Vísbending - 25.12.2020, Blaðsíða 37
37V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
Franco lést árið 1975 sem markaði endalok fasistaveld
isins� Hann var grafinn í dal hinna föllnu (Valle de los
caídos) innan um tugþúsundir fórnarlamba borgarastyrj
aldarinnar� Þangað flykktust stuðningsmenn Francos til
að minnast hans allt til ársins 2019 þegar vinstri stjórn
inni tókst loks að flytja gröfina og verða þannig við ósk
aðstandenda þeirra sem féllu í borgarastyrjöldinni� Eftir
dauða Francos var lýðræði komið á og nýir tímar blöstu
við Spánverjum�
Einræðisstjórnin barðist gegn öllum hugmyndum um
sjálfstæði ríkja innan Spánar og lagði áherslu á að Spánn
væri eitt, öflugt og frjálst ríki (¡Una, Grande y Libre!)�
Í dag skiptist Spánn upp í 17 sjálfstjórnarhéruð sem
lúta þó öll stjórnvöldum í Madríd� Opinber tungumál
eru fimm talsins og ljóst að hugmyndir Francos um
sameiningu þjóðarinnar undir einni tungu, spænsku,
urðu ekki að veruleika� Sjálfstæðisbarátta Katalóna
hefur verið mikið í umræðunni en árið 2017
var haldin umdeild þjóðaratkvæðagreiðsla
um sjálfstæði Katalóníuhéraðs� Á síðasta
ári féllu þungir dómar í málum kata
lónskra stjórnmálaleiðtoga en sama ár voru
almennar kosningar á Spáni þar sem sjálf
stæðissinnar fengu meirihluta í Katalóníu�
Það er því ljóst að sjálfstæðisbaráttunni er
hvergi nærri lokið�
Pólitískar deilur milli sjálfstjórnarhéraða,
einkum milli stjórnvalda í Madríd og Kata
lóníu, fengu nýjan vettvang þegar kór
ónuveiran braust út á fyrri hluta
þessa árs� Margir hafa bent
á pólitíska sundrung sem
eina helstu ástæðuna
fyrir því hve illa
stjórnvöldum hefur
tekist að ná sam
stöðu um aðgerðir
til þess að hefta
útbreiðslu veirunnar�
LÍFIÐ ER UTANDYRA Í
SÓLRÍKASTA LANDI EVRÓPU
Í stærstu borgum landsins, Madrid og Barcelona, býr
fólk við þröngan húsakost enda er fermetraverðið hátt�
Það kemur ekki að sök þar sem lífinu er að mestu leyti
varið utandyra� Loftslagið í Madrid er þurrt og sólríkt
en sveiflukennt, svalir vetrarmánuðir á spænskan mæli
kvarða og mikill hiti á sumrin� Loftslagið í Barcelona er
ólíkt enda staðsett við Miðjarðarhafið, veturinn mildur
og rakur hiti á sumrin� Báðar borgirnar eru sólríkar
allan ársins hring og eyða íbúar flestum frístundum
sínum utandyra� Vinnudagarnir eru langir en mikil
virðing er borin fyrir hádegishlénu, heilaga ,,siestan“
milli 14:00 og 16:00, þar sem veitingastaðirnir bjóða
upp á þriggja rétta matseðil á 10 evrur (Menú del día)
2 https://ec.europa.eu/eurostat/databrowser/view/tps00199/default/bar?lang=en
3 Instituto Nacional de Estadística https://www.ine.es/jaxiT3/Datos.htm?t=1579#!tabs-tabla
4 Instituto Nacional de Estadística
sem er iðulega skolað niður með litlum bjór� Þvert á
steríótýpuna sem gerir ráð fyrir því að Spánverjar leggi
sig að máltíð lokinni, endurræsa flestir vélina með
kaffibolla eftir mat og vinna langt fram á kvöld� Eftir
vinnu fyllast barir og veitingastaðir þar sem deginum
lýkur með kvöldmáltíð á tíma sem fæstum Norður
landabúum þætti kristilegur�
Hvað með börnin, velta eflaust einhverjir fyrir sér�
Spánverjum er að fækka en fæðingartíðni þar er ein
sú lægsta í Evrópu, eða 1,26 barn á hverja konu2� Sá
lífstíll sem hér hefur verið lýst er ekki fjölskylduvænn
en fleiri þættir spila þó inn í hvers vegna Spánverjar
bæði fresta barneignum, en spænskar konur eru að
meðaltali 32 ára þegar þær eignast sitt fyrsta barn3 og
eignast færri börn�
MYND 1 ATVINNULEYSI 25 ÁRA OG
YNGRI EFTIR HÉRÖÐUM4
Atvinnuleysi og þá einkum atvinnuleysi ungs fólks
á Spáni hefur lengi verið í umræðunni� Offramboð er
á háskólamenntuðu fólki og leigu og fasteignaverð í
stórborgunum þangað sem háskólamenntaðir flykkjast
er hátt samanborið við launin� Staðan er misalvarleg
eftir svæðum líkt og mynd 1 sýnir� Ástandið er verst
í suðri þar sem íbúar reiða sig á ferðaþjónustu, en
atvinnuleysi ungs fólks í Andalúsíu mældist um 50%
á þriðja ársfjórðungi 2020 og um 60% á Kanaríeyjum�
Í Madrid og Katalóníu þar sem framboð sérhæfðra
starfa er mest er atvinnuleysi ungs fólks rúmlega 30%�
Atvinnuleysi jókst í kjölfar fjármálahrunsins líkt og
mynd 2 sýnir og hefur tekið á rás á ný í kjölfar kór
ónuveirufaraldursins