Skessuhorn - 13.05.2020, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020 7
Samtal við ferðaþjónustuna
á Vesturlandi
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Markaðsstofa Vesturlands ætlar að eiga samtal við
ferðaþjónustuna á næstu dögum. Hér að neðan má
sjá dagskrá:
Miðvikudaginn 13. maí 2020 - Snæfellsnes
Kl. 10:00 - Breiðablik
Kl. 13:00 - Sker í Ólafsvík
Kl. 15:00 - Kaffi 59 í Grundarfirði
Kl. 17:00 - Bókasafnið í Stykkishólmi.
Fimmtudaginn 14. maí 2020 - Dalir og Borgarbyggð
Kl. 13:00 - Dalakot í Búðardal
Kl. 15:00 - Hraunsnef í Borgarfirði
Kl. 17:00 - B59 Hótel í Borgarnesi
Föstudagurinn 15. maí 2020 - Akranes,
Hvalfjörður og Borgarbyggð
Kl. 10:00 - Hótel Laxárbakki
Kl. 13:00 - Golfskálinn á Akranesi
Kl. 16:00 - Hverinn á Kleppjárnsreykjum
Markaðsstofa Vesturlands, ásamt
Samtökum sveitarfélaga á Vestur-
landi, boðaði til streymisfundar í
gærmorgun, þriðjudaginn 12. maí.
Fundurinn hófst á stuttri kynn-
ingu Margrétar Bjarkar Björns-
dóttur, forstöðumanns Markaðs-
stofu Vesturlands, á helstu verk-
efnum sem unnið er að til eflingar
ferðaþjónustunnar á Vesturlandi.
Markaðsstofa Vesturlands hefur nú
flutt starfsemi sína á skrifstofu SSV
og þar hefur verið unnið að því
að efla samstarf og samþættingu á
þeirri stoðþjónustu sem er í boði
til að hægt sé að styðja betur við
atvinnuveginn. Unnið er að ýms-
um verkefnum til að efla og styrkja
áfangastaðinn Vesturland og eru
þau áfangastaðaverkefni byggð á
Áfangastaðaáætlun Vesturlands.
Sveitarfélögin hafa auk þess ákveð-
ið að styðja sérstaklega við ferða-
þjónustuna í ár, vegna þeirra að-
stæðna sem nú eru uppi. Því hef-
ur verið ákveðið að leggja meiri
fjármuni í áhersluverkefni Sókn-
aráætlunar, Eflingu ferðaþjónust-
unnar, og vinna að því í samstarfi
við Markaðsstofuna. Skiptingin
er þannig að sveitarfélögin leggja
samtals til 38 milljónir í gegnum
Sóknaráætlun og Markaðsstofa
Vesturlands 12 milljónir í þessi
ferðaþjónustuverkefni sem unnið
verður að í ár.
Samstarf við Tjarnar-
götuna í markaðsmálum
Gerður hefur verið samningur við
Tjarnargötuna um að vinna með
markaðsstofunni að eflingu mark-
aðsmála á Vesturlandi. Verkefnið
snýst í stuttu máli um að Tjarn-
argatan útbýr markaðsefni sem
Markaðsstofa Vesturlands og ferða-
þjónustuaðilar í landshlutanum
geta nýtt sér við kynningarstarf sitt.
„Við munum fara ítarlega yfir alla
snertifleti og framleiða efni, hvort
sem það eru ljósmyndir eða mynd-
bönd, auk þess að fara í umtals-
verða gagnaöflun fyrir markaðs-
stofuna og samstarfsaðila hennar.
Efnið má nýta hvort sem er í hefð-
bundnar auglýsingar, auglýsingar á
samfélagsmiðlum eða netmiðlum
eða í stafræn almannatengsl. Mark-
miðið er að vígbúa alla þá sem eru á
svæðinu, rétta fólki og fyrirtækjum
þau tól sem þarf til að taka slaginn
og sækja á nýjan og breyttan mark-
að,“ sagði Einar Benedikt Sigurð-
arson frá Tjarnargötunni á fund-
inum.
Unnið að ferðaleiðum
Thelma Dögg Harðardóttir frá
Markaðsstofu Vesturland sagði frá
þeim ferðaleiðum sem unnið er
að í landshlutanum. Í máli henn-
ar kom fram að tilgangur þeirra er
að fá ferðamenn til að dvelja lengur
og fara víðar um svæðið, en einn-
ig að ná að stýra því betur hvert
ferðamenn fara og hvað þeir gera.
Ferðaleiðunum er ætlað að auka
öryggi ferðamanna, auka upplýs-
ingaflæði milli ferðaþjóna og gesta
landshlutans og auðvelda mark-
aðsmál og ímyndarsköpun fyrir
svæðin. Unnið er að stefnumótun
ferðaleiða í samráði við stýrihópa
á hverju svæði þar sem reynt er að
fanga anda staðanna, greina þemu,
móta ímynd og móta farveg til að
koma upplýsingum á framfæri.
