Skessuhorn - 01.04.2020, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 1. ApRÍL 202026
Í ljósi þess að heimsóknir eru bann-
aðar á dvalar- og hjúkrunarheimil-
um brugðu meðlimir í leshópnum
Köttur út í mýri í Grundarfirði á
það ráð að nýta tæknina til að lesa
upp úr bók fyrir íbúa á dvalarheim-
ilinu þar í bæ. Konurnar í leshópn-
um fá að nýta aðstöðu á kirkjuloft-
inu í samvinnu við sóknarprest og
organistann sem settu þar upp lítið
hljóðver. Hjördís Hlíðkvist Bjarna-
dóttir hefur séð um lesturinn en
hún hefur oft farið á dvalarheimilið
að lesa fyrir íbúa þar. „Þau þekkja
hana öll og hún les svo fallega og
skýrt,“ segir Lilja Magnúsdóttir,
ein af meðlimum leshópsins, í sam-
tali við Skessuhorn. Fyrsti lesturinn
var á fimmtudaginn í liðinni viku
en áætlað er að lesa einn kafla í einu
á fimmtudögum og mánudögum
og varð bókin Ofurefli eftir Einar
Kvaran fyrir valinu að þessu sinni.
„Lesturinn tekur um 30 mínútur
í senn og yfirleitt byrjar Hjördís
og endar á smá umræðu um dæg-
urmálin hér í Grundarfirði,“ segir
Lilja og bætir við að hún pósti slóð
af upplestrinum á Youtube á sam-
eiginlega íbúasíðu Grundarfjarð-
ar á Facebook svo allir íbúar geti
hlustað ef þeir vilja.
Auk þess að lesa fyrir eldra fólk-
ið hefur Lilja, sem einnig er starfs-
maður á skólabókasafninu í Grunn-
skóla Grundarfjarðar, lesið fyrir
yngstu kynslóðina í gegnum Fa-
cebook síðu bókasafnsins. Þar er
hún, ásamt hundinum Legó, að
lesa barnabókina Kattasamsærið
eftir Guðmund Brynjólfsson og les
hún tvo kafla í einu. Upplesturinn
er hægt að finna á Facebook síð-
unni Viskubrunnur - Bókasafn og
upplýsingaver Grunnskóla Grund-
arfjarðar, og getur fólk hlustað hve-
nær sem er.
arg/ Ljósm. tfk.
Lestrarklefinn auglýsti á dögunum
eftir textum til að frumbirta á vef-
síðu sinni. Hugmyndin er að birta
texta eftir nýja, gamla, reynda eða
óreynda höfunda í þeim tilgangi að
koma nýjum höfundum á framfæri.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir
marga til að stíga út fyrir þæginda-
rammann og þekktari höfunda að
viðra nýja texta,“ segir í auglýsing-
unni. Engar reglur eru um þá texta
sem fólk getur sent inn en fram
kemur að aðstandendur Lestrar-
klefans lesi yfir þá og velji úr til að
birta. Áhugasamir skulu senda text-
ana sína á netfangið lestrarklef-
inn@lestrarklefinn.is ásamt mynd
og stuttri kynningu á höfundi. arg
Ein af þeim sögum sem hafa fylgt
mér síðan ég var barn er sagan um
Bláu könnuna. Sagan, sem er eft-
ir Alice Williamson, fjallar um litla
bláa könnu sem leiðist uppi á hill-
unni sem hún er á. Hún hittir fyr-
ir fjöldan allan af fólki sem á leið
hjá og biður það um að hjálpa sér
niður, henni er neitað um bón sína
í hvert sinn, alveg þangað til að
svarti kötturinn með rauðu augun
mætir á svæðið. Og þeir sem hafa
lesið alla þessa bók vita hvernig það
stefnumót endar, tómleikinn sem
þið hafið fundið við flettingu þess-
arar bókar er eðlilegur. Það sem
slær mig mest þegar ég fletti bók-
inni er að kannan er svo glöð þeg-
ar hún er komin af stað þegar kött-
urinn ýtir henni niður, hún brosir
alla leiðina niður. Svo þegar hún
liggur brotin á gólfinu sjáum við
votta fyrir tárum. Kötturinn myrð-
ir könnuna og við sem lesum bók-
ina stöndum hjálparlaus og horf-
um á.
Bláa kannan er sú fyrsta í röð
smábarnabóka sem kallast því
skemmtilega nafni „Skemmtilegu
Smábarnabækurnar“ og er undir-
ritaður sammála því að hluta til
sökum þessarar bókar. Græni hatt-
urinn er ekki að hjálpa til. Ég hef
lesið flestar bækurnar sjálfur þegar
ég var ungur að árum og svo fyr-
ir strákana mína. Buni Brunabíll,
Hamingjusami maðurinn og vöru-
bíllinn hans eru í uppáhaldi, Litla
rauða hænan er ansi sterk líka.
En aftur að Bláu könnunni, hvers
vegna er ég að skrifa um hana? Eft-
ir lestur á henni standa eftir spurn-
ingar; hvers vegna vildi kannan fara
niður og hvers vegna vildi enginn
hjálpa henni? Og stóru spurning-
arnar! Hvaðan kom allt þetta fólk?
Hvar er Bláa kannan? Ég er ekki
einn um þessar hugrenningar. Á
vefnum er að finna ítarlega grein-
ingu á þessu verki Alice William-
son, sú grein ber heitið; „Heim-
speki eymdarinnar“ eftir Arngrím
Vídalín, aðjunkt í íslensku og bók-
menntafræðing. Bláa kannan er
túlkuð af greinarhöfundi sem eins
konar kristsmynd. Hann segir boð-
skap hennar tekið fálega meðal
þeirra sem valdið hafa (fólkið sem
Bláa kannan talar við) til að breyta
heiminum (sem í þessu tilviki er
hilla), hún reynir að ná til fólks-
ins í kringum sig en er að lokum
svikin og tekin af lífi. Á öftustu síðu
er hún svo risin aftur upp til æðri
tilveru, svona eins og Jesú. En er
kannan Jesú?
Önnur pæling sem greinarhöf-
undur býður upp á er öllu senni-
legri og mér hugnast hún betur,
hún „fittar bilið“ betur. Sú túlkun
tengir Bláu könnuna við þá stór-
kostlegu mynd Brazil eftir Monty
python-liðan Terry Gilliam. Tóm-
leikinn sem lesandinn finnur við
lestur bókarinnar passar nákvæm-
lega við tilfinninguna þegar við
sjáum persónu Jonathan pryce
heiladauðan í lokin. Það sem við
sáum í myndinni voru hinstu hug-
renningar aðalpersónunnar, alveg
eins og þegar við sjáum Bláu könn-
una stráheila á síðustu blaðsíð-
unni. Bláa kannan óskar sér burtu
á betri stað en raunveruleikinn er
svo miklu kaldari. Bláa kannan er
dauð og verður aldrei meir. Terry
Gilliam hefur, eins og Arngrímur
skrifar svo réttilega, örugglega haft
Bláu könnuna sem fyrirmynd fyr-
ir þessa mynd sína. Það getur ekki
annað verið. Bláa kannan fjallar um
falsvon, um upprisu og betri tíð
sem kemur ekki. En samt, ég mun
örugglega lesa Bláu könnuna aftur.
Þetta eru alvöru bókmenntir, al-
vöru stöff, ekki bara um Hagamús
sem týnist frá mömmu sinni.
Aðrar bækur sem gætu snúist
um annað en þær virðast vera, eru
dýpri en þær virðast vera: pipar-
kökudrengurinn, Hamingjusami
maðurinn og vörubíllinn hans og
Litla rauða hænan.
Góðar stundir,
Axel Freyr Eiríksson
Hún var lukkuleg landlæknirinn
Alma D. Möller nýverið þegar hún
setti meðfylgjandi mynd á Facebo-
ok síðu sína, með orðunum: „Við
Þrjú á palli urðum mikils heiðurs
aðnjótandi þegar þessi fallegi hrút-
ur, sem fæddist í Stórholti í Saurbæ,
fékk nafnið Þórólfur Víðir Möll-
er.“
Það eru margir sem senda hlýja
strauma til þríeykisins um þessar
mundir, enda hefur þjóðin ekki
um neitt annað að velja en leggja
fullt og óskorað traust á þá ein-
staklinga sem standa í framlín-
unni og raunar alla sem að máli
koma.
mm
Pstiill - Axel Freyr Eiríksson
Af Bláu könnunni
Lilja græjar fyrir
útsendingu.
Lesa fyrir íbúa í Grundarfirði
Hjördís Hlíðkvist Bjarnadóttir og Lilja Magnúsdóttir í hljóðveri á kirkjuloftinu.
Þórólfur Víðir Möller
Lestrarklefinn ætlar að
frumbirta texta