Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Síða 38

Vísbending - 25.12.2020, Síða 38
38 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 MYND 2 ÞRÓUN ATVINNULEYSIS Á SPÁNI5 Launum er líka misskipt eftir svæðum en meðallaun eru einna hæst í Madrid og Katalóníu eða rúmlega 2�100 evrur á mánuði�6 Fasteignaverðið þar er líka hátt og ungt fólk leigir frekar herbergi og deilir íbúð með 3­4 öðrum í svipaðri stöðu� Slík húsakynni eru dæmigerð fyrir vinnandi fólk í stórborgum, þar sem annars ótengdir aðilar búa saman, vinna á ólíkum stöðum, eiga hver sína fjölskyldu og vinahópa utan heimilisins� Það ætti því ekki að koma á óvart að faraldurinn fór eins og eldur í sinu um bæði Madrid og Barcelona þegar aðbúnaður fólks er hafður í huga� 5 Instituto Nacional de Estadística 6 Instituto Nacional de Estadística 7 Instituto Nacional de Estadística https://www.ine.es/jaxi/Datos.htm?path=/t20/e245/p04/provi/l0/&file=0ccaa003.px#!tabs-tabla 8 Ministerio de Sanidad https://www.mscbs.gob.es/profesionales/saludPublica/ccayes/alertasActual/nCov/documentos/Actualizacion_265_COVID-19.pdf BÖRN INNILOKUÐ Í 45 DAGA Útbreiðsla og afleiðingar faraldursins á Spáni er margþætt og ræðst að einhverju leyti af tilviljunum� Tilviljun að faraldurinn breiddist fyrst út hjá nágrannaþjóð þeirra, Ítölum, þar sem samgangur er mikill� Einnig má benda á að aldurssamsetning þjóðarinnar gerir hana útsettari fyrir alvarlegum tilfellum sjúkdómsins en fimmtungur þjóðarinnar er eldri en 65 ára�7 Þá má velta fyrir sér hvort menningarlegir þættir gætu haft áhrif á útbreiðslu� Suður­Evrópubúar eru þekktir fyrir að heilsast með 2­3 kossum og eru Spánverjar þar engin undantekning� Mikil áhersla er á fjölskylduna og stórir hópar ættingja koma reglulega saman� Um helgar hittast stórfjölskyldurnar gjarnan í hádegismat sem varir fram á kvöld og algengt er að stórir vinahópar hittist með fjölskyldum sínum í almenningsgörðunum eða á ströndinni og eyði þar deg­ inum saman� Spænska heilbrigðisráðuneytið gaf nýlega út samantekt yfir hópsýkingar þar sem kemur fram að rekja má rúmlega 40% þeirra til vina­ og fjölskyldusamvista�8 Útgöngubannið sem tók gildi um miðjan mars 2020 risti spænsku þjóðina djúpt� Á einni nóttu voru Spánverjar hnepptir í eins konar stofufangelsi þar sem aðeins einn af hverju heimili mátti sækja vistir í næstu matvöruverslun og apótek� Allt í einu var staðsetning kaupmannsins á horninu ekki lengur heppileg því hún svipti þig eina réttinum til gönguferðar� Almenningsgörðum var lokað með lögregluborða líkt og um glæpavettvang væri að ræða, hjólreiðamenn og hlauparar voru sektaðir, öllum 30 25 20 15 10 5 0 2002Q 1 2004Q 1 2006Q 1 2008Q 1 2010Q 1 2012Q 1 2014Q 1 2016Q 1 2018Q 1 2020Q 1 % Höfuðborg Spánar, Madríd, varð miðpunktur faraldursins þar í landi. Ljósmynd: Pexels.

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.