Skessuhorn - 01.04.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 21MIÐVIKUDAGUR 12. FEB ÚAR 20
Lífið í Covid 19
Hver er maðurinn?
Gísli Jens Guðmundsson, rakari,
49 ára, bý á Smáraflöt 15 á Akra-
nesi og rek Rakarastofu Gísla.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19,
og ef já hverju helst?
Já það hef ég, ég hef auðvitað allra
mest áhyggjur af fólki sem veikist
af þessum fjanda og einnig af fyrir-
tækjum sem koma illa út úr þessu
og framtíð þeirra. En ég er ekki í
nokkrum vafa að við vinnum okk-
ur út úr þessu og komum niður á
löppunum.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Þessa dagana get ég ekki unn-
ið mína vinnu og fyrirtækið lok-
að í óákveðinn tíma og svo hitti ég
nánast ekkert mitt fólk bara til að
vera öruggur. Tek bara meira á því
heimavið við tiltekt og fleira.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Já, þarf að loka fyrirtækinu, en er
bara rólegur þar sem ég hef ekki
tekið svona frí frá vinnu í ein 20 ár.
Svo þetta er alveg nýtt fyrir mér.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Ég gerði það nú bara fljótlega eft-
ir janúar. Þá svona skoðaði maður
þetta betur.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að passa upp á sig og sína og vera
ekki að taka óþarfa áhættu, virða
boð og bönn. Þetta er tímabund-
ið og við hljótum að geta verið
þolinmóð og tekið á þessu saman,
og svo auðvitað vera jákvæður því
þessu linnir.
Hvernig finnst þér stjórnvöld
vera að bregðast við?
Algjörlega frábærlega tala nú
ekki um þríeykið sem eru búið að
vinna ómetanlegt starf.
Hefur samkomubann áhrif á
þig?
Já, það hefur það, þarf að hafa
lokað í vinnunni hjá mér, en ég
hef nú ekki áhyggjur af því í allri
þessari tækniveröld með síma og
fleira. Eins og ég sagði fyrr er
þetta tímabundið og bara vera
þolinmóður, það má leika sér
með Snapchat og fleira en auð-
vitað eldra fólk sem kann ekki á
svona græjur. Ég hef áhyggjur
af því fólki, hugsið ykkur gamalt
fólk; hjón sem mega jafnvel ekki
hittast. Það er hrikalegt.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Það fer bara einn úr fjölskyldunni
með lista til að vera sem fljótastur
í búðinni. Maður gerir bara eins og
þríeykið segir.
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Ég veit ekki. Standa betur saman,
við hugsanlega róumst aðeins nið-
ur og lærum að vera sjálfum okkur
nóg.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Vona sem styst en ég held þetta
verði fram á mitt sumar. Það er auð-
vitað undir okkur komið. Við verð-
um að virða bönnin og haga okkur
í samræmi við þetta því ef við ger-
um það ekki tekur þetta bara lengri
tíma.
Kanntu góðan Covid brandara?
Ekki brandara en það eru auðvitað til
mörg myndbönd sem svífa um þessa
dagana á Facebook og Snapchat.
Hver er konan?
Harpa Harðardóttir. Ég er 42 ára
hárgreiðslukona á Classic hár-
stofu á Akranesi.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19,
og ef já hverju helst?
Já og þá einna helst efnahagn-
um.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn
á þitt daglega líf?
Mikil. Það er búið að setja vinnu-
bann á hárgreiðslufólk, svo núna
er ég bara heima. Reyndar er öll
fjölskyldan heima.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Já, við byrjuðum á því að sótt-
hreinsa allt á stofunni á milli
kúnna. En nú er búið að loka.
Við náum ekki tveggja metra
fjarlægðinni, svo maður skilur
þetta vel og maður þarf bara að
vera þolinmóður og jákvæður.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Þegar fyrsta smitið greindist á
Íslandi.
Hvað finnst þér mikilvægast á
þessum tímum?
Að við hlýðum Víði! Og að við
séum jákvæð og reynum að njóta
samverunnar með fjölskyldunni.
Hvernig finnst þér stjórnvöld
vera að bregðast við?
Mjög vel og þríeykið er stórkost-
legt.
Hefur samkomubann áhrif á
þig?
Já eitthvað, þarf að fresta afmæli
hjá syni mínum, en það verður bara
haldið upp á það þegar samkomu-
bannið er búið, svo þurfti systir mín
að fresta brúðkaupinu sínu.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Kaupum meira inn í einu og förum
sjaldnar.
Hvað munum við Íslendingar
læra af þessum heimsfaraldri?
