Vísbending - 25.12.2020, Page 35
35V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
við ákveðinn fyrirsjáanleika� Það er það sem atvinnulífið
hefur undanfarið beðið um í meira mæli� Þangað til bólu
setning við veirunni verður almenn, má búast við ýmsum
takmörkunum og það er mikil áskorun fólgin í því að reka
fyrirtæki við slíkar aðstæður� Skýr og skiljanleg skilaboð,
með hæfilegum fyrirvara, eru því nauðsynleg�
Nýjustu breytingar svöruðu sem betur fer að ein
hverju leyti óskum verslunarinnar, á mikilvægum tíma,
þar sem tekin voru upp fermetraviðmið í stað algildrar
og óskiljanlegrar fjöldatakmörkunar� Mér þótti í það
minnsta skrýtið að fara úr lítilli matvörubúð þar sem
voru tugir manna yfir í mörghundruð fermetra raftækja
búð með innan við tuttugu viðskiptavini, í tvískiptu
rými�
BATINN TEKUR TÍMA
Það má sennilega þakka fyrir að árið 2020 skyldi ekki
vera kosningaár í ofanaálag við allt annað, enda skiptir
pólitískur stöðugleiki máli í þrengingum sem þessum�
En á næsta ári verður kosið og vonandi berum við gæfu
til að njóta áfram þeirrar samstöðu sem ríkt hefur frá
upphafi faraldursins, um að auka ekki álögur á fólk og
fyrirtæki� Það kemur líka að því að ríkisvaldið, sem hefur
gegnt mikilvægu hlutverki við að skapa varnir, vernd
og viðspyrnu, þurfi að stíga til baka� Viðbrögð þess og
úrræði hafa skipt miklu við að draga úr skellinum, en
þau inngrip eru ekki sjálfbær til langs tíma� Nú þarf
að treysta samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, leggja
áherslu á sanngjarnt og hvetjandi rekstrarumhverfi og
gera landið um leið að spennandi kosti fyrir erlenda
fjárfestingu�
Fréttir um að fyrstu skammtarnir af bóluefninu komi
til landsins strax um áramótin hafa glætt vonir um að
endalok faraldursins nálgist� Um leið er ljóst að höggið
sem kórónuveiran hefur veitt okkur er þungt, í margvís
legum skilningi, og batinn mun taka sinn tíma� Ég leyfi
mér samt sem áður að vera bjartsýn á að landið muni rísa
um leið og atvinnulífið fær svigrúm til vaxa á ný og skapa
störf� Þannig munum við ryðja leiðina út úr kreppunni
fyrir íslenskt samfélag�
Við sendum okkar bestu
óskir um gleðileg jól og
farsæld á nýju ári
ÓSKUM SJÓÐ FÉLÖGUM
OKKAR OG LANDSMÖNN-
UM ÖLLUM GLEÐILEGRA
JÓLA OG FARSÆLS
KOMANDI ÁRS
GILDI-LÍFEYRISSJÓÐUR
Ljósmynd: Bára Huld Beck