Skessuhorn - 01.04.2020, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 7
Starf verkefnastjóra í fjármáladeild Akraneskaupstaðar
Laust er til umsóknar starf verkefnastjóra í
fjármáladeild stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Um
er að ræða 100% framtíðarstarf. Starfskjör eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
Verkefni í tengslum við fjárhagsáætlun og •
ársuppgjör, m.a. gerð launaáætlana og umsjón
með gerð viðauka.
Umsjón með innheimtu og innheimtuferlum •
Akraneskaupstaðar.
Vinna að rafrænum lausnum.•
Þjónusta og ráðgjöf við önnur svið og stofnanir, •
m.a. fjárhagslegar greiningar og samantektir.
Umsýsla með bókhaldi Höfða, hjúkrunar- og •
dvalarheimilis.
Afleysing í fjarveru fjárreiðufulltrúa.•
Verkefnastjóri er staðgengill fjármálastjóra.•
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi.•
Reynsla af bókhaldi, reikningshaldi, áætlanagerð •
og fjármálastjórnun.
Stjórnunarreynsla og þekking á opinberri •
stjórnsýslu nauðsynleg
Góð greiningarhæfni og færni í upplýsingatækni •
er nauðsynleg
Þekking og reynsla af bókhaldskerfinu Microsoft •
Dynamics NAVISION er æskileg
Rík þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð•
Góð samskipta- og leiðtogahæfni•
Frumkvæði og metnaður að ná árangri í starfi•
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Hafsteinn
Jónsson fjármálastjóri í síma 433-1000 eða á netfangið
thorgeir.jonsson@akranes.is. Sækja skal um
rafrænt í gegnum heimasíðu Akraneskaupstaðar.
Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt
greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til
starfsins.
Akraneskaupstaður er ört vaxandi bæjarfélag með rúmlega 7500 íbúa. Mikil
áhersla er lögð á góða þjónustu við bæjarbúa og fagleg vinnubrögð í stjórnsýsl-
unni. Einkunnarorð sveitarfélagsins eru jákvæði, metnaður og víðsýni.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra,
kynnti á ríkisstjórnarfundi á föstu-
dag 15 aðgerðir á sviði landbúnað-
ar og sjávarútvegs. Er þeim ætlað
að bregðast við áhrifum Covid-19
faraldursins á þessar greinar. Mark-
miðið er að lágmarka neikvæð áhrif
á íslenskan landbúnað og sjávarút-
veg til lengri tíma, en um leið skapa
öfluga viðspyrnu þegar ástandið er
gengið yfir, að því er fram kemur í
tilkynningu frá ráðuneytinu.
Í landbúnaði verða aðgerðirn-
ar eftirfarandi: Íslensk garðyrkja
verður efld til muna með auknum
fjárveitingum og þjónusta og ráð-
gjöf til bænda aukin vegna Co-
vid-19. Tilfærslur verða mögu-
legar á greiðslum samkvæmt gild-
andi búvörusamningum innan árs-
ins 2020, afurðatjón vegna Co-
vid-19 verður skráð og greiðslur til
fólks sem sinnir afleysingaþjónustu
verða tryggðar. Komið verður á fót
mælaborði fyrir landbúnaðinn til að
bæta framsetningu gagna um fram-
leiðslu, birgðir og framleiðsluspár
og óskað eftir liðsinni dýralækna
í bakvarðasveit. Þá verða einnig
gerðar ráðstafanir til að stuðla að
ræktun iðnaðarhamps hér á landi.
Það sem snýr að sjávarútvegi og
fiskeldi er: Að komið verði til móts
við grásleppusjómenn sem lenda
í sóttkví eða einangrun varðandi
lengd veiðitímabils, að afgreiðslu
rekstrarleyfa fyrir fiskeldi verði flýtt
og eftirlit og stjórnsýsla styrkt. Þá
verði aukið fjármagn látið renna til
hafrannsókna, aukið svigrúm gefið
til að flytja aflaheimildir milli fisk-
veiðiára og að vinnu við útgáfu ár-
skvóta deilistofna síldar, kolmunna
og makríls verði flýtt.
Almennar aðgerðir snúa að því að
fallið verði frá áformum um 2,5%
hækukn á gjaldskrá Matvælastofn-
unar til 1. september næstkom-
andi. Auk þess að ráðstafanir verði
gerðar til að tryggja áframhaldandi
starfsemi fyrirtækja í matvælafram-
leiðslu vegna samkomubanns.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Nú í dag, 1. apríl, var Upplýsinga-
miðstöð Vesturlands í Hyrnutorgi
í Borgarnesi lokað. Sveitarfélagið
Borgarbyggð hefur eins og kunnugt
er samið við Ljómalind um að reka
upplýsingamiðstöð í Borgarnesi út
þetta ár. „Mörg önnur sveitarfélög
á Vesturlandi eru líka að reka öfl-
ugar upplýsingamiðstöðvar og því
þótti ekki ástæða til að Markaðs-
stofa Vesturlands ræki upplýsinga-
miðstöð á einum stað í landshlut-
anum, meðan sveitarfélögin væru
að sinna þessari starfsemi á öðr-
um stöðum,“ segir í tilkynningu frá
Markaðsstofu Vesturlands. „Auk
þess hefur ríkið gefið það út að ekki
sé vilji til að styðja fjárhagslega við
mannaðar upplýsingamiðstöðvar,
heldur er það vilji Íslandsstofu að
beina öllu stuðningsfé sem varð-
ar upplýsingagjöf í rafræna miðl-
un. Nú í apríl verður því starfsemi
Vesturlandsstofu/Markaðsstofu
Vesturlands flutt úr Hyrnutorgi í
sama húsnæði og SSV hefur skrif-
stofur sína á Bjarnarbraut 8 í Borg-
arnesi. mm
Árgangur 1982 á Akranesi hefur
hafið fjársöfnun til stuðnings syni
Esterar Óskar Liljan sem lést í
kjölfar slyss á Akranesi 14. febrú-
ar síðastliðinn.
Tilkynning árgangsfélaga er
svohljóðandi: „Kæru íbúar Akra-
ness! Vinir og jafnaldrar Ester-
ar Óskar hafa stofnað söfnunar-
reikning í formi framtíðarreikn-
ings, en Ester Ósk lést í hræði-
legu slysi þann 14. febrúar síð-
astliðinn og skilur hún eftir sig
einn son. Styrkurinn er ætlað-
ur syni Esterar og verður lagður
inn á lokaðan framtíðarreikning á
hans nafni, sem mun nýtast hon-
um sem aðstoð inn í lífið eftir að
hann verður 18 ára gamall. Þeir
sem vilja sína samhug og leggja
söfnuninni lið geta lagt frjáls
framlög inn á eftirfarandi reikn-
ing á nafni Arnars Óla, sonar
hennar: Banki: 0552-18-000236
og kt. 160805-3070. Með von um
góðar undirtektir og samfélags-
lega góðvild.“
mm
Aðgerðir í landbúnaði
og sjávarútvegi
Upplýsingamiðstöð Vesturlands í Hyrnutorgi hefur nú verið lokað.
Búið er að loka
upplýsingamiðstöð Vesturlands
Hefja söfnun fyrir son Esterar Óskar