Vísbending - 25.12.2020, Qupperneq 40
40 V Í S B E N D I N G • 2 0 2 0
HVAÐ BER AÐ VARAST Á NÝJU ÁRI?
Þótt heimsfaraldrinum ljúki líklega á næsta ári leynast ýmsar hættur í hagkerfinu sem stjórnmálamenn ættu að vera á varðbergi fyrir� Verðhækkanir á fasteigna og hlutabréfamarkaði gætu orðið
varasamar, auk þess sem samkeppni við láglaunalönd um
komu ferðamanna gætu aukið ójöfnuð, sem nú þegar
hefur aukist töluvert�
Nægar ástæður eru fyrir því að líta björtum augum á
næsta ár� COVID19draugurinn mun að öllum líkindum
verða kveðinn í kútinn eftir að bólusetningar hefjast af krafti
og heimurinn mun opnast hægt og rólega á ný� Við tekur
bataskeið í hagkerfinu, þar sem atvinnuleysi mun minnka,
neysla aukast og framleiðsla vonandi komast aftur í fyrra horf�
Aftur á móti hafa mörg viðvörunarljós kviknað í hagkerf
inu vegna kreppunnar og efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar
gegn henni� Ýmsir greinarhöfundar í Vísbendingu hafa bent á
þessa þróun á síðustu mánuðum, en hugsanlegt væri að næsta
ár fæli einnig í sér miklar verðhækkanir og aukinn ójöfnuð
ef ekkert verður að gert� Hér fyrir neðan eru fjögur atriði
sem hafa ætti auga á í efnahagsmálum á næstu misserum�
MEIRI VERÐHÆKKANIR Á FASTEIGNAMARKAÐI
Eins og rakið hefur verið ítarlega í Vísbendingu á árinu hafa
miklar og hraðar vaxtalækkanir aukið virkni á fasteigna
markaði í miðri kreppu� Á fyrstu tíu mánuðum ársins voru
innlán heimila í bankakerfinu 10 prósentum meiri heldur en
á sama tímabili í fyrra� Húsnæðisverð hafði einnig hækkað
töluvert í október, eða um sex prósent á tólf mánuðum�
Ýmsar vísbendingar eru uppi um að húsnæðisverð muni
halda áfram að hækka� Samkvæmt nóvemberskýrslu Hús
næðis og mannvirkjastofnunar (HMS) eru stórir árgangar
að fara að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaðnum
á næstu árum� Um 47 þúsund manns eru á aldrinum
2229 ára, sem er rúm fjórðungsaukning á fólki á þessu
aldursbili á átta árum� Meðalaldur fyrstu kaupenda er 30
ár, svo búast má við því að fjölga muni í þeim hópi um
nær 10 þúsund á næstu átta árum, miðað við árin á undan�
Með lægri húsnæðisvöxtum og fleiri Íslendingum á
þrítugsaldri má því búast við að eftirspurnin haldist mikil
á fasteignamarkaðnum í náinni framtíð�
Hins vegar, þrátt fyrir aukinn áhuga á nýjum íbúðum
hefur orðið verulegur samdráttur á byggingamarkaðnum,
eins og októberskýrsla HMS greinir frá� Íbúðafjárfesting
dróst saman um 14 prósent á fyrri helmingi ársins og reiknar
Hagstofan með að samdrátturinn hafi haldist svipaður út
árið� Einnig er búist við áframhaldandi samdrætti í íbúðafjár
festingu á næsta ári� Samdráttinn má einnig sjá þegar velta í
byggingariðnaði er skoðuð, en hún dróst saman um tæp 16
prósent á fyrri helmingi ársins, miðað við sama tímabil í fyrra�
Minni fjárfestingar í íbúðum munu leiða til minna fram
boðs af fullkláruðum íbúðum þegar fram í sækir� Þetta sést
í nýjustu talningu Samtaka iðnaðarins (SI), þar sem íbúðir
á fyrstu byggingarstigum í haust voru helmingi færri en á
árunum á undan� Samkvæmt HMS þarf að byggja talsvert
mikið af nýjum íbúðum til að mæta óuppfylltri íbúðaþörf,
en stofnunin vonar að útgáfa svokallaðra hlutdeildarlána
muni hjálpa til við að auka íbúðafjárfestingu aftur�
Gangi það ekki upp má búast við áframhaldandi verð
hækkunum á fasteignamarkaði, þar sem fjöldi kaupenda
eykst á meðan fjöldi lausra íbúða dregst saman� Þetta gæti
sérstaklega orðið vandamál fyrir þá allra tekjulægstu sem
geta ekki sótt sér hlutdeildarlán, en með miklum verðhækk
unum aukast líkurnar á að þeir festist á leigumarkaðnum�
EIGNABÓLA Á HLUTABRÉFAMARKAÐI?
Til viðbótar við verðhækkanir á fasteignamarkaðnum væri
ekki ósennilegt að hlutabréfaverð hækki líka á næsta ári,
sam kvæmt grein sem Eggert Aðalsteinsson, sérfræðingur
hjá Kviku eignastýringu, skrifaði í Vísbendingu fyrr í
mánuðinum�
Í greininni fer Eggert yfir helstu áhrifaþætti verðhækk
ana í Kauphöllinni á árinu, og nefnir þar helst vaxtalækk
anir Seðlabankans og aukinn áhuga fjárfesta á hlutabréfa
markaðnum í kjölfar hlutafjárútboðs Icelandair í haust�
Samkvæmt honum leiddu vaxtalækkanirnar til hækk
unar hlutabréfaverðs á tvenna vegu� Annars vegar jókst
JÓNAS ATLI
GUNNARSSON
hagfræðingur