Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 20206 Sakfelldur fyrir líkamsárás AKRANES: Karlmaður var í Héraðsdómi Vestur- lands 19. mars síðastliðinn sakfelldur fyrir líkamsárás. Var hann sakfelldur fyrir að hafa veist að manni, skallað hann í andlitið svo hann féll í götuna með þeim afleið- ingum að hann hlaut skurð yfir hægra auga. Atvikið átti sér stað á hafnarsvæðinu við Faxabraut á Akranesi aðfarar- nótt 7. júlí 2019. Dómurinn féllst ekki á frávísunarkröfu ákærða, né á þær meiningar hans að sú aðstaða hafi verið uppi í aðdraganda árásarinn- ar að viðbrögð hans hefðu getað helgast af neyðarvörn. Þótti refsing hans, með hlið- sjón af hreinu sakavottorði, hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Manninum var enn fremur gert að greiða allan sakarkostnað. -kgk Stafræn heil- brigðisþjónusta LANDIÐ: Sjúkratrygg- ingar Íslands hafa gefið út gjaldskrá fyrir fjarþjónustu sérgreinalækna sem starfa á stofum utan sjúkrahúsa, ásamt upplýsingum um skil- yrði sem slík þjónusta þarf að uppfylla. Þetta er liður í því að bæta aðgengi sjúklinga að heilbrigðisþjónustu við þær aðstæður sem nú ríkja vegna COVID-19. Sjúkra- tryggingar munu greiða sér- greinalæknum fyrir fjarheil- brigðisþjónustu, þ.e. sím- töl og myndsímtöl, þegar það hentar sjúklingi og þeg- ar skilyrði um slíka þjónustu eru uppfyllt, svo sem fyrir- mæli landlæknis um upplýs- ingaöryggi við veitingu fjar- heilbrigðisþjónustu. -mm Smitandi lifrar- drep í kanínum RVK: Orsök veikinda og dauða mikils fjölda kanína í Elliðaárdal í Reykjvavík er sjúkdómurinn smitandi lifr- ardrep. Þetta sýna niðurstöð- ur rannsókna á kanínuhræj- um sem Matvælastofnun sendi til greiningar á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi sjúkdómur greinist í kanínum utan kanínubúa eða heimila á Íslandi. „ Kanínueigend- ur skulu gæta þess að smit ber- ist ekki í kanínur þeirra með því að kynna sér eðli sjúk- dómsins og hvað hægt er að gera til að verjast smiti. Veiran sem veldur sjúkdómnum sýkir ekki önnur dýr eða fólk,“ segir í tilkynningu. -mm Spili ekki á sparkvöllum VESTURLAND: Sem kunn- ugt er hefur hlé verið gert á skipulögðu íþróttastarfi og -æfingum vegna Covid-19 far- aldursins. Lögreglan á Vestur- landi hefur undanfarið feng- ið tilkynningar um að fjöldi barna og ungmenna hittist til að spila til dæmis fótbolta á sparkvöllum í landshlutanum. Slíkt gengur vitanlega gegn tilmælum sóttvarnalæknis um fjarlægðamörk í samkomu- banninu. „Við hvetjum for- eldra til þess að útskýra fyrir börnum sínum mikilvægi þess að virða nálægðartakmarkan- ir og fylgja þeim fyrirmælum sem gefin hafa verið út,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar. -kgk Vandi sig í verslunum VESTURLAND: Lögregl- an á Vesturlandi segir að helst beri á því að fólk þurfi að vanda sig meira í verslunum, með tilliti til samkomubanns- ins og þeim tilmælum um fjar- lægðamörk milli manna sem beint hefur verið til fólks. Að sögn lögreglu gætir fólk sín almennt, en brögð hafa verið að því að fólk virði fjarlægða- mörk ekki nægilega vel í versl- unum, einkum þegar komið er að afgreiðslukössunum. Skv. upplýsingum frá almanna- varnanefnd Vesturlands hef- ur verið rætt við forsvarsmenn