Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2020, Síða 16

Skessuhorn - 13.05.2020, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 202016 „FÍB leggst eindregið gegn frum- varpi samgönguráðherra um sam- vinnuverkefni um vegafram- kvæmdir. Með þessu frumvarpi er stefnt inn á varasama braut einka- væðingar í vegakerfinu með til- heyrandi innheimtu vegtolla og dýrari lausnum en vera þyrfti,“ segir í umsögn Félags íslenskra bif- reiðaeigenda um frumvarp Sigurð- ar Inga Jóhannssonar samgöngu- ráðherra. Markmið frumvarpsins er sagt að auka fjármagn til vegaframkvæmda og flýta þeim þannig. „Áformuð samvinna snýst um að fjárfestar fjármagni tiltekin umferðarmann- virki og fái í staðinn tekjur af notk- un þeirra. Með aðkomu fjárfesta verða framkvæmdirnar hins vegar dýrari en ef ríkissjóður stendur að fjármögnuninni. Fjárfestar sem taka þátt í samvinnuverkefnunum þurfa að fá áhættuþóknun sem ríkið þarf ekki. Vegtollar eiga að standa und- ir endurgreiðslum og arðgreiðslum til fjárfestanna næstu 30 árin, með tilheyrandi innheimtukostnaði,“ segir í umsögninni. Feluleikur með kostnaðinn Þá segir FÍB að með aðkomu fjár- festa að vegaframkvæmdum sé ein- faldlega verið að fela heildarkostn- að samfélagsins af uppbyggingu innviða. „Skuldastaða ríkissjóðs verður minni en ella og einka- fjármagnið er innheimt með not- endagjöldum í staðinn fyrir skatt- greiðslur. „Á endanum bera eig- endur ökutækja og notendur vega- kerfisins þó allan kostnaðinn, sama hvort ríkið stendur eitt að fram- kvæmdunum eða fær fjárfesta með sér. Fyrri kosturinn er mun hag- stæðari og mælir FÍB með því að ríkisvaldið haldi sig á þeirri braut.“ Kílómetragjald er skynsamlegast Að mati FÍB er góð nýting umferð- armannvirkja hagur alls samfélags- ins og því er fjarstæðukennt að ætla að leggja vegtolla á einhver þeirra og draga þannig úr eðlilegri nýt- ingu. „Vegtollar mismuna fólki eft- ir efnahag og búsetu og kostnaður við innheimtu þeirra er hærri en draumóramenn vilja vera láta. FÍB hefur margoft bent á að mun ein- faldara, ódýrara og sanngjarnara er að taka gjald í samræmi við akst- ur, þ.e. kílómetragjald. Slík gjald- taka er einkar hentug til að takast á við orkuskiptin í umferðinni. Með kílómetragjaldi geta eigendur raf- drifinna ökutækja tekið fullan þátt í kostnaði við vegakerfið. Gjald- inu má haga þannig að það hvetji engu að síður til orkuskiptanna.“ Loks segir í ályktun FÍB að rík- ið geti nú þegar ráðist í allar þær vegaframkvæmdir sem eru á teikni- borðinu upp á eigin spýtur. „Góðar samgöngur eru þjóðhagslega hag- kvæmar og skila sér margfalt til baka. Umferðir stendur nú þegar undir öllum kostnaði vegakerfisins í gegnum skattgreiðslur og önnur gjöld og mun gera það áfram. Eng- in ástæða er til að fara Krýsuvíkur- leiðina í þeirri uppbyggingu.“ mm/ Ljósm. úr safni GJ. „Það kostar íslensku vísitölufjöl- skylduna frá höfuðborgarsvæð- inu að lágmarki ríflega 300 þús- und krónur að verja viku úti á landi þar sem ódýrast er að gista og leika sér. Þessi sama vika getur líka kostað fjölskylduna rúmlega 750 þúsund krónur, eða hátt í þre- falt meira sé dýrari gistimöguleiki valinn. Að meðaltali kostar vikan minnst á Vesturlandi og þar býðst einnig ódýrasta vikan miðað við að gist sé á tjaldsvæði. Sú vika kostar rétt rúmar 307 þúsund krónur með gistingu, afþreyingu, bensíni og fæði.“ Þetta er niðurstaða saman- tektar sem tímaritið Mannlíf birti á vef sínum um liðna helgi. Þar seg- ir jafnframt: „Á meðan óvissa ríkir um hvenær Íslendingum gefst aftur kostur á ferðalögum til útlanda hafa Ferðamálastofa og yfirvöld hvatt til ferðalaga innanlands í sumar. Allir Íslendingar, 18 ára og eldri, fá staf- rænt gjafabréf að upphæð 5 þús- und krónur úr ríkissjóði og er lit- ið á bréfið sem beinan stuðning við fyrirtækin í ferðaþjónustu vegna efnahagslegrar óvissu á COVID- tímum.