Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2020, Side 2

Skessuhorn - 13.05.2020, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 20202 Munum að njóta. Streita og stress einkennir líf of margra og þá er vert að minna fólk á að muna eftir því að taka tíma til að njóta lífsins líka. Við þurfum ekki að vinna okkur til óbóta, fylgj- ast með öllu á samfélagsmiðl- um, hafa of miklar áhyggjur eða hamast í lokuðum líkamsræktar- sölum til að eiga gott líf. Á morgun er útlit fyrir vestlæga átt, 3-10 m/s og rigningu eða súld með köflum. Hiti verður á bilinu 5-14 stig og hlýjast á Suð- austurlandi, en þurrt að kalla norðaustanlands og hiti 0-5 stig þar. Á föstudag verður norð- læg átt, 5-10 m/s og dálítil væta á Suðurlandi framan af degi og stöku él norðantil, annars úr- komulítið. Hiti 0-8 stig, mildast sunnanlands. Á laugardag er út- lit fyrir norðanstrekking og dálít- il él á Norðausturlandi, en annars mun hægari og léttskýjað. Hiti 1-10 stig, mildast syðst á landinu. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir suðaustanstrekking og rign- ingu með köflum sunnanlands en hægara og þurrt norðanlands. Heldur hlýnandi veður. Í síðustu viku var spurt á vef Skesshorns hvaða gistimögu- leika lesendur ætla að nota á ferðalagi innanlands í sumar. Flestir, eða 29%, ætla að nota hjólhýsi, fellihýsi eða húsbíl. 18% ætla að gista á hótelum, 17% ætla að blanda saman ýmsum gistimöguleikum, 12% kjósa sumarhúsin, 11% svarenda ætla ekki að ferðast innanlands. 7% ætla að gista í tjöldum og 6% svarenda ætla að nýta bænda- gistingu. Í næstu viku er spurt: Notar þú reiðhjól sem ferðamáta? Ekki hafa allir ferðaþjónustuað- ilar gefið upp vonina um við- skiptavini í sumar og eru þeir sem ætla að bjóða Íslendinga velkomna til sín í sumar Vest- lendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Vísa motorcross- braut frá BORGARBYGGÐ: Á fundi skipulags- og byggingarnefnd- ar Borgarbyggðar 8. maí síðast- liðinn var fjallað um staðsetn- ingu á svæði fyrir motorcross braut í sveitarfélaginu. Í bókun nefndarinnar segir: „Til margra ára hefur verið unnið að því að finna staðsetningu fyrir motorc- ross braut á landi sveitarfélags- ins. Nefndin telur ljóst að ekki sé til heppilegt svæði fyrir mot- orcross í landi sveitarfélagsins. Með tilliti til hljóðmengunar og nálægðar við byggð.“ -mm Spá hálfum millj- arði verri afkomu AKRANES: Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í liðinni viku var lögð fram aðgerða- áætlun bæjarfélagsins vegna Covid-19. Lögð var fram svo- kölluð næmnigreining bæjar- stjóra vegna fjárhagslegra áhrifa sem veiran mun valda á fjárhag bæjarsjóðs. Samkvæmt næmni- greiningunni gæti útkoma þessa árs orðið rekstrartap upp á allt að 228 milljónir króna í stað áætlaðs rekstrarafgangs að fjár- hæð 310 milljónir. Samanlagt er því neikvæður viðsnúningur í rekstri bæjarsjóðs 538 milljón- ir króna vegna minni skatttekna og aukins kostnaðar. -mm Umferð hefur dregist saman LANDIÐ: Samdrátturinn í umferð á hingveginum um- hverfis landið í apríl hefur sleg- ið öll met. Umferðin í mán- uðinum drógst saman um nærri 35% sem í sögulegu samhengi er gríðarlega mikill samdráttur. Nú hefur umferðin dregist sam- an um nærri 18% á Hringveg- inum frá áramótum sem sömu- leiðis er met. Mest hefur um- ferðin dregist saman á Mýrdals- sandi eða um tæp 80%. Frá ára- mótum hefur umferð um Vest- urland dregist saman um 26,2%, nokkru minna en minnkun um- ferðar um Norðurland og Aust- urland, en meira en um Suður- land. Umferð um höfuðborgar- svæðið hefur dregist saman um rúm 10% frá áramótum. -mm Skoðunardagur fornbíla í næstu viku BORGARNES: Fornbílafjelag Borgarfjarðar hefur að venju samið við Frumherja um til- tekinn skoðunardag fyrir eldri ökutæki, en skráða fornbíla skal færa til skoðunar annað hvert ár. Skoðunardagur fornbíla er nú á dagskrá þriðjudaginn 19. maí nk. kl. 16:00 að Sólbakka í Borgarnesi. „Við munum hita upp grillið og setja pylsur á það að skoðun lokinni úti í Brák- arey,“ segir í orðsendingu frá Skúla G. Ingvarssyni formanni Fornbílafjelagsins til fjelags- manna. -mm Veðurhorfur Með bréfi til sjávarútvegsráð- herra síðastliðinn mánudag bein- ir atvinnuveganefnd Alþingis, með Lilju Rafneyju Magnúsdóttur þing- mann VG í forsvari, þeim tilmæl- um til ráðherra að hann beini til- mælum til Hafrannsóknastofnunar um hvort ástæða sé til endurmats á úthlutun hrognkelsa vegna vertíð- arinnar 2020 í ljósi gagna og upp- lýsinga sem nefndinni hafa borist. Vísað er til erinda sem atvinnu- veganefnd hafa borist m.a. frá Sam- tökum sveitarfélaga á Vesturlandi, samantekt Halldórs G Ólafsson- ar hjá Biopol