Skessuhorn - 01.04.2020, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 11
Skagafiskur ehf. • Kirkjubraut 40, Akranesi • Sími: 518 1900
FISKUR ER HOLLUR OG GÓÐUR
Skagafiskur - fiskverslun
Við tökum vel á móti þér
Fylgstu með okkur á /skagafiskur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
Bakvarðasveit í
velferðarþjónustu
Auglýst er eftir starfsfólki til að mynda bakvarðasveit til
tímabundinnar aðstoðar í velferðarþjónustu á Akranesi.
Óskað er eftir liðsinni úr hópi almennra starfsmanna auk
félagsliða, þroskaþjálfa, félagsráðgjafa, sjúkraliða o.fl. sem eru
reiðubúin að koma tímabundið til starfa í velferðarþjónustunni
með skömmum fyrirvara. Reynsla af störfum í velferðar-
þjónustu er kostur en ekki skilyrði. Tímavinna, hlutastarf eða
fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Laun taka mið
af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á
þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Akraneskaupstaðar.
Við viljum hvetja fólk sem hefur tök á að sækja um starf í
bakvarðasveitinni og byggja upp bakverði um allt land.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vegna mikils álags á Hjálparsíma
Rauða krossins, 1717, og netspjall-
ið, 1717.is ákvað félagsmálaráðu-
neytið í síðustu viku að styðja við
þjónustuna. Stuðningurinn mun
efla Hjálparsímann og netspjallið í
að sinna meðal annars fjölskyldum,
börnum og ungmennum, fötluðu
fólki, öldruðum og fólki af erlend-
um uppruna á þeim fordæmalausu
tímum sem nú eru uppi vegna CO-
VID-19. „Það hefur verið gríðar-
leg aukning í samtölum sem okkur
berast síðastliðnar vikur og við höf-
um fjölgað mjög þeim sem svara í
símann. Sjálfboðaliðar hafa brugð-
ist vel við og eru ómetanlegir fyrir
okkar starf,“ segir Kristín S. Hjálm-
týsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða
krossins á Íslandi.
Hjálparsíminn 1717 og netsp-
jallið 1717.is er opið allan sól-
arhringinn þar sem þjálfaðir og
reynslumiklir sjálfboðaliðar á
öllum aldri sjá um að svara þeim
símtölum og skilaboðum sem
berast. Auk þess að styðja við
og efla það starf sem þar er þeg-
ar unnið mun félagsmálaráðu-
neytið tengja Hjálparsímann við
aðra aðila sem veita viðkvæm-
um hópum þjónustu og ráðgjöf,
bæði stofnanir og félagasamtök.
Starfsfólk Hjálparsímans mun
þannig leitast við að greina að-
stæður þeirra sem hafa samband,
veita þeim hefðbundinn stuðn-
ing og vísa þeim á fagaðila sem
gætu boðið viðkomandi frekari
aðstoð eftir eðli vandans. Sér-
stök áhersla verður lögð á að efla
netspjall Rauða krossins, en það
er sú leið sem flest börn og ung-
menni nýta til að hafa samband.
Markmiðið er að tryggja að
greiður aðgangur sé að stuðningi
og aðstoð fyrir þá sem það þurfa,
vegna álags, streitu, ofbeldis,
vanlíðan eða annarra orsaka.
„Þegar álag og streita í sam-
félögum er mikil, leikur stuðn-
ingur og ráðgjöf mikilvægt hlut-
verk. Með þessu samstarfi viljum
við að tryggja að viðkvæmir hóp-
ar í samfélaginu fái nauðsynleg-
an stuðning og þjónustu á þess-
um óvenjulegu tímum,“ segir Ás-
mundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra.
mm
Mikið álag á hjálparsíma
og netspjall RKÍ