“ Mannlíf fór á stúfana og skipu- lagði vikuferðalag fjögurra manna fjölskyldu, foreldra með börn á aldrinum 7 og 14 ára, í öllum lands- fjórðungum Íslands. Eins og fyrr segir kemur Vesturland hagkvæmt út í þeim samanburði. Sjá nánar í umfjöllun á mannlif.is. mm Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráð- herra, mælti í síðustu viku fyr- ir frumvarpi á Alþingi til laga um samvinnuverkefni um vegafram- kvæmdir. Markmið með lagasetn- ingunni er að auka fjármagn til vegaframkvæmda, bæta umferðar- öryggi og stytta og bæta vegteng- ingar milli byggða. Í öllum fram- kvæmdunum munu vegfarendur hafa val um aðra leið og greiða ekki gjald á þeirri leið. Framkvæmdirn- ar eiga að enn fremur að stuðla að auknu umferðaröryggi. Í lok samn- ingstíma teljast mannvirki eign rík- isins án sérstaks endurgjalds. Þau skilgreindu samvinnuverkefni sem um ræðir eru hringvegur norðaust- an Selfoss og brú á Ölfusá, hring- vegur um Hornafjarðarfljót, Ax- arvegur, tvöföldun Hvalfjarðar- ganga, hringvegur um Mýrdal og jarðgöng í gegnum Reynisfjall auk Sundabrautar. Af þessum verkefn- um er brú yfir Hornafjarðarfljót fullhönnuð og hægt að hefja fram- kvæmdir á árinu og brú yfir Ölfusá er á lokastigi í hönnun. Með lögunum verður Vegagerð- inni heimilt, að undangengnu út- boði, að eiga samvinnu við einkaað- ila um fjármögnun, hönnun, undir- búning og framkvæmdir við fyrr- greind sex verkefni ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Þá verð- ur heimilt að fjármagna samvinnu- verkefni að hluta eða öllu leyti með gjaldtöku af umferð. Gjaldtaka skal þó ekki hefjast fyrr en framkvæmd- um lýkur og stendur að hámarki í 30 ár. Áætlað er að samvinnuverk- efnin geti skapað allt að 4.000 árs- verk. Samvinnuverkefnin bætast við vegaframkvæmdir sem fjár- magnaðar verða í fjárfestingará- taki stjórnvalda vegna Covid-19 og framkvæmdir sem fjármagnaðar með hefðbundnum hætti á fjárlög- um. Í samgönguáætlun sem liggur nú fyrir Alþingi voru framlög aukin um fjóra milljarða á ári næstu fimm árin miðað við fyrri áætlanir. Í framsöguræðu sinni á Alþingi sagði Sigurður Ingi að frumvarp- ið væri eitt af áherslumálum sínum og hafi verið í undirbúningi í ráðu- neytinu síðastliðin tvö ár „Álag á vegi landsins hafði aukist mikið á undanförnum árum, meðal ann- ars vegna fjölgunar ferðamanna. Á meðan við bíðum eftir að ferða- mennirnir komi aftur er skynsam- legt að nýta vel tímann til endur- bóta á vegakerfinu, auka umferð- aröryggi og greiðfærni þess. Með samvinnufrumvarpinu er kærkom- ið fjárfestingatækifæri til lengri tíma, t.d. fyrir lífeyrissjóði sem vilja öruggar og arðasamar leiðir. Mark- mið frumvarpsins er að auka veru- lega fjármagn til vegaframkvæmda og mæta mikilli þörf fyrir fjárfest- ingar í samgöngum. Áætlað er að samvinnuverkefni um vegafram- kvæmdir geti skapað allt að 4000 ársverk sem skiptist á milli hönn- unar í hátæknistörfum og verk- tökum á framkvæmdartíma,“ sagði hann. Ráðherra sagði frumvarpið einn- ig hafa þýðingu þegar fyrirsjáan- legur væri samdráttur í kjölfar Co- vid-19 faraldursins. Ríkisstjórnin hafi kynnt fjárfestingaátak sem feli í sér verulega hækkun á fjárfest- ingastigi ríkissjóðs á næstu árum. „Frumvarpið er mikilvægur þáttur í að fá aukið fjármagn inn í fjárfest- ingaátakið og búa til öfluga sam- vinnu á milli einkaaðila og ríkis- ins til framtíðar. Á sama tíma hef- ur ríkisstjórnin lagt mikla áherslu á að efla og fjárfesta í innviðum samfélagsins með sérstöku tíma- bundnu 18 milljarða króna fjárfest- ingaátaki, þar af er vægi samgöngu- mannvirkja um 36%. Það er mikil- vægt að bregðast hratt við en gera jafnframt langtímaáætlanir eins og kostur er, í þessari erfiðu stöðu sem samfélagið glímir við. Halda áfram að byggja upp vegi, flugvelli og hafnir svo samfélagið verði í stakk búið þegar Covid-19 faraldurinn verður um garð genginn. Notum því tímann vel og höldum áfram,“ sagði Sigurður Ingi á þingi. mm Sigurður Ingi hefur nú mælt fyrir frumvarpi sem boðar sex samvinnuverkefni