Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Side 12

Skessuhorn - 01.04.2020, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202012 Lífið í Covid 19 Viðbrögð sveitarfélaga Nú þegar við stöndum frammi fyrir kórónuveiru og áhrifum sem hún kemur til með að hafa á efnahag fólks og fyrirtækja er mikilvægt að brugðist sé við til að minnka skaðann. Ríkið hefur komið fram með ákveðnar aðgerðir til að milda höggið fyrir almenning og fyrirtæki í landinu en sveitarfélögin þurfa sömuleiðis að bregðast við. Skessuhorn hafði samband við sjö bæjar- og sveitarstjóra á Vesturlandi og ræddi við þá um hvernig eigi að bregðast við í þeirra sveitarfélögum. arg Í Hvalfjarðarsveit er þegar búið að samþykkja tillögur um fyrstu skref sem tekin verða til að bregðast við áhrifum kórónuveirunnar á sam- félagið. „Sem fyrstu viðbrögð við ástandinu hefur sveitarstjórn sam- þykkt nokkrar aðgerðir þegar í stað,“ segir Linda Björk pálsdótt- ir sveitarstjóri í samtali við Skessu- horn. Hún segir þær ákvarðanir sem þegar er búið að taka séu að einung- is skuli greitt fyrir nýtta þjónustu í sveitarfélaginu. „Foreldrar eða for- ráðamenn þurfa ekki að greiða fyrir þjónustu og fæði í leik- og grunn- skóla þá daga sem börnin eru ekki í skólanum. Að auki hefur verið ákveðið að fæðisgjald í grunnskól- anum verði einungis 40% af gjald- skrárfjárhæðinni á meðan ekki sé unnt að bjóða upp á fæði með sama hætti og áður,“ segir Linda. Aðspurð segir Linda að horft sé til þess núna að flýta viðhaldsfram- kvæmdum og öðrum fyrirhuguð- um nýframkvæmdum. „Þetta á til dæmis við um byggingu íþrótta- húss og skipulag og gatnagerð í Melahverfi. Svo eru viðhaldsverk- efni í langtímaáætlun okkar sem við munum líklega færa framar í tíma,“ segir Linda. Ferðaþjónusta er at- vinnugrein sem mun finna mikið fyrir ástandinu en í Hvalfjarðarsveit eru fyrirtæki sem stóla á ferðaþjón- ustuna sem atvinnu. „Við erum að skoða möguleika á að koma með auknum hætti að kynningu og efl- ingu ferðaþjónustunnar í sveitar- félaginu,“ segir Linda og bætir við að ekki sé búið að ákveða með hvaða hætti það verði gert. Varð- andi skatta og önnur gjöld segir Linda að beðið sé eftir frekari leið- beiningum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga „Það er mín tilfinning að flestir séu að bíða eftir leiðbein- andi reglum frá þeim enda er vinn- an þar í fullum gangi og við vilj- um öll finna sem bestu lausnir og bregðast við til að höggið verði sem minnst,“ segir Linda. arg Að sögn Kristjáns Sturluson- ar sveitarstjóra er verið að skoða hvernig megi minnka höggið á fjöl- skyldur í Dalabyggð. „Við erum að skoða aðgerðir bæði til skemmri og lengri tíma. Byggðarráð hef- ur fjallað um málið og þetta verð- ur tekið fyrir á fundi sveitarstjórn- ar núna á fimmtudaginn. Til um- fjöllunar er að fella niður gjöld fyr- ir þjónustu sem fólk er ekki að nýta eins og skólamötuneyti og leik- skólaþjónustu. Einnig hefur verið til umræðu möguleg frestun á fast- eignagjöldum en þetta er allt enn á umræðustigi. Næstu skref eru að fara yfir rekstur sveitarfélagsins út frá þessum breyttu aðstæðum og finna hvaða leið sé best fyrir okkur öll,“ segir Kristján. Til lengri tíma kemur að sögn Kristjáns til greina að fara í framkvæmdir til að efla at- vinnu. „Við vorum með áætlun um töluverðar framkvæmdir á þessu ári og næstu tveimur árum og það kemur til greina að flýta þeim enn frekar. En eitt verðum við að hafa í huga sem er hvort framkvæmdirn- ar hafi áhrif á atvinnu í sveitarfé- laginu. Nú er það þannig að sumar af þessum stóru framkvæmdum sem eru á dagskrá hjá okkur skapa ekki endilega störf hér ef stórir verktak- ar annars staðar frá sjá um þær, þó alltaf séu afleidd áhrif,“ segir Krist- ján og bætir við að þetta sé þó allt til skoðunar. Sér það jákvæða líka „Þetta er allt spurning um hvernig sé best að milda aðstæður fyrir íbúa í Dölum,“ segir Kristján. „Á þess- ari stundu erum við fyrst og fremst að horfa á hvernig best sé að að- lagast óhjákvæmilegum breyting- um í samfélaginu og hvað það er sem kemur sér best fyrir þá sem hér búa,“ bætir hann við. Telur hann að þetta ástand muni hafa varanlegar breytingar í för með sér og hann vonar að þær verði líka til góðs. „Ég hef trú á að við munum nýta tæknina betur þegar þetta er yfir- staðið og til dæmis er ég viss um að styttri fundi munum við frek- ar taka í gegnum fjarfundarbún- að því það bæði sparar töluverð- an tíma og peninga. Svo er maður vissulega ánægður að sjá að í fram- kvæmdapakka ríkisins er Skógar- strandarvegurinn loksins