Skessuhorn - 13.05.2020, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 20. tbl. 23. árg. 13. maí 2020 - kr. 950 í lausasölu
Tilboð gildir út maí 2020
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Bérnaise burger meal
1.890 kr.
Máltíð
Við opnum aftur með breyttum opnunartíma
arionbanki.is
Útibúið okkar í Borgarnesi opnar aftur þriðjudaginn 12. maí og verður opið alla virka daga
kl. 12.30–16.00 þar til nýjar leiðbeiningar um samkomur verða gefnar út.
Við hvetjum viðskiptavini til þess að nýta áfram stafrænar þjónustuleiðir bankans.
Þú �innur nánari upplýsingar og leiðbeiningar um notkun Arion appsins á
arionbanki.is/app. Þú getur líka haft samband við þjónustuverið í síma 444 7000.
Við leggjum enn áherslu á tímabókanir í útibúinu og hvetjum viðskiptavini til að bóka fund
með því að panta símtal á arionbanki.is. Við hringjum síðan til baka og festum tíma.
Þjónusta vegna bókaðra funda er frá 9–16 alla virka daga.
Einn liður í tiltekt Kristjáns Þórs Júlíussonar, landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra, í laga- og reglugerðasafni ráðuneytis hans, er stjórnarfrumvarp sem
felur m.a. í sér að fella niður skyldu bænda til að marka lömb að vori. Þannig
vill til að frá landnámi hefur sauðfé verið markað og fjáreigendur þannig getað
sýnt fram á eignarrétt sinn með óyggjandi hætti. Engin beiðni hefur enda borist
frá bændum sjálfum um að afleggja þann sið að marka fé sitt og sömuleiðis
engar líkur á að þeir fari eftir þessari heimild ráðherrans. Í Skessuhorni í dag er
meðal annars rætt við Þóri Finnsson, bónda á Hóli í Norðurárdal og markavörð
Mýrasýslu. Sauðburður er nú að hefjast hjá Þóri. Hér er hann nýbúinn að marka
lamb og móðirin fylgist grannt með. Markið er hangfjöður aftan hægra og blað-
stýft aftan vinstra, líkt og móðirin ber og formæður hennar sömuleiðis kynslóð
fram af kynslóð. Sjá nánar á bls. 20. Ljósm. mm.
Áhöfnin á netabátnum Bárði
SH-81 frá Ólafsvík hefur nú sleg-
ið Íslandmet í vertíðarafla netabáta.
Aflinn var 2.311 tonn af óslægð-
um afla upp úr sjó en fyrra metið
átti áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur
VE sem landaði 1.917 tonnum ver-
tíðina 1989. „Þetta var erfið vertíð
vegna stöðugrar ótíðar,“ sagði Pét-
ur Pétursson, útgerðarmaður og
skipstjóri, í samtali við Skessuhorn,
en þrátt fyrir rysjótta tíð lönduðu
þeir 1.019 tonnum í mars.
Áhöfnin á Bárði SH er á með-
fylgjandi mynd. Frá vinstri; Pétur
Pétursson yngri, Eiríkur Gauts-
son, Guðjón Arnarson, Svein-
björn Benediktsson, Pétur Péturs-
son eldri, Jóhann Eiríksson, Helgi
Bjarnason, Sæbjörn Ágústson,
Slógu Íslandsmet netabáta
Markaðsstofa Vesturlands, ásamt
Samtökum sveitarfélaga á Vest-
urlandi, boðaði til streymisfund-
ar í gærmorgun, þriðjudaginn 12.
maí. Þar voru kynnt ýmis verkefni
sem unnið er að til eflingar ferða-
þjónustunnar á Vesturlandi. Ber
þar hæst að ákveðið hefur verið að
styðja ferðaþjónstuna sérstaklega í
ár vegna aðstæðna og leggja sam-
tals 50 milljónir í verkefnið Eflingu
ferðaþjónustunnar, sem er eitt af
áhersluverkefnum Sóknaráætlunar
Vesturlands. Nánar á bls. 7.
Kristján Helgason og Höskuldur
Árnason. af
50 milljónir í
eflingu ferða-
þjónstu
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP
1.790 KR.
AÐEINS EF ÞÚ PANTAR Á NETINU EÐA MEÐ
APPINU, GREIÐIR FYRIRFRAM OG SÆKIR
PIZZUR MÁNAÐARINS
EIN STÓR PIZZA
sími 437-1600
Lífið er núna!
Landnámssetur er opið þessa
dagana, frá kl. 11:30 til 15:00 og
11:30 til 21:00 um helgar.
Bjóðum matargestum
veitingahúss frítt á Landnáms- og
Egilssögusýningarnar