Vísbending - 25.12.2020, Page 36
36 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
HVAÐ VERÐUR UM SPÁN?
1 World Values Survey 2010-2014 https://www.worldvaluessurvey.org/WVSDocumentationWV6.jsp
Fá lönd hafa orðið jafnilla fyrir barðinu á kórónuveirunni og Spánn� Meira en ein og hálf milljón Spánverja hefur sýkst af veirunni og 45 þúsund látist af völdum hennar�
Á sama tíma hafa sóttvarnaaðgerðir í landinu, sem
er eitt helsta ferðamannaland heims í heimi, verið með
þeim harkalegustu í álfunni� Þessar aðgerðir valda því að
Spánverjar eru að ganga í gegnum dýpstu efnahagslægð
sem þjóðin hefur fundið fyrir í tæpa öld�
Spánverjar eru alls ekki ókunnugir efnahagskreppum
og frelsistakmörkunum� Saga þeirra og menning gæti gefið
betri innsýn og aukið skilning á því hvers vegna veiran
dreifðist svona hratt þar í landi og hvers vegna útbreiðslu
hennar var mætt með svo hörðum aðgerðum�
EINRÆÐISRÍKI SEM VARÐ
AÐ FERÐAMANNAPARADÍS
Árið 1936 hófst borgarastyrjöld á Spáni með uppreisn
þjóðernissinna gegn þáverandi ríkisstjórn� Þjóðernis
sinnar undir forystu Francisco Franco nutu stuðnings
fasistabræðra sinna í Þýskalandi og á Ítalíu en Sovét
ríkin sáu lýðræðissinnum fyrir vopnum� Stríðið varð að
æfingabúðum fyrir seinni heimsstyrjöldina þar sem Hitler
prófaði vopn sín á herjum lýðræðissinna sem voru skipaðir
sjálfboðaliðum alls staðar að úr heiminum� Franco leit
upp til Hitlers og lét sem dæmi færa klukkuna þannig
að Madríd væri á sama tíma og Berlín� Þetta hefur ekki
verið leiðrétt og er klukkan á Spáni því röng miðað við
landfræðilega legu�
Lýðveldi Spánar er fremur ungt samanborið við
nágrannaþjóðirnar en því var komið á fyrir um 40 árum�
Stór hluti þjóðarinnar man því vel eftir tímum einræðis
stjórnar sem hefur eflaust mótað viðhorf og stefnur í
landinu� Í nýlegri könnun um stjórnarfyrirkomulag
sögðust tæplega 40% Spánverja myndu kjósa sterkan
leiðtoga fram yfir lýðræði�1 Arfleifð einræðisherrans
Francisco Franco eru enn merkjanleg en hann skipaði
arftaka sinn Juan Carlos konung yfir landinu� Sonur hans
Felipe tók nýverið við krúnunni eftir að upp komst um
ýmis hneykslismál föður hans� Einræðisherrann á sér enn
þann dag í dag yfirlýsta stuðningsmenn sem margir hafa
fundið nýja rödd innan öfgahægriflokksins Vox en hann
náði 52 þingsætum í síðustu kosningum�
Það var lítil stemning fyrir fasískum sjónarmiðum í
lok síðari heimsstyrjaldar en sú hugarfarsbreyting ásamt
efnahagslegri stöðnun Spánar varð til þess að Franco tók
að færa sig frá einangrunarstefnu sem hafði einkennt
stjórnarfar hans framan af� Markaðir voru opnaðir og
sólþyrstir Evrópubúar tóku að flykkjast á strendur Spánar�
Hagvöxtur tók kipp með innflæði erlends gjaldmiðils en
með vestrænum ferðamönnum komu einnig önnur menn
ingarleg gildi sem samræmdust illa einræðisstjórninni�
ÞÓRUNN HELGADÓTTIR
hagfræðingur
Einræðisherrarnir Adolf Hitler og Francisco Franco árið 1940.
Ljósmynd: Wikimedia Commons