og Bjarna Jónssonar forstöðumanns Náttúrustofu NV, Stykkishólmsbæ, Landssambandi smábátasjómanna og fleiri aðil- um. Á það er meðal annars bent í athugasemdum sem atvinnuvega- nefnd hefur borist að líkur séu á að veiðiráðgjöf Hafró sé ábótavant og ástæða sé til að gefin verði út ný ráðgjöf. Bæði ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar um veiðar á hrognkels- Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á síðasta ári og skilaði 325 milljóna króna afgangi. Er það töluvert betri niðurstaða en sá 53 milljóna króna afgangur sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun, eða sem nemur 272 milljónum króna. Þetta kom fram á bæjarstjórnarfundi á fimmtudaginn, 7. maí, þar sem árs- reikningur Snæfellsbæjar var sam- þykktur samhljóða eftir síðari um- ræðu. Rekstrartekjur sveitarfélags- ins námu 2.652 milljónum króna á árinu, samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta. Þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.107 milljónum, en rekstrarniður- staða A hlutans var jákvæð um 218 milljónir króna, en gert hafði verið ráð fyrir sex milljóna afgangi. Af- koma A hlutans var því 266 millj- ónum betri en áætlað hafði verið. Eigið fé sveitarfélagsins í árs- lok nam 3.901 milljón króna sam- kvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé A hluta 2.959 millj- ónum. Laun og launatengd gjöld Snæ- fellsbæjar námu 1.292,8 milljón- um króna á árinu 2019, en starfs- mannafjöldi sveitarfélagsins nam 145 stöðugildum í árslok. Veltufé frá rekstri var 381,4 milljónir á síð- asta ári og veltufjárhlutfallið 0,76. Handbært fé frá rekstri var 216,6 milljónir króna. Heildareignir bæjarsjóðs námu 4.432,4 milljónum króna og heild- areignir sveitarfélagsins í saman- teknum ársreikningu námu 5.697,2 milljónum króna í árslok 2019. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu 1.473,2 milljónum. Í samantekn- um ársreikningi námu skuldir um 1.796,2 milljónum og lækkuðu um 145,4 milljónir milli ára. Eigið fé bæjarsjóðs nam 2.959,2 milljónum króna og eigið fé í samanteknum reikningsskilum nam 3.900,9 millj- ónum í árslok. Eiginfjárhlutfall- ið var 66,76% á árinu 2019 en var 63,43% árið áður. Snæfellsbær fjár- festi fyrir 457,1 milljón í varanleg- um rekstrarfjármunum á síðasta ári. Engin ný lán voru tekin. Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbinding- um er 49,76% hjá sjóðum A hluta, en var 51,46% árið 2018. Hlut- fallið var 46,33% í samanteknum ársreikningi en 51,63% árið 2018. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum má hlutfallið ekki vera hærra en 150%. „Fjárhagsstaða Snæfellsbæj- ar verður því að teljast afar góð,“ segir í fundargerð. kgk Skipulags- og bygg- ingarnefnd Borgar- byggðar samþykkti á föstudaginn fyrir sitt leiti að leggja til við sveitarstjórn að sam- þykkja tillögu að deili- skipulagi til auglýs- ingar. Tillagan nær til 24 hektara landsvæð- is í Hítardal, nán- ar tiltekið á því svæði þar sem gríðarstórt berghlaup féll 7. júlí 2018. Tillagan tekur til framkvæmdar sem felst í því að móta ár- farveginn í gegnum berg- hlaupið á tæplega 1,8 km löngum kafla. Við það mun endurheimtast um sjö kílómetra langur ár- farvegur sem jaframt er mikilvægt búsvæði laxa- stofnsins í ánni. Sam- kvæmt skipulagsdrög- unum verður áin gerð að nýju fiskgeng upp að Hítarvatni. Gert er ráð fyrir að mótaður árfar- vegur muni renna svo til sömu leið og áin gerði fyrir berghlaupið fyrir tveimur árum. mm Atvinnuveganefnd vill endurmat Hafró á grásleppuráðgjöf um og veiðistjórnun Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, hafa verið harðlega gagnrýnd undan- farna daga. Hafrannsóknastofn- un taldi ástæðu til þess um síðustu helgi að gera grein fyrir forsend- um og annmörkum ráðgjafarinnar í ítarlegu bréfi sem sent var fjöl- miðlum. „Ráðuneytið hefur svarað gagnrýni á stjórnun veiðanna á öðr- um vettvangi,“ sagði í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun. Í stuttu máli sagt ítreka stjórnendur Haf- rannsóknastofnunar í niðurlagi er- indis síns að þeir telji ekki ástæðu til að breyta veiðiráðgjöf hrognkelsa á yfirstandandi vertíð. Þeir sem vilja kynna sér efni bréfsins frá Hafró er bent á fréttasíðu Skessuhorns. Sjá má nánar mótmæli þriggja sveitar- félaga á Vesturlandi á bls. 18. mm Meiri afgangur en áætlað var Rekstur Snæfellsbæjar jákvæður um 325 milljónir Frá Ólafsík. Ljósm. úr safni/ Snæfellsbær. Hér má sjá hvernig berghlaupið stíflaði Hítará. Nú er stefnt að endur- heimt fyrrum árfarvegar og að gera Hítará laxgenga í Hítarvatn. Stefnt að endurheimt fyrrum farvegs Hítarár

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.