Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Síða 18

Skessuhorn - 01.04.2020, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202018 Lífið í Covid 19 Hver er maðurinn? Bergur Þorgeirsson, forstöðumað- ur Snorrastofu í Reykholti. 62 ára og bý í Þórishúsi í Reykholti. Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og ef já hverju helst? Já, ég hef áhyggjur af Covid-19, ekki síst vegna þeirra sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Já, við hjónin vinnum að mestu heima. Sjálfur fer ég líka í vinnuna í Snorrastofu hinum megin við göt- una, þar sem ég er aðallega í sam- skiptum við fólk í gegnum tölvuna. Erum í raun í sjálfskipaðri sóttkví, enda er 82 ára gamall tengdafaðir minn kominn til okkar úr bænum ásamt Gotta sínum, íslenskum fjár- hundi. Við birgðum okkur vel upp af matvælum til að minnka rápið. Hefur þú þurft að gera miklar breytingar á þinni vinnu? Breytingar á vinnu minni hafa ver- ið miklar. Snorrastofa lokaði gesta- móttökunni mánudaginn 23. mars og hafði þar áður frestað öllum við- burðum um óákveðinn tíma. Að öðru leyti hafa breytingar hjá mér sjálfum ekki verið miklar, truflun við vinnu er minni og hafa því af- köst aukist, t.d. við skýrslu- og áætl- anagerð og rannsóknir, sem kemur sér vel. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Hvenær fórstu að taka alvarlega ábendingar vegna Covid-19? Bara um leið og flestir. Ég fylgi leiðbeiningum stjórnvalda eins vel og ég get, enda njótum við þess hér á landi að búa við miklu betra upplýsingaflæði en flestir. Þann 10. mars rann alvara málsins virkilega upp fyrir mér, þ.e. daginn þegar við hjónin ákváðum að fresta ferð til útlanda í frí þann 16. mars. Að- dragandinn að þeirri ákvörðun var langur, mikið tvístigið, en léttirinn mikill um leið og niðurstaðan varð ljós. Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? Halda góðum tengslum innan fjöl- skyldunnar, fara eftir leiðbeining- um yfirvalda og standa þannig sam- an sem þjóð. Einnig er mikilvægt að gera heimasóttkví að „veislu“, t.d. með því að gefa sér góðan tíma fyr- ir spjall, elda góðan mat, njóta bók- anna sem aldrei vannst tími til að lesa, kíkja á vandað sjónvarpsefni, klára vanrækt verkefni og hreyfa sig, en Reykholt býður upp á fjöl- margar gönguleiðir. Sóttkví getur því reynst ómetanlegt tækifæri. Hvernig finnst þér stjórnvöld vera að bregðast við? Mér finnst stjórnvöld bregðast hár- rétt við og er ég virkilega stoltur af framvarðarsveitinni, sem stýrir að- gerðum. Þá er ég einnig sáttur við björgunarpakka ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert að því að gagnrýna stjórnvöld á þessum erfiðu tímum, en sú gagnrýni þarf að vera upp- byggileg. Það er boltinn sem gildir, en ekki maðurinn. Hefur samkomubann áhrif á þig? Samkomubann breytir minni vinnu töluvert mikið þar sem Snorra- stofa hefur frestað öllum viðburð- um. Bannið hefur hins vegar gert að verkum að ýmislegt hefur kom- ist í verk, sem annars hefði setið á hakanum. Ég virkilega nýt þessar- ar vinnu. Hvernig hagar þú innkaupum í dag? Þar sem við búum langt frá versl- unum eru innkaupaferðir fáar og því mikilvægt að nýta þær vel með magninnkaupum. Í sjálfu sér ekki mikil breyting frá því sem áður var. Hvað munum við Íslendingar læra af þessum heimsfaraldri? Maður lifandi, ég læt mig dreyma um ansi margt í þessu samhengi. Mér fannst ýmislegt í hugarfari breytast til hins betra við hrun- ið 2008, efnishyggjan minnk- aði og fólk hugði betur að and- legum verðmætum. Sama vonast ég til að raunin verði núna. Síðan má minnast á mikilvægi matvæla- öryggis, samstöðu í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, minnk- andi tortryggni gagnvart mennta- fólki (meintri „elítu“), minni múg- sefjun og minni pópúlisma. E.t.v. mun ástandið bægja heiminum frá fasisma og stuðla þannig að meiri samstöðu á heimsvísu með t.d. efl- ingu alþjóðlegra stofnana. Örygg- isventlarnir þurfa að vera til stað- ar, t.d. í sjúkdómavörnum, lofts- lagsmálum og efnahagsmálum. Hversu lengi telur þú að ástandið muni vara? Þetta er skilgreiningaratriði, en erlendir ferðamenn munu tæpast heimsækja Snorrastofu í sumar. Ég vonast til að ástandið verði strax orðið betra hjá okkur í lok apríl, en ég er svartsýnni fyrir hönd ým- issa annarra, eins og t.d. Banda- ríkjamanna. Þeir verða í basli fram á haust. Kanntu góðan Covid brandara? Hann kom til mín frá Magn- úsi, ritstjóra Skessuhorns: „Sam- tök svissneskra geðlækna voru að senda frá sér tilkynningu. Þau vilja bara taka það fram að eins og stað- an er núna þá er fullkomlega eðli- legt að tala við pottablómin, gælu- dýrin og kommóðuna. Þið þurf- ið ekki að hafa samband við þá út af því, þau hafa nógu öðru að sinna. Ef þú færð hins vegar svar frá kommóðunni, endilega hafðu samband...“ Hver er konan? Fjóla Mikaelsdóttir, 30 ára fjögurra barna móðir og bóndi á Kringlu í Miðdölum. Vinn við afleysingar á heilsugæslustöðinni í Búðardal. Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og ef já hverju helst? Já og nei, manni líst ekkert á það ef ættingjar og vinir sem eru aldraðir og veikir fyrir veikjast af veirunni, eða ef við myndum veikjast mikið á sauðburði, þá væri það slæm staða. Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Veiran hefur ekkert rosaleg áhrif á okkar daglega líf. Við vissulega hittum færra fólk, förum minna og börnin eru í heimaskóla, en allt gengur vel og við höfum nóg að gera hér heima við. Hefur þú þurft að gera miklar breytingar á þinni vinnu? Nei ekki hér heima við en það eru auðvitað aðeins breyttar áherslur á heilsugæslunni. Hvenær fórstu að taka alvar- lega ábendingar vegna Co- vid-19? Um leið og það lá ljóst fyrir að veiran væri að breiða úr sér. Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum? Að fara eftir leiðbeiningum sem okkur berast og að huga að fólkinu okkar og nágrönnum. Hvernig finnst þér stjórnvöld vera að bregðast við? Ég tel þau vera að standa sig vel en verð að viðurkenna að ég er ekkert að liggja mikið yfir fréttum og velta mér upp úr þessu dags daglega. Hefur samkomubann áhrif á þig? Já það gerir það varðandi samkom- ur, fundi og slíkt sem við vorum búin að skipuleggja að mæta á, en þetta er ekkert sem maður er að láta á sig fá. Það verður hægt að mæta á árshátíðir og annað seinna. Hvernig hagar þú innkaupum í dag? Ekkert öðruvísi en vanarlega enda með stórt heimili og vön að versla mikið í einu fyrir marga munna. Hvað munum við Íslendingar læra af þessum heimsfaraldri? Ég vona að allir hafi lært að þvo hendur almenilega... Nei, nei ég vona bara að þetta hafi opnað augu fólks fyrir því að lifa í núinu og virða þann tíma sem við eigum. Maður er aðeins of gjarn á að halda að maður hafi nóg af honum, t.d. til að heim- sækja vini og ættingja og gera alls- konar hluti. Hversu lengi telur þú að ástandið muni vara? Ég hef ekki hugsað það mikið út, en auðvitað leyfir maður sér að vera bjartsýnn og vona að þetta gangi yfir á nokkrum vikum bara. Kanntu góðan Covid brandara? Nú skil ég af hverju allir eru að hamstra klósettpappír. Ef einhver hnerrar út í loftið á almannafæri, þá skíta 100 manns í brækurnar! „Veiran hefur ekkert rosaleg áhrif á okkar daglega líf“ Útivera í sveitinni. Kaffitími við matarborðið heima í Kringlu. „Ef til vill mun ástandið bægja heiminum frá fasisma og stuðla þannig að meiri samstöðu“ Bergur við vinnu sína í Snorrastofu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.