allra matvöruverslana í lands- hlutanum, sem hafa gripið til mikilla ráðstafana vegna Co- vid-19 faraldursins. Flestall- ir eru sammála um að leið- beiningum um tveggja metra fjarlægðarmörk sé ekki nógu vel fylgt en þó megi merkja breytingar til góðs síðustu daga. Lögregla og almanna- varnanefnd vilja því minna fólk mikilvægi þess að fara eft- ir leiðbeiningum sóttvarnaryf- irvalda. -kgk Ríkissaksóknari gaf í síðustu viku út ný fyrirmæli vegna brota á sóttvarnarlögum og reglum sett- um samkvæmt þeim vegna Co- vid-19 faraldursins. Í þeim er meðal annars að finna sektar- ákvæði. Við broti gegn skyldu til að vera eða fara í sóttkví liggur sekt á bilinu 50 til 250 þús. krónur, og sama sektarupphæð liggur við broti gegn skyldum þeirra sem eru í sóttkví. Sekt við broti gegn reglum um einangrun getur hlaupið á 150 til 500 þúsund krónum. Hvað varðar brot á reglum um fjöldasamkomur, þar sem fleiri en 20 koma saman, getur ein- staklingur sem sækir samkomuna átt yfir höfði sér 50 þúsund króna sekt. Sekt forsvarsmanns eða skipuleggjanda viðkomandi sam- komu getur verið á bilinu 250 til 500 þúsund krónur. Þá liggur á bilinu 100 til 150 þúsund króna sekt við broti á reglum um lok- un samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu. Allar sektarupphæðir ákvarðast af alvarleika brota, innan ofan- greindra sektarramma. kgk Fjörtíu og einum starfsmanni Skagans 3X og Þorgeirs & Ellerts á Akranesi var í síðustu viku sagt upp störfum. Er fyrirtækið í hópi nokk- urra íslenskra fyrirtækja sem gripið hafa til hópuppsagna á þessum tím- um óvissu á heimsvísu. Fjölmarg- ir nýta sér auk þess úrræði stjórn- valda að færa starfsmenn tíma- bundið í hlutastörf. Höfðu á mánu- daginn yfir 20 þúsund starfsmenn í landinu, sem starfa hjá um fjögur þúsund fyrirtækjum, sótt um hluta- bætur til Vinnumálastofnunar til að koma í veg fyrir varanlegar upp- sagnir. Að sögn Ingólfs Árnasonar, framkvæmdastjóra Skagans 3X og Þorgeirs & Ellerts, er í tilfelli fyrir- tækja hans um að ræða varúðarráð- stöfun sem gripið er til svo mæta megi þeim breytingum sem verða á mörkuðum fyrir framleiðslu- vörur fyrirtækisins. Nú þurfi ein- faldlega að horfa fram á óþekkt ástand. „Veruleikinn hefur breyst hratt undanfarna daga og við höf- um meðal annars þurft að kalla heim starfsmenn, sem unnið hafa að stórum verkefnum víðs vegar um heiminn. Hvað við tekur veit í raun og veru enginn. Eitt er víst að heimsmyndin breytist og við þurf- um að mæta þeim breytingum,“ segir Ingólfur í samtali við Skessu- horn. Hann bætir við að þannig hljóti öll fyrirtæki um heim allan að vinna þessa dagana. „Það var því óhjákvæmilegt að grípa til varn- araðgerða. Þær eru vissulega sárs- aukafullar en nauðsynlegar. Þær eru vonandi tímabundnar og þeim er ætlað að tryggja betur sókn okkar inná markaðinn þegar hann opnast að nýju. Okkar sannfæring er sú að sá nýsköpunarkraftur sem býr inn- an fyrirtækisins muni nýtast okkur vel í þeim áskorunum sem mæta okkar eftir að þessi ósköp eru yfir- staðin,“ segir Ingólfur Árnason. mm Ný sektarákvæði vegna brota á sóttvarnalögum Uppsagnir og skert starfshlut- fall í kjölfar breyttra aðstæðna

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.