kominn á dagskrá. Þar er löngu kominn tími á framkvæmdir sem ég er viss um að verði mikil lyftistöng fyrir okk- ur í Dölunum og í samfélögunum hér í kring, bæði hvað varðar sam- göngur, ferðaþjónustu og samvinnu sveitarfélaga hér á svæðinu,“ segir Kristján að endingu. arg Þórdís Sif Sigurðardóttir fékk sannarlega stórt verkefni til að takast á við á fyrstu dögum sínum sem sveitarstjóri í Borgarbyggð. Hún lagði áherslu á að koma sér vel inn í mál kórónuveirunnar og segir hún að í Borgarbyggð hafi strax verið ákveðið að mikilvægt væri að koma til móts við fjölskyld- ur og fyrirtæki í sveitarfélaginu á þessum tímum. „Við erum að skoða hvaða leiðir séu bestar og höfum til hliðsjónar leiðbeining- ar frá Sambandi íslenskra sveit- arfélaga,“ segir Þórdís í samtali við Skessuhorn. Hún bendir á að byggðarráð hafi samþykkt á síð- asta fundi sínum að veita aðilum í atvinnurekstri heimild til að óska eftir frestun greiðslna fasteigna- gjalda í allt að þrjá mánuði á árinu og verið sé að fylgjast með hvern- ig málin þróast og skoða leið- ir til að standa vörð um fyrirtæki í samfélaginu. „Við erum með ýmis járn í eldinum og erum til að mynda farin að skoða að flýta framkvæmdum og fara í viðhalds- verkefni sem hefðu kannski beð- ið aðeins lengur við aðrar aðstæð- ur,“ segir Þórdís. „Á svona tímum verða sveitarfélög og ríki að stíga fram til að halda atvinnulífi gang- andi og ég held að við séum í raun mun betur í stakk búin núna en eftir bankahrunið.“ Ánægð hversu jákvætt fólk er Þórdís segist vera nokkuð bjart- sýn á að samfélagið í Borgarbyggð komi sterkt út úr þessum aðstæð- um. „Ég held að þetta komi til með að hafa minni áhrif hér á lands- byggðinni en til dæmis á höfuð- borgarsvæðinu. Starfsemin hér er ólík, við erum meira í frumfram- leiðslu og ég held að áhrifin til lengri tíma verði því minni hér,“ segir Þórdís og bætir við að það sé þó vissulega eitthvað sem tím- inn einn muni leiða í ljós. „Þegar við ákveðum hvernig við munum bregðast við verðum við að sjálf- sögðu með í huga hvað sé fólki og fyrirtækjum hér í sveitarfélaginu fyrir bestu. En þær ákvarðanir sem við höfum þegar tekið er að fólk mun bara borga gjöld fyrir þá þjónustu sem það nýtir, leikskóla- þjónustu, dagvistun og fæðisgjöld og mánaðar- og árskort í sund og líkamsræktarstöðvar verða fram- lengdar sem samsvarar þeim tíma sem lokað verður. Ef fyrirtæki eða fólk lendir í vandræðum viljum við endilega hvetja alla til að leita til okkar og við skoðum hvort og þá hvernig við getum aðstoðað. Ég er virkilega ánægð hversu já- kvætt fólk er og engin sé að kvarta yfir ástandinu, ekki svo maður heyri. Allir virðast bara átta sig á þessari stöðu sem við erum í og sýna ástandinu fullan skilning,“ segir Þórdís. arg Í Snæfellsbæ snýst vinnan núna um að leiðbeina fólki hvernig megi bregðast við ástandinu sem ríkir. Að sögn Kristins Jónassonar er ekki búið að taka ákvarðanir um hvernig sveitarfélagið muni bregðast við til að styðja við íbúa og fyrirtæki. „Það liggur þó ljóst fyrir hjá okkur að við munum gera það sem við get- um til að létta róðurinn hjá íbúum og fyrirtækjum hér í Snæfellsbæ,“ segir Kristinn í samtali við Skessu- horn. „Eins og er erum við á fullu að halda samfélaginu gangandi og veita íbúum upplýsingar og fylgj- ast með upplýsingum frá almanna- vörnum og bregðast við þeim. Þessu ástandi fylgir mikil vinna en samhliða henni erum við að skoða hvað við getum gert til að bregð- ast við. Við höfum þegar ákveðið að fresta gjalddögum á fasteignagjöld- um hjá fyrirtækjum. Eins er ljóst að við munum endurgreiða leikskóla- gjöld þá daga sem fólk er ekki að nýta þjónustuna. Það er ljóst að nú sem aldrei fyrr reynir á okkur og þá verðum við að standa við okkar. Við munum gæta að hagsmunum íbúa hér á svæðinu en eins og er höf- um við ekki komist í að ákveða ná- kvæmlega hvernig við munum gera það. Það er alltaf best að segja stöð- una eins og hún er og svona er hún hjá okkur núna,“ segir Kristinn að endingu. arg Aðgerðir sveitarfélaganna í ljósi aðstæðna Í Dölunum er áhersla á að milda aðstæður fyrir íbúa Kristján Sturluson sveitarstjóri í Dalabyggð. Ljósm. úr safni. Kristinn Jónasson sveitarstjóri í Snæ­ fellsbæ. Ljósm. úr safni Ætla að styðja við íbúa og fyrirtæki í Snæfellsbæ Flýta framkvæmdum í Hvalfjarðarsveit Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. úr safni Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri í Borgarbyggð. Ljósm. úr safni. Ýmis járn í eldinum í Borgarbyggð

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.