Skessuhorn - 13.05.2020, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020 27
Ný drög að leikjaniðurröðun Ís-
landsmótsins í knattspyrnu hafa
verið birt á vef Knattspyrnusam-
bands Íslands. Upphaf móta mið-
ast við að staðan í þjóðfélaginu
verði þannig að heilbrigðisyfir-
völd heimili að leikir verði spil-
aðir. Gert er ráð fyrir að öll mót
sumarsins á vegum KSÍ, nema fyr-
irhuguðu keppni varaliða í meist-
araflokki karla.
Mjólkurbikar karla og kvenna
hefst 5. júní. Meistarakeppni
kvenna fer fram 6. júní og meist-
arakeppni karla 7. júní. Fyrstu
leikirnir í Pepsi Max deild kvenna
verða spilaðir 12. júní og daginn
eftir, 13. júní, hefst keppni í Pepsi
Max deild karla. Önnur mót meist-
araflokka hefjast 16.-19. júní.
Upphaf móta miðast við að fé-
lög hafi nægan tíma til að und-
irbúa leikmenn fyrir tímabilið.
Ákvörðun um að flýta upphafi
móta og þar með fjölga mögu-
lega þeim leikjum sem fara fram
án áhorfenda, getur haft áhrif á
tekjur félaga.
Fyrstu leikir
Vesturlandsliða
Sem fyrr segir hefst keppni í Mjólk-
urbikar karla og kvenna fyrstu
helgina í júní. Föstudaginn 5. júní
mætir Snæfell liðið Selfyssinga á
útivelli í Mjólkurbikar karla. Dag-
inn eftir, laugardaginn 6. júní,
heimsækir Kari lið KV og Skalla-
grímur fær Ými í heimsókn.
Sunnudaginn 7. júní hefst keppni
í Mjólkurbikar kvenna. Þá um
kvöldið fara Skagakonur suður til
Hveragerðis þar sem þær mæta
Hamri í fyrstu umferð bikarsins.
Þegar kemur að Vesturlandslið-
unum sem taka þátt í Íslandsmótinu
eru það Skagamenn sem ríða á vað-
ið þetta árið þegar ÍA mætir KA á
Akranesvelli sunnudaginn 14. júní í
Pepsi Max deild karla.
Skagakonur hefja leik í 1. deild
kvenna föstudaginn 19. júní, þeg-
ar þær mæta Víkingi R. á útivelli.
Fyrsti heimaleikur Skagakvenna
er síðan viku síðar, 26. júní, gegn
Gróttu. Víkingur Ó. leikur sinn
fyrsta leik í 1. deild karla laugardag-
inn 20. júní, þegar þeir mæta Vestra
á Ólafsvíkurvelli.
Keppni í 2. deild karla hefst 19.
júní og þá um kvöldið mætir Kári
liði Selfyssinga í Akraneshöllinni.
Skallagrímur hefur leik í 4. deild
karla þriðjudaginn 16. júní, þeg-
ar liðið tekur á móti Samherjum á
Skallagrímsvelli. Snæfell hefur leik
í 4. deild karla föstudaginn 19. júní
þegar liðið mætir Birninum á úti-
velli. Fyrsti heimaleikur Snæfell-
inga er hins vegar viku síðar, gegn
SR föstudaginn 26. júní.
kgk/ Ljósm. úr safni af.
Norðurálsmótið í knattspyrnu fyr-
ir 7. flokk drengja verður haldið
dagana 18.-21. júní næstkomandi
á Akranesi. Sem kunnugt er hef-
ur mótið fyrir löngu skipað sér sess
sem einn af hápunktum sumarsins
hjá yngstu iðkendunum, en það er
opið öllum knattspyrnufélögum.
Mótið sjálft verður haldið dagana
19.-21. júní en í ár verður brydd-
að upp á þeirri nýjung að daginn
áður, fimmtudaginn 18. júní, verð-
ur haldið eins dags mót fyrir drengi
í 8. flokki. Alls er von á um 1.500
iðkendum til keppni á Akranesi
í þessum tveimur aldursflokkum
þessa fjóra daga.
Við mótahaldið verður farið að
leiðbeiningum sóttvarnaryfirvalda
vegna Covid-19 og hefur Knatt-
spyrnufélag ÍA gefið út aðgerðar-
áætlun fyrir Norðurálsmótið. Þar
má sjá að nokkrar breytingar hafa
verið gerðar á skipulagi mótsins.
Miða þær breytingar að því að lág-
marka skörun milli þátttakenda og
fylgdarfólks. Mótinu verður skipt
upp í hólf sem verða merkt og vökt-
uð og þess gætt að takmarkanir séu
virtar.
Á Akranesi eru sex stórir knatt-
spyrnuvellir. Hverjum þeirra verð-
ur skipt niður í tvö hólf þannig að
hólfin verða alls tólf talsins. Í hverju
hólfi verða tveir litlir keppnisvellir
og keppnisvellirnir því samtals 24.
Takmarkanir á fjölda fullorðinna
verða í hverju hólf og er gert ráð
fyrir að þær takmarkanir muni mið-
ast við 100 manns í júní. Fullorðnir
skulu virða tveggja metra regluna
og hreinlæti og sótthreinsun verður
í öndvegi við allt skipulag mótsins.
Þegar kemur að gistingu verður
keppnisliðum boðið að gista í skól-
um á Akranesi, eins og verið hefur.
Skólarnir verða hólfaðir niður til
að virða fjöldatakmarkanir og sér-
stök áhersla verður lögð á hreinlæti
og sóttvarnir. Þrjú tjaldsvæði verða
í boði á Akranesi á meðan mótið fer
fram og þar verður leiðbeiningum
yfirvalda er varða tjaldsvæði fylgt.
Auk þess rekur Akraneskaupstaður
tjaldsvæði í Kalmansvík sem opið er
almenningi.
Morgunmatur, hádegismatur og
kvöldmatur verður fram reiddur í
íþrótta- og skólasölum. Þar verður
með auðveldum hætti hægt að tak-
marka fjölda fullorðinna, en gert er
ráð fyrir að nokkrir fullorðnir fylgi
hverju liði. Að keppni lokinni verð-
ur grillveisla í hverjum hóp en þar
ber eftir sem áður að virða fjölda-
takmarkanir. Hefðbundið kaffiboð
fyrir foreldra keppenda að kvöldi
laugardags hefur verið fellt niður
vegna fjöldatakmarkana.
Aðgerðaráætlunina má nálgast í
heild sinni á vef Knattspyrnufélags
ÍA, www.kfia.is. kgk
Jón Kristjánsson, sem ráðinn var í
starf þjálfara Kára í 2. deild karla í
knattspyrnu síðastliðið haust, lét af
störfum í síðasta mánuði. Ástæða
uppsagnar hans eru breyttar vinnu-
aðstæður vegna Covid-19 farald-
ursins, að því er fram kemur á Fa-
cebook-síðu Kára. Þar kemur einn-
ig fram að unnið sé hörðum hönd-
um að því að finna liðinu nýj-
an þjálfara fyrir komandi átök í 2.
deild karla í knattspyrnu. kgk
Síðastliðinn laugardag skrifaði
Fimleikafélag Akraness undir þjálf-
arasamning við Henrik Pilgaard.
Hann mun hefja störf hjá félaginu í
ágúst, í 50% stöðu til að byrja með,
en síðan í fullu starfi.
Henrik er fæddur í Danmörku
árið 1991 en hefur þjálfað á Íslandi
til margra ára. Hann býr að mikilli
reynslu, bæði sem fimleikaþjálfari
og -iðkandi. Hann æfði með bland-
aða landsliðinu og einnig hefur
hann komið að þjálfun landsliðsins.
Síðustu ár hefur hann verið yfir-
þjálfari stráka hjá Stjörnunni. „Það
er mikill fengur fyrir Fimleikafélag
Akraness að fá hann til okkar,“ segir
á vefsíðu fimleikafélagsins. kgk
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir, formaður FIMA, Henrik Pilgaard og Þórdís Þráins-
dóttir yfirþjálfari. Ljósm. FIMA.
Nýr fimleikaþjálfari ráðinn
Jón Kristjánsson t.v. ásamt Sveinbirni Geir Hlöðverssyni, formanni Kára. Ljósm.
Knattspyrnufélag Kára.
Káramenn þjálfaralausir
Ungur piltur hleður í skot á Norðurálsmótinu síðasta sumar. Ljósm. úr safni/ gbh.
Breytt skipulag Norðuráls-
mótsins vegna Covid-19
Boltinn byrjar í júní