Skessuhorn


Skessuhorn - 01.04.2020, Page 23

Skessuhorn - 01.04.2020, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 2020 23 Engum dylst að ferðaþjónust- an stendur höllum fæti um þess- ar mundir vegna áhrifa Covid-19 á heimsbyggðina. Markaðsstofa Vesturlands hefur fylgst náið með gangi mála. Gerð var könnun með- al ferðaþjónustufyrirtækja í lands- hlutanum og í tölvupósti sem ný- verið var sendur hagaðilum ferða- þjónustunnar á Vesturlandi, segir Margrét Björk Björnsdóttir, for- stöðumaður Markaðsstofu Vest- urlands, að margt ferðaþjónustu- fólk sé uggandi yfir stöðunni. Þeir sem hafi fyrstir svarað könnuninni hafi reynt að bera sig vel, en síðan hafi hallað mjög hratt undan fæti. Staða ferðaþjónustunnar á lands- byggðinni sé mjög erfið um þess- ar mundir, enda búi atvinnugreinin þar enn við miklar árstíðasveiflur. Ferðaþjónustan hafi gengið í gegn- um erfiða tíma síðastliðið ár og eigi því ekki til varasjóð til að mæta þessum skelli sem nú dynur yfir. Markaðsstofa Vesturlands hefur því unnið að allmörgum aðgerðum til að reyna að styðja við ferðaþjón- ustuna í landshlutanum. Árgjald vegna aðildar að markaðsstofunni hefur þannig verið lækkað úr 50 þús. krónum í 15 þús. krónur fyrir árið 2020. „Mikilvægt er að ferða- þjónustufyrirtæki séu í formlegu samstarfi við Markaðsstofu Vest- urlands til að við getum sýnt sam- stöðu atvinnugreinarinnar og fáum þannig meira vægi í samtali okk- ar við stjórnvöld,“ segir Maggý í samtali við Skessuhorn. „Einnig er mikilvægt að efla enn frekar sam- starf í vöruþróun og markaðsmál- um, en miðað er við að þau fyrir- tæki sem taka þátt í markaðsvinnu, vöruþróunar- og framfaraverkefn- um með okkur, séu formlegir sam- starfsaðilar Markaðsstofu Vestur- lands,“ bætir hún við. Markaðssetning framundan Tíu milljónum hefur verið úthlut- að úr Sóknaráætlun Vesturlands í áhersluverkefnið „Efling ferða- þjónustunnar á Vesturlandi“ fyr- ir árið 2020. Einnig hefur verið ákveðið að nota peninga frá sókn- aráætlun til að gera markaðsefni sem mun nýtast Vesturlandi öllu, bæði ljósmyndir og stuttar kynn- ingarmyndir. Samið hefur verið við framleiðslustofuna Tjarnargöt- una um að vinna heildstætt mark- aðsefni sem verður notað í vinnu markaðsstofunnar og samstarfsað- ilar geta notað til kynningar á Vest- urlandi. „Myndatökur hófust í síð- ustu viku,“ segir Maggý, en einnig verður ráðist í markaðsátak í sam- starfi við Ferðamálastofu og mark- aðsstofur annarra landshluta til að hvetja Íslendinga til að ferðast inn- anlands. FMS hefur ráðið auglýs- ingastofu til að leiða það verkefni. „Verið er að móta þessa vinnu og vonandi fáum við meira efni um þetta í þessari viku svo við getum upplýst samstarfsaðila okkar bet- ur um verkefnið,“ segir hún. „En í tilefni af þessari vinnu hvetjum við ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi til að uppfæra heimasíður og kynn- ingarefni sitt á íslensku. Einnig bendum við ferðaþjónustuaðilum á að bjóða upp á tilboð sem byggja á því að viðskiptavinurinn framvísi ferðaávísun stjórnvalda sem stend- ur til að senda öllum Íslending- um yfir 18 ára til að nýta í ferðalög innanlands 2020,“ segir Maggý. Þá er Íslandsstofa að undirbúa mark- aðsátak sem einnig verður unnið í samstarfi við markaðsstofur lands- hlutanna og fleiri hagaðila, þar sem áherslan er á ímynd Íslands og er- lendan markað. Sú vinna hefur ekki verið mótuð en unnið er að útboði, þar sem verkefnið er afar stórt í sniðum. Unnið að ferðaleiðum Þá er áfram unnið