Verðbólgan, sem vanalega
er mæld sem tólf mánaða
hækkun vísitölu neysluverðs,
jókst úr 1,7 prósenti í byrjun
árs og upp í 3,6 prósent í
október� Í nóvember minnkaði
hún svo nokkuð óvænt niður
í 3,5 prósent, en flestir grein
ingaraðilar höfðu spáð áfram
haldandi vexti verðbólgunnar
fram á næsta ár�
Áhrif kórónuveirufaraldursins og sótt
varnaaðgerða ríkisstjórnarinnar til að
stemma stigu við útbreiðslu hans eru
skýr þegar horft er á atvinnuleysistölur á
milli mánaða� Samkvæmt vinnumarkaðs
könnun Hagstofunnar jókst atvinnuleysi
hratt í kjölfar fyrstu smitbylgju kórónu
veirunnar eða úr 2,7 prósentum í mars í
7 prósent í apríl og tæp 10 prósent í maí�
Þegar aðgerðunum var aflétt í júní
mánuði minnkaði svo atvinnuleysið aftur
niður í 3,5 prósent og hélst á bilinu á
milli 4 og 6 prósent út september� Eftir
að sóttvarnarreglur voru hertar enn á ný
í þriðju smitbylgjunni í október fór svo
atvinnuleysið að aukast aftur á ný og
mældist það 6,8 prósent þá�
3.6% 3.5%
0.0%
0.5%
1.0%
1.5%
2.0%
2.5%
3.0%
3.5%
4.0%
Verðbólga á ársgrundvelli árið 2020
.
.
0.0%
2.0%
4.0%
6.0%
8.0%
10.0%
12.0%
Atvinnuleysi eftir mánuðum árið 2020
12.
10.
8.
6.
4.
2.0
0.0