Vísbending


Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 39

Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 39
39V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0 börum, veitingastöðum og verslunum öðrum en þeim sem seldu nauðsynjavöru var gert að loka� Á meðan fullorðnir máttu fara út til þess að sækja nauðsynjar voru spænsk börn hneppt í algjört stofufang­ elsi� Athygli vakti að hundaeigendur fengu undanþágu frá útgöngubanninu til þess að viðra dýrin sín� Gönguferðin átti þó að vera stutt og aðeins til þess að fullnægja grund­ vallarhreyfiþörf hundsins� Ekki var minnst á hreyfiþörf barna í reglugerðinni� Af þeim sóttvarnaaðgerðum sem beinast að börnum eru þessar aðgerðir þær hörðustu í Evrópu en spænsk börn máttu ekki yfirgefa heimili sín í 45 daga� Það er erfitt að gera sér í hugarlund þau áhrif sem það hefur á börn að vera innilokuð svo vikum skiptir í litlum íbúðum sem eru ekki hannaðar til þess að dvelja þar löngum stundum� FRAMTÍÐARHORFUR Árið hefur einkennst af miklum samdrætti hjá vestrænum ríkjum en á öðrum ársfjórðungi fór spænska hagkerfið í dýpstu niðursveiflu frá því í borgarastyrjöldinni� Mynd 3 sýnir breytingu á hagvexti valinna Evrópuríkja miðað við sama tímabil árið á undan� Samdráttur á öðrum ársfjórðungi var mestur á Spáni eða 21,5%� Þriðji ársfjórðungur leit betur út hjá flestum Evrópuþjóðum, að Íslandi undanskildu, en hagvöxtur mældist þá neikvæður um 8�7% á Spáni�9 Efnahagslegar afleiðingar faraldursins eru mismiklar eftir löndum� Ástæður fyrir því eru margþættar en þau Evrópuríki sem hafa upplifað mestan efnahagslegan sam­ drátt eiga það sameiginlegt að hafa ráðist í harðar sóttvarna­ aðgerðir� Samkvæmt vísitölu um umfang sóttvarna10 gengu stjórnvöld harðar fram við að draga úr útbreiðslu veirunnar í stærstu hagkerfum Evrópu samanborið við Norðurlöndin� 9 Seðlabanki Íslands og OECD 10 Vísitalan um umfang sóttvarna er gefin út af Oxford en hún vegur saman níu ólíka mælikvarða á aðgerðir stjórnvalda til þess að draga úr útbreiðslu veirunnar og hverstu harkalega þeim er beitt. Heimild: Oxford COVID-19 Government Response Tracker. Ferðatakmarkanir hafa einnig sett stórt strik í reikninginn hjá þeim löndum sem reiða sig á komu ferðamanna en þar eru Spánverjar efstir á lista en hlutur ferðaþjónustu er um 12% af landsframleiðslu samanborið við 8% á Íslandi� Í nýútgefinni skýrslu OECD kemur fram að það muni taka nokkur ár fyrir spænskt efnahagslíf að ná bata en spáin gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi verði áfram mikið� Sóttvarnaraðgerðir og ferðatakmarkanir muni fresta efnahagsbatanum fram að dreifingu bólu­ efnis en spáð er töluverðu bakslagi í efnahagslífinu, eða 12,6% samdrætti á síðasta ársfjórðungi 2020� Það er þó líklegt að hagkerfið taki fljótt við sér þegar ferðatak­ mörkunum verður aflétt� Framleiðsluþættirnir eru til staðar og lítinn undirbúning þarf til þess að Spánn geti tekið við milljónum ferðamanna árlega að nýju� Hins vegar er atvinnuleysi ungs fólks, hækkandi fasteignaverð og pólitísk ólga ekki nýtt af nálinni sem einhverjar stærstu áskoranir sem þjóðin stendur frammi fyrir� Það er spurning hvort Spánverjar nái með endurskipulagningu í kjölfar faraldursins að leggja meiri áherslu á að leysa framangreind vandamál og þannig tryggja betri framtíð fyrir komandi kynslóðir� Heimildir: 1. Instituto Nacional de Estadística (talnaefni) 2. Ministerio de Sanidad: Actualizacion 265 COVID-19 https://www.mscbs.gob.es/profesionales/saludPublica/ccayes/alertasAct- ual/nCov/documentos/Actualizacion_265_COVID-19.pdf 3. OECD (talnaefni) 4. Oxford COVID-19 Government Response Tracker https://www.bsg.ox.ac.uk/research/research-projects/coronavir- us-government-response-tracker 5. Seðlabanki Íslands: Peningamál 2020/3 (talnaefni) 6. World Values Survey 2010-2014 https://www.worldvaluessurvey.org/WVSDocumentationWV6.jsp MYND 3 HAGVÖXTUR Á 2. OG 3. ÁRSFJÓRÐUNGI (% BREYTING FRÁ FYRRA ÁRI) 2020 Q2 2020 Q3 Sp án n Br etl an d Fra kk lan d Íta lía Þý sk ala nd Ísl an d Ho lla nd Sv iss Da nm örk Sv íþj óð No reg ur 0 -5 -10 -15 -20 -25 %

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.