Vonandi bara margt jákvætt, ef allir
standa saman þá er þetta hægt.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Víðir talaði um að það færu allir út
að grilla saman fystu helgina í júlí.
Það er frábært þá eru Írskir dagar.
Kanntu góðan Covid brandara?
Sóttvarnarlæknir: Til að koma í
veg fyrir Covid-19 smit er best að
vera heima hjá sér, forðast líkam-
lega snertingu og forðast fjölmenn-
ar samkomur. Akurnesingar: Við
erum búin að vera að æfa okkur fyr-
ir þetta alla ævi!
Hver er maðurinn?
Ingi Hans og er Jónsson og gerir
sem mest af litlu. Karlinn er 65 ára
og býr og starfar að Læk í Grund-
arfirði.
Hefurðu áhyggjur af Covid-19, og
ef já hverju helst?
Já. Heilsu margra er ógnað af veiru
sem við kunnum ekki skil á og höf-
um takmarkaða möguleika á að tak-
ast á við. Sú almenna óvissa breytir
daglegu lífi talsvert og það öryggi
sem við flest höfum búið við er að
baki um sinn.
Hvaða áhrif hefur faraldurinn á
þitt daglega líf?
Nú er lítið um flæking og félags-
skap. Svo maður dregur sig bara
í hlé og dundar heima við ýmis-
legt sem ógert var. Það er vissulega
hollt. Ég á jafnvel von á að ég klári
að koma fyrir gólflistunum.
Hefur þú þurft að gera miklar
breytingar á þinni vinnu?
Nei, verkefnin eru bara hér heima
hvort sem er.
Hvenær fórstu að taka alvarlega
ábendingar vegna Covid-19?
Strax í upphafi.
Hvað finnst þér mikilvægast á þess-
um tímum?
Ég held að það sé mikilvægt að átta
sig á því hve heppin við erum, sam-
anborið við fyrri plágur þar sem
bjargir voru engar.
Hvernig finnst þér stjórnvöld vera
að bregðast við?
Viðbrögðin eru stórkostleg. Bæði
er brugðist við heilsufarsvá af teymi
sérfræðinga sem gengur fram af ör-
yggi og festu. Þar er blandað saman
fjölbreyttri þekkingu fólks sem hef-
ur þægilega nálgun og talar manna-
mál. Ég hef reyndar þekkt Víði
Reynisson frá því hann var ungur
maður í björgunarsveit. Hann kann
að hlusta, setja sig inn í aðstæður og
leita bestu lausna. Honum treysti
ég fyrir lífi mínu. Þá er áhugavert
að velta því fyrir sér hve heppin við
erum að hafa ríkisstjórn sem skipuð
er ungu vel menntuðu fólki. Fólki
sem sýnt hefur kjark til að horfa
þvert á hefðbundnar skilgreining-
ar. Í raun er ég alltaf stjórnarand-
stæðingur en framganga þessa for-
ystufólks heillar mig.
Hefur samkomubann áhrif á
þig?
Já, það hefur það en það gerir ekk-
ert til. Hlakka bara til næst.
Hvernig hagar þú innkaupum í
dag?
Sko í upphafi keypti ég mér kassa
af Kók og annan af prins pólói.
Síðan nóg af harðfiski og smjöri og
dass af kaffi. Þannig taldi ég dög-
um mínum borgið. En allt gengur
til þurrðar að lokum og er nú svo
komið. Þá skrönglast ég í búðina
eftir nýjum birgðum. Að öðru leyti
höfum við hjónin reynt að versla
til viku í senn.
Hvað munum við Íslendingar læra
af þessum heimsfaraldri?
Trúlega ekkert annað en hvernig á
að þvo sér um hendurnar.
Hversu lengi telur þú að ástandið
muni vara?
Til 1. júní.
Kanntu góðan Covid brandara?
Hugi Ólafsson er skrifstofustjóri í
Umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
inu og ágætur hagyrðingur. Hann
orti um það er Karl Bretaprins
greindist með kórónuveiruna:
Á því hafði enginn trú
í erfðaveldi Breta:
Með kórónu er Kalli nú
en kollótt gamla Beta.
„Verum jákvæð og reynum
að njóta samverunnar með
fjölskyldunni“
„Í raun er ég alltaf stjórnarandstæðingur en
framganga þessa forystufólks heillar mig“
„Tek bara meira á því heimavið við tiltekt og fleira“
„Ég hef ekki tekið svona frí frá vinnu í ein 20 ár, svo þetta er alveg nýtt fyrir mér.“