Í máli Thelmu kom fram að
landshlutanum væri skipt upp í
fjögur svæði; Snæfellsnes, Dali,
Borgarfjörð og Hvalfjarðarsvæð-
ið. Vinna við ferðaleiðirnar er mis-
langt á veg komin en alls staðar
komin af stað. Ferðaleið sem unn-
ið er að í Dölum er í samstarfi við
Vestfjarðastofu og Svæðisgarður-
inn Snæfellsnes vinnur að gerð
ferðaleiða um Snæfellsnes. Mark-
aðssetning og kynning á þessum
leiðum verður unnin í samstarfi við
Tjarnargötuna.
Menningin hluti
af viðspyrnunni
Sigursteinn Sigurðsson, menning-
arfulltrúi SSV, sagði því næst frá
menningarviðburðum sem staðið
verður að í sumar. Í máli hans kom
fram að í samstarfi við markaðs-
stofuna yrði ráðist í kynningará-
tak á menningarviðburðum á Vest-
urlandi. Felst það meðal annars í
gerð viðburðadagatals fyrir lands-
hlutann allan. Þar er unnið eftir
tveimur þemum. Annars vegar sagt
frá „föstum liðum“ en í þeim felst
til dæmis endurtekin dagskrá safna
og reglulegir viðburðir. Stefnan
er að útbúa vikulega dagskrá yfir
hvers kyns viðburði sem verða allt-
af til staðar. Hins vegar er þem-
að „krydd í tilveruna“ sem sam-
anstendur af einskiptisviðburðum
eins og hátíðum og tónleikum sem
áhugi er á að hampa sérstaklega.
„Ég er mjög bjartsýnn á þetta verk-
efni. Þegar fram líða stundir tel
ég að menningin geti skipt miklu
máli í viðspyrnunni hjá okkur hér á
landi. Við eigum mjög góðan efni-
við og ættum að nýta hann,“ sagði
Sigursteinn.
Verkefni Markaðsstofu
Vesturlands
Björk Júlíana Jóelsdóttir, verkefna-
stjóri markaðsmála hjá Markaðs-
stofu Vesturlands, sagði að lokum
frá starfi markaðsstofunnar, hlut-
verki hennar og þeim samstarfs-
samningum sem gerðir eru við
ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi.
Í máli hennar kom fram að meg-
inhlutverk stofunnar er markaðs-
og kynningarstarf fyrir áfangastað-
inn Vesturland. Stofunni er einn-
ig ætlað að vera samstarfsvettvang-
ur sveitarfélaga og ferðaþjónustu-
aðila í landshlutanum. Markaðs-
stofan er í eigu sveitarfélaganna en
ferðaþjónustuaðilum býðst að gera
samstarfssamning og verða þann-
ig formlegir aðilar að skipulögðu
og samræmdu markaðsstarfi lands-
hlutans. Vegna sérstakra aðstæðna
þetta árið hefur árgjaldið verið
lækkað í 15 þúsund krónur en það
var áður 49.900 kr á ári.
Margrét Björk lokaði svo þess-
um upplýsingafundi með því að
boða heimsókn starfsmanna mark-
aðsstofunnar út á öll svæðin næstu
daga, til að hægt væri að eiga sam-
tal við aðila atvinnugreinarinnar og
ræða þau verkefni og áskoranir sem
væru framundan. Nánar má lesa um
það í auglýsingu hér á síðunni.
kgk
Ríkisstjórnin ákvað í gærmorgun að
stefna að því að eigi síðar en15. júní
næstkomandi geti þeir sem koma
til landsins farið í COVID-19 próf
á Keflavíkurflugvelli. Reynist það
neikvætt þurfi þeir ekki að fara í
tveggja vikna sóttkví. Þá er gert ráð
fyrir að nýleg vottorð um sýnatöku
erlendis verði einnig tekin til greina
meti sóttvarnalæknir þau áreiðan-
leg. Þessi tímasetning er með fyr-
irvara um að áætlanir um afléttingu
takmarkana innanlands gangi eftir
og með hliðsjón af þróun faraldurs-
ins hérlendis og erlendis.
Fyrirhugað er að veirufræði-
deild Landspítala annist sýnatöku
á Keflavíkurflugvelli og greiningu.
Niðurstaða á að geta legið fyrir
samdægurs og er gert ráð fyrir að
farþegar geti farið til síns heima eða
á gististað uns hún liggur fyrir.
„Fyrirkomulagið verður endur-
metið þegar tveggja vikna reynsla
er komin á það, m.a. út frá því hvort
herða þurfi aftur aðgerðir eða hvort
frekari tilslakanir séu forsvaranleg-
ar. Ef skimun á Keflavíkurflugvelli
reynist vel þarf einnig að huga að
fyrirkomulagi á öðrum landamæra-
stöðvum,“ segir í tilkynningu frá
forsætisráðuneytinu.
mm
Ferðafólk fari í sýnatöku eftir 15. júní
Fimmtíu milljónir í eflingu ferðaþjónustu á Vesturlandi
Margrét Björk Björnsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands.
Ljósm. úr safni/ mm.
Ferðamenn njóta sín á Djúpalónssandi. Ljósm. úr safni.