í vegagerð. Mælt fyrir frumvarpi um samvinnuverkefni í samgöngum Horft m.a. yfir tjaldsvæðið við Kalmansvík á Akranesi. Myndin var tekin sl. föstudag. Hagstæðast að ferðast um Vesturland FÍB leggst eindregið gegn einkafjár- mögnun vegaframkvæmda SK ES SU H O R N 2 02 0 Dalabyggð, fráveita í Búðardal - Landlagnir Dalabyggð óskar eftir tilboðum í verkið „Fráveita í Búðardal – Landlagnir“ sem felur í sér lagningu um 380m af skólplögnum, ásamt tveimur brunnum og tengingar við eldri útrásir. Kynningarfundur verður haldinn 15. maí kl. 13:00 á skrifstofu Dalabyggðar. Útboðsgögn verða send rafrænt í tölvupósti. Senda skal ósk um út- boðsgögn á netfangið kristjan@dalir.is. Fyrirspurnir skulu berast í síðasta lagi 18. maí. Tilboðum skal skila á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal, fyrir kl. 11 föstudaginn 22. maí n.k., en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. SK ES SU HO RN 2 01 9 Viltu vinna með börnum? Leitað er eftir dagforeldrum til starfa á Akranesi fyrir komandi haust. Dagforeldrar starfa eftir reglugerð Félagsmálaráðuneytis um daggæslu barna í heimahúsi. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar en Akraneskaupstaður hefur umsjón og eftirlit með starfsemi þeirra. Réttindanámskeið fyrir verðandi dagforeldra hefur verið haldið af Námsflokkum Hafnarfjarðar og Akraneskaupstaður niðurgreiðir hluta af námsgjaldi. Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Akraneskaupstaðar í síma 433-1000, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið skoliogfristund@akranes.is EB flutningar Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness Tvær ferðir á dag Allir almennir vöruflutningar Get sótt pakka í búðir Símanúmer 788-8865 ebflutningar@gmail.com Axel Gústafsson situr ekki auðum höndum þessa dagana en langt er síðan svo mikið hefur verið að gera í búðinni hjá honum, Axelsbúð á Akranesi. Axelsbúð er með reið- hjól, hjólavörur og ýmsar veiðivör- ur auk þess sem Axel gerir við reið- hjól. „Það er mikið meira að gera núna en síðustu ár,“ segir Axel þeg- ar blaðamaður Skessuhorns kíkti við hjá honum á mánudaginn. „Ég held að Covid hafi mikið að segja því fólk sem ætlaði að ferðast til út- landa í sumar getur það ekki lengur og leggur því aurinn frekar í eitt- hvað annað, eins og að kaupa hjól,“ segir hann og bætir við að auk þess hafi reiðhjól lækkað í verði um 20% um síðustu áramót. Axelsbúð er umboðsaðili fyrir reiðhjólaversl- unina Örninn og að sögn Axels er skortur á reiðhjólum á heimsvísu í ár. „Það seldist mikið fyrst eft- ir að Covid kom og svo fengu þeir sendingu af hjólum í Örninn fyrir nokkrum vikum og það eru margar tegundir uppseldar, en það er von á næstu sendingu eftir miðjan mán- uðinn,“ segir Axel og bætir því við að það séu þó margar tegundir til. Mikið að gera á verkstæðinu líka Ekki er aðeins mikil sala af hjólum heldur er einnig nóg að gera á verk- stæðinu í Axelsbúð. „Þetta hefur verið ótrúlegt vor og óhætt að segja að ég sitji ekki aðgerðarlaus,“ segir Axel og hlær. En vegna þess hversu margir hafa komið með hjól til hans í viðgerð varð Axel að sækja gám til að geta geymt hjólin. „Það ætla allir að hjóla í sumar,“ segir hann. Fyrir um það bil ári hóf hann sölu á veiðivörum og er með allar helstu veiðivörur fyrir vatnaveiði, laxveiði og sjóstangveiði. Hann segir söluna á veiðivörunum ganga vel en kallað hafði verið eftir þess- um vörum. „Í gömlu Axelsbúð niður frá, þar sem ég var að vinna til 2005, voru seldar veiðivörur. Þegar ég svo byggði hér við búð- ina mína fór fólk að spyrja hvort ég væri ekki að selja veiðivörur. Ég kom mér þá í samband við heild- sala og ákvað að taka inn þessar vörur,“ útskýrir Axel. arg Hjól sem hafa komið í viðgerð til Axels fylla búðina og hann þurfti að fá gám undir fleiri hjól. „Það ætla allir að hjóla í sumar“ Axel á verkstæðinu í Axelsbúð að gera við hjól.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.