Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2020, Side 8

Skessuhorn - 13.05.2020, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 20208 Datt af baki AKRA/HVAL: Maður féll af hestbaki milli Æðar- odda og Þjóðbrautar síðdeg- is á fimmtudaginn. Maður- inn var ásamt tveimur öðr- um í útreiðartúr þegar hjól- reiðamaður mætir þeim. Sá kvaðst hafa farið út í kant og hægt verulega á sér en beð- ið góðan daginn þegar hann mætti hestamönnunum. Við það fældist eitt hrossið, hljóp af stað með þeim afleiðingum að knapinn féll af baki. Lög- regla fór á staðinn. Maðurinn var með meðvitund en hlaut áverka á höfði. Sjúkralið kom á vettvang og flutti manninn á sjúkrahúsið á Akranesi. -kgk Fis fældi hross BORGARBYGGÐ: Til- kynnt var um fisflugvél sem lenti á einkalandi við Hítarnes á Mýrum á laugardag. Land- eigandi sagði fisflugvélina hafa lent þar tvisvar sinnum og fælt hross. Flugturn í Reykjavík gat fundið út hvaða flugmað- ur var þarna á ferðinni og lög- regla hafði samband við hann. Kvaðst hann ekki hafa gert sér grein fyrir því að hann væri að fæla búfénað og fram kemur í dagbók lögreglu að hann hafi verið miður sín vegna þessa. Landeiganda var gert viðvart að rætt hefði verið við flug- manninn. -kgk Skakkur við Borg BORGARBYGGÐ: Öku- maður var stöðvaður á Snæ- fellsnesvegi við Borg á Mýr- um á seint á laugardagskvöld, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn viðurkenndi neyslu og veitti sýni, sem gaf jákvæða svörun við neyslu kannabisefna. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann heimilaði leit í bíl og þar fundust pokar með ætluðum kannabisefnum. -kgk Sláttuvél brann SNÆFELLSBÆR: Lög- regla var kölluð að Bálhóli við Hellnaveg vegna elds í gróðri á laugardaginn. Verið var að slá á Bálhóli. Sláttumaður taldi sig heyra að neistaði und- an sláttuvél eftir að hann hafði stöðvað vélina. Þá gaus upp eldur og breiddist út í þurru grasi. Lögregla fór á vettvang og aðstoðaði við slökkvistarf. Tókst að halda eldinum frá húsum á svæðinu. Slökkvilið Snæfellsbæjar kom á vettvang og bleytti svæðið og slökkti í glóðum sem enn loguðu. Sláttuvélin er ónýt eftir eld- inn og skemmdir urðu á raf- magnskapli sem lá yfir túnið. -kgk Barn brenndist AKRANES: Haft var sam- band við neyðarlínu kl. 18:30 á mánudaginn. Húsráðendur voru að þrífa baðkar og mjög heitt vatn því látið renna í kar- ið. Að sögn lögreglu fór barn ofan í heitt vatnið og brennd- ist. Var barnið flutt á sjúkra- húsið á Akranesi og þaðan á bráðamóttöku Barnaspítalans við Hringbraut. -kgk Enn meiri hraðakstur VESTURLAND: Hraðakst- ursmálum hefur fjölgað veru- lega í umdæmi Lögreglustjór- ans á Vesturlandi frá því sem verið hefur. Að sögn lögreglu hefur af gefnu tilefni ver- ið fylgst náið með ökuhraða í umdæminu undanfarna viku. Fjölmörg hraðaksturs- mál voru bókuð, hvort heldur við almennt eftirlit, í gegnum fastar hraðamyndavélar eða sérstakt eftirlit á hraðamynda- vélabílnum. Sá hefur einmitt verið á ferðinni um umdæmið og verður áfram á ferðinni á næstunni. Á fimmtudag var hraðamyndavélabíllinn í Búð- ardal. Fyrst mældi hann hraða á Vesturbraut á móts við Vín- búðina. Þar fóru 15 bílar um á einni klukkustund og voru tveir kærðir fyrir of hrað- an akstur. Sá sem hraðast ók var á 61 km hraða á klst. Bíll- inn mældi einnig hraða öku- tækja við Vesturbraut á móts við N1 í Búðardal. Níu bílar voru mældir og tveir ökumenn kærðir. Að morgni sama dags, milli 8:30 og 9:30 var mynda- vélabíllinn á Vesturlandsvegi við Bjarnadalsá. Alls fóru 18 bílar um kaflann og fjórir voru kærðir. Sá sem hraðast ók var á 106 km/klst. en hámarkshraði er 90 km/klst. Daginn eftir var lögregla við hraðamæling- ar á myndavélabílnum á Akra- fjallsvegi, milli 6:30 og 9:30. Á þessum tveimur klukkustund- um fór 421 ökutæki um veg- inn og 16 voru kærðir. Sá sem hraðast ók var á 120 km hraða á klst. Að sögn lögreglu verður hraðamyndavélabíllinn áfram á ferðinni um landshlutann á næstunni. -kgk Ýmis verkefni VESTURLAND: Verkefni Lögreglunnar á Vesturlandi hafa verið af ýmsum toga und- anfarna viku. Hraðaksturs- mál hafa verið áberandi eins og fram kemur í annarri frétt, skólaeftirlit hefur verið mik- ið eftir að skólastarf komst í hefðbundnari farveg og mik- ið af málum sem tengjast frá- gangi á farmi hafa komið inn á borð lögreglu í gegnum vega- eftirlitið. Þá hafa lögreglu- menn sektað ökumenn fyrir að leggja uppi á gangstéttum og fjórar tilkynningar bárust um laus hross í umdæminu í lið- inni viku. Aðfararnótt föstu- dags barst tilkynning um öku- mann undir áhrifum fíkniefna en hann fannst ekki. Þá hafa lögreglu borist tilkynningar um heimilisofbeldi undanfarið og eru slík mál til rannsóknar. -kgk Sviptingarakstur HVALFJ: Lögregla var við almennt eftirlit við Hval- fjarðargöng á laugardag. Um kl. 15 veitti hún ákveðnum bíl á suðurleið athygli og fór á eftir honum. Kannað var með ástand ökumannsins sem reyndist aka eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Á hann yfir höfði sér kæru vegna at- hæfisins. -kgk Hann Lúcas kemur frá Lithá- en. Þessi ungi maður er mögulega fyrsti erlendi hjólagarpur sumars- ins. Fréttaritari Skessuhorns hitti hann nýlega fyrir utan Bónus í Borgarnesi þar sem hann var að nesta sig upp fyrir hjólaferð. Leið hans lá þá áleiðis á Vestfirði. mm/ Ljósm. Jósefina Morell. Sprengja fannst í Byggðasafninu í Görðum á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Er þetta í annað sinn á árinu sem sprengja finnst í vörslu safnsins, en í lok janúar fannst virk sprengja úr El Grillo á safninu í Görðum. Hafði sú verið hluti af safnokstinum í að minnsta kosti 42 ár, eins og greint var frá í Skessu- horni. Sprengjan sem fannst síðast- liðinn fimmtudag var einnig úr El Grillo, en reyndist hins vegar vera óvirk. „Hún fannst í kassa þegar við vorum að hreinsa út úr geymslum núna á fimmtudaginn. Við höfðum strax samband við sprengjusérfræð- inga Landhelgisgæslunnar og þeir voru komnir til okkar eftir um það bil klukkutíma. Þeir gegnumlýstu sprengjuna og þá kom sem betur fer í ljós að hún væri óvirk. Að svo búnu tóku þeir hluta sprengjunnar í sundur til að ganga endanlega úr skugga um það. Hún reyndist al- gerlega óvirk og getur verið áfram hér í vörslu safnsins,“ segir Jón All- ansson, deildarstjóri minjavörslu á Byggðasafninu í Görðum, í samtali við Skessuhorn. Hann telur að safninu hafi áskotn- ast sprengjan á seinni hluta 8. ára- tugarins, eins og sú sem fannst virk á safninu í janúarlok, en enginn á safn- inu vissi af henni í geymslunni. Hann segir að ekki hafi öllum staðið á sama þegar sprengjan skaut upp kollinum, enda stutt síðan fjarlægja þurfti virka sprengju frá Görðum. „Þessi var sem betur fer óvirk,“ segir hann og bætir því við hann eigi ekki von á að fleiri slíkar leynist í vörslu safnsins. „Við höfum verið að yfirfara munaskrán- ingu og safnkost vegna nýrrar grunn- sýningar sem unnið er að um þessar mundir. Núna erum við komin með nokkuð góða yfirsýn yfir hlutina og ég tel afar ólíklegt að fleiri sprengj- ur leynist hérna hjá okkur,“ segir Jón Allansson að endingu. kgk/ Ljósm. aðsendar. Föngulegur hópur útskrifaðist af námskeiði í þjóðbúningasaumi í Snæfellsbæ um liðna helgi. Nám- skeiðið var haldið af Átthagastofu Snæfellsbæjar, að frumkvæði Mar- grétar Vigfúsdóttur, en námskeiðið naut styrks úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Níu nemendur stilltu sér upp til myndatöku að námskeiðinu loknu ásamt kennurum og að sjálfsögðu all- ir prúðbúnir í tilefni dagsins. kgk Mögulega fyrsti hjólagarpur sumarsins Önnur sprengja fannst á byggðasafninu Reyndist vera óvirk og verður áfram í vörslu safnsins Óvirka sprengjan úr El Grillo sem fannst á Byggðasafninu í Görðum síðastliðinn fimmtudag. Sprengjan er um það bil 60 sentímetrar að lengt og þvermálið er um það bil tíu sentímetrar. Hópurinn að námskeiði loknu ásamt kennurum. Ljósm. Snæfellsbær/ Rebekka Unnarsdóttir. Útskrifuð úr þjóðbúningasaumi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.