Skessuhorn - 01.04.2020, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202016
Lífið í Covid 19
Hver er konan?
Helga Guðjónsdóttir, 51 árs og bý í
Snæfellsbæ. Starfa sem atvinnuráð-
gjafi hjá SSV og sem framkvæmda-
stjóri Samtaka smærri útgerða.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Já, ég hef áhyggjur af heilsu míns
fólks og annarra en ég finn að við
erum í góðum höndum og hef fullt
traust á öllu því góða fólki sem
leggur nótt við dag við að skipu-
leggja baráttuna og takmarka skað-
ann. Auðvitað hef ég líka áhyggjur
af efnahagslífinu, fyrirtækjunum í
landinu, störfum fólks og allri óviss-
unni sem liggur yfir okkur núna.
Þessi niðursveifla verður sennilega
dýpri en nokkur önnur en við erum
áfallaþolin þjóð og við rísum upp
enn einu sinni og vonandi sterkari
en nokkru sinni fyrr.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Faraldurinn hefur áhrif á daglegt
líf okkar allra. Ég held mig mest
heimavið, það er mikil breyting,
engin ferðalög vegna funda. Sam-
skipti við fjölskyldu, vini og vinnu-
félaga fara fram í gegnum síma og
tölvu. Það góða við faraldurinn er
að drengurinn minn sem er við
nám í Reykjavík er kominn heim í
mömmudekur og fjarnám, það er
yndislegt að hafa hann heima.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Ég er vön því að vinna ein og vinn
oft heima þannig að það er ekki
mikil breyting. Breytingin hjá mér
í vinnunni felst helst í því að fund-
ir eru allir rafrænir og ég kann vel
að meta það.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Bara um leið og þær komu fram, ég
er frekar varkár að eðlisfari þannig
að það lá í hlutarins eðli að ég færi
bara eftir því sem mér var sagt.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að fara varlega og fylgja fyrirmæl-
um. En það er líka mikilvægt að
tapa ekki gleðinni. Sem betur fer
er samkenndin í samfélaginu mikil
og við finnum svo vel að við erum í
þessum slag saman.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Ég er ánægð með viðbrögð stjórn-
valda og vona að aðgerðapakkinn
verði til þess að við náum að spyrna
við. Ég er líka ánægð með að vís-
indamennirnir fái að ráða ferðinni í
baráttunni við veiruna.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Ég er nú mjög heimakær þannig að
áhrifin eru minni hjá mér en sum-
um öðrum. Ég reyni að virða fjar-
lægðarmörk þegar ég fer út á með-
al fólks og því fylgja vissulega breytt
samskipti.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Ég reyni að fara sem sjaldnast í búð
og með innkaupalista til að eyða sem
minnstum tíma í búðinni.
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Ég held að lærdómurinn verði mik-
ill og á ýmsum sviðum. Kannski lær-
um við að lifa meira í núinu, hægj-
um á og njótum hvers dags sem okk-
ur er gefinn. Hvernig sem það verð-
ur þá er einnig ljóst að mörg verðum
við tæknilega mun færari en áður.
Við lærum að fjarvinna og fjarfund-
ir geta skilað góðum árangri. Því er
ég viss um að við munum hér eftir
minnka mikið ferðalög milli lands-
hluta vegna funda og fleiri fá tæki-
færi til að sinna störfum sínum án
staðsetningar og geta því valið hvar
þeir vilja búa á landinu.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Ég ætla að leyfa mér að vona að sum-
arið létti okkur lífið og með haustinu
fari allt að falla í eðlilegar skorður.
Kanntu góðan Covid brandara?
Ha, eru þeir til?
Nú þegar Covid-19 faraldurinn er vonandi við það að nálg-
ast hámark hér á landi, fýsti okkur á Skessuhorni að heyra
hljóðið í nokkrum íbúum í landshlutanum. Eftir að hafa
samþykkt þátttöku voru spurningar sendar til fólks og það
beðið að lýsa kjörum sínum, áskorunum og venjum þeg-
ar við þurfum að sæta samkomubanni. Hjá allflestum hef-
ur ástandið teljanleg áhrif. Sumir eru heimavinnandi, jafn-
vel í sjálfskipaðri sóttkví, röskun er á starfi barna, innkaup
til heimilisins eru með öðrum hætti og áfram mætti telja.
Ritstjórn þakkar greinargóð svör en án undantekninga brást
fólk vel við beiðni um að gefa lesendum innsýn í líf þess á
þessum óvenjulegu tímum í lífi þjóðar. mm
Hver er maðurinn?
Sigurður Már Sigmarsson sjúkra-
flutningamaður hjá HVE. 47 ára og
bý á Brekkubraut 4 á Akranesi.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Já, útbreiðslu veirunnar og hvernig
hún leggst á fólk.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Það er auðvitað bara beint heim
eftir vinnu og láta lítið fyrir mér
fara, sem reynist mjög erfitt þar
sem ég er dálítið; „út um allt mað-
ur.“ Sakna smá kossanna og knúsir-
ísins frá mömmu.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Það er búið að stokka upp hópn-
um og það eru tveir sem vinna sam-
an og mega helst ekki hitta hina
hópana. Erum tveir uppi á sjúkra-
bílastöð og þrír niðri á sjúkrahúsi
og tveir úti í bæ. Það er ekki auð-
velt. Mikið púsluspil, en við förum
í gegnum þetta með bros á vör eins
og allt sem við göngum í gegnum.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að fólk passi sig og fari eftir reglum
og bönnum. Haldi geðheilsu og
veri gott við hvert annað.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Stjörnvöld bregðast mjög vel við og
eiga hrós skilið.
Hefur samkomubann áhrif á þig?
Jú, ég hef misst af sjö fermingar-
veislum, tónleikum og hugsanlega
utanlandsferð. Annars er ég bara
góður.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Fer eins sjaldan og hægt er og kaupi
mikið í einu.
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Vonandi helling.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Of lengi. Ég er hræddur um að
ástandið lagist ekki í bráð.
Kanntu góðan Covid brandara?
Jú, jú Stefnir bróðir sagði mér einn
ógeðslegan, en ég læt hann ekki
flakka. Svoleiðis brandara segir
maður ekki upphátt.
Íbúar á Vesturlandi spurðir um
þeirra aðstæður í veirufaraldri
„Faraldurinn hefur áhrif á
daglegt líf okkar allra“
Helga Guðjónsdóttir segist vön því að vinna ein og heima. Því eru viðbrigðin minni hjá henni en mörgum öðrum.
„Mikið púsluspil - en við
förum í gegnum þetta með
bros á vör“
„Jú, ég hef misst af sjö fermingarveislum, tónleikum og hugsanlega utanlands
ferð. Annars er ég bara góður.“