að þróun áfanga- staðaverkefna Vesturlands. Hafin er vinna við gerð ferðaleiða á öll- um svæðum. Vinna við ferðaleið um Akranes og Hvalfjörð er að fara af stað, sem og ferðaleið um Borgarfjörð. Leið um Snæfellsnes er í vinnslu hjá Svæðisgarðinum og vinna við Vestfjarðaleiðina, um Vestfirði og Dali, er í fullum gangi í samvinnu við Vestfjarðastofu. „Mikilvægt er að fá sem flesta og fjölbreyttasta ferðaþjónustu með í þessi samstarfsverkefni til að hægt sé að kynna þá þjónustu á þess- um ferðaleiðum,“ segir Maggý og bætir því við að sömuleiðis þurfi að uppfæra og endurnýja aðgerða- áætlun fyrir Áfangastaðaáætlun Vesturlands á þessu ári og gera nýja aðgerðaáætlun sem gildir til næstu þriggja ára. „Í drögum að breyting- um á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða er kveðið á um að þau verkefni sem sótt er um upp- byggingarstyrki fyrir til ríkisins þurfi að vera skráð í aðgerðaáætlun áfangastaðaáætlunar viðkomandi landshluta. Því þurfum við að sam- einast um vinnu við nýja aðgerða- áætlun,“ segir hún. „Við þurfum að hafa hraðar hendur um það, því stefnt er að því að opna fyrir um- sóknir í Framkvæmdasjóð ferða- mannastaða í september og úthluta fyrir áramót 2020,“ segir Maggý. Þá má geta þess að rekstri Upp- lýsingamiðstöðvar Vesturlands í Hyrnutorgi í Borgarnesi hefur ver- ið hætt, eins og greint er frá í ann- arri frétt í Skessuhorni vikunnar. Starfsemi Markaðsstofunnar flyt- ur því úr Hyrnutorgi að Bjarna- braut 8 í Borgarnesi, þar sem Sam- tök sveitarfélaga á Vesturlandi eru til húsa. kgk/ Ljósm. mm. Flutningaskipið Hagland Carrier lagðist að bryggju í Grundarfirði síðasta dag mars mánaðar þar sem skipað var upp ellefuhundruð tonn- um af salti. Saltið fer allt í hús í salt- skemmu Saltkaupa sem er á hafnar- svæðinu þaðan sem það verður svo afgreitt í framtíðinni. tfk Á fundi bæjarstjórnar Akraness í síðustu viku var samþykkt að skora á heilbrigðisyfirvöld að byggja upp bætta heilbrigðisþjónustu í bæjar- félaginu með uppsetningu á blóð- skilunarvél á sjúkrahúsinu á Akra- nesi. Um leið er ítrekuð ósk þar að lútandi til heilbrigðisráðherra frá árinu 2017. Bent er á að jafn- ræðis er ekki gætt í heilbrigðis- þjónustu við íbúa á þjónustusvæði HVE sem þurfa að fara í blóðskil- un til höfuðborgarsvæðisins og íbúa sem njóta þjónustu heilbrigð- isstofnana á stór-Reykjavíkursvæð- inu og geta sótt þjónustuna í nær- umhverfi sínu. „Sjúklingar í þessari stöðu á Akranesi og nágrenni eru háðir aðstoð sinna nánustu eða ein- hverra frá sveitarfélaginu því með- ferð af þessum toga, sem er þeim lífsnauðsynleg, getur tekið allt að 6 til 7 klukkustundir í senn í nokkur skipti í viku hverri og eiga viðkom- andi eðli máls samkvæmt ekki kost á að nýta almenningssamgöngur eða keyra eigin bíl,“ segir í áskorun bæjarstjórnar. Þá segir: „Allar forsendur eru til staðar við HVE á Akranesi til að taka upp þessa þjónustu og sem kunnugt er býr stofnunin yfir mik- lum mannauði og vilja og hefur veitt öfluga heilbrigðisþjónustu á öllu Vesturlandi. HVE er tilbúið að taka við auknum verkefnum og áskorunum eins og raun ber vitni með tilvísun í samþykkt heilbrigðis- ráðherra frá því í október 2019 um að gera sjúkrahúsið á Akranesi að miðstöð liðskiptaaðgerða á mjöð- mum og hnjám.“ mm Vilja blóðskilunarvél á HVE á Akranesi Rúmlega þúsund tonn af salti í land Ferðamenn við Djúpalónssand. Markaðsstofa Vesturlands bregst við ástandinu Margrét Björk Björnsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.