Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2020, Side 19

Skessuhorn - 13.05.2020, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2020 19 Eins og Skessuhorn greindi frá í síðustu viku ákvað sveitarstjórn Reykhólahrepps að ráða Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur í starf sveit- arstjóra. Ingibjörg er vel kunnug starfinu en hún gegndi því frá árinu 2010 til 1018 en ákvað þá að snúa sér að öðru. „Þegar ég fór frá fyrir að verða tveimur árum var ég búin að vera í þessu starfi í átta ár og orðin aðeins þreytt og langaði að breyta til og gera eitthvað annað. En ég áttaði mig fljótlega á að ég saknaði starfsins og langaði að vera hér áfram. Það var því ekki spurn- ing að grípa tækifærið þegar það gafst,“ segir Ingibjörg í samtali við Skessuhorn. „Ég tel mig hafa þekk- ingu sem ég get nýtt í þessu starfi og mig langar að gera það,“ bæt- ir hún við. Eftir að Ingibjörg lét af störfum sem sveitarstjóri árið 2018 tók hún við stöðu framleiðslustjóra hjá Norðursalti. „Það hefur verið mjög skemmtilegt starf líka en mig langar að vera í meiri samskiptum við fólk, ég nýt þess að vinna með fólki og fann missi af því þegar ég skipti um starf,“ segir hún. „Eins og að setjast á hjól“ Ingibjörg er fædd á Patreksfirði og ólst þar upp til fjögurra ára aldurs, þegar hún flutti til Hafnarfjarðar. Hún hefur alltaf haft sterkar taugar vestur og sótti mikið að fara þang- að í öllum fríum. „Mér leið allt- af best fyrir vestan og tilfinning- arnar hafa alltaf verið út á land hjá mér. Ég þrífst ekki vel í stressinu í bænum,“ segir hún. Áður en Ingi- björg flutti til Reykhóla árið 2010 bjó hún í tíu ár í Hvalfjarðarsveit og vann frá árinu 2006-2010 sem skrifstofustjóri á skrifstofu Hval- fjarðarsveitar. Þar kynntist hún vel öllum störfum sveitarfélagsins og fékk áhuga á að starfa á því sviði. Það kom því lítið annað til greina en að sækja um starf sveitarstjóra á Reykhjólum árið 2010. En hvern- ig er að setjast í sætið á ný eftir tvö ár frá störfum? „Þetta er eins og að setjast á hjól og byrja að hjóla, það kemur allt mjög hratt,“ segir hún og hlær. „Það er í raun eins og ég hafi ekkert farið frá. Það eru aðeins önnur mál en líka mörg þau sömu, ég var vissulega ekki svo lengi í burtu. En það er þó eitt og annað nýtt sem ég þarf að kynna mér bet- ur og koma mér inn í,“ bætir hún við. Sauðburður búinn Ingibjörg er gift Hjalta Hafþórs- syni, Siglfirðingi, bátasmiði og framleiðslustjóra hjá Norður- salti, og saman eiga þau þrjú börn á aldrinum 15-27 ára. „Við áttum alltaf húsið okkar í Hvalfjarðarsveit áfram eftir að við fluttum hing- að en seldum það svo og keyptum okkur litla jörð hér í Reykhjóla- sveit bara á þeim tíma sem ég hætti sem sveitarstjóri, árið 2018,“ seg- ir Ingibjörg en þau búa að Kletta- borg og eru þar með nokkra hesta, átta kindur, einn hrút og nokkrar endur. „Sauðburður er búinn hjá okkur. Það varð smá vesen, hrútur- inn slapp í haust og þetta fór allt úr böndunum hjá okkur svo sauð- burður var snemma,“ segir hún og hlær. „Það kom sér samt vel, ætli það hafi ekki bara átt að fara svona því nú þarf ég ekki að standa í sauð- burði á meðan ég er að koma mér inn í þetta starf aftur, með allar þessar kindur,“ heldur hún áfram kímin. Heilsan á oddinn Aðspurð segist hún afskaplega spennt fyrir nýja gamla starfinu sínu en formlega tekur hún til starfa í næsta mánuði. „Það þarf að fá einhvern í mitt starf hjá Norður- salti en ég er samt byrjuð að mæta á skrifstofuna svona seinni part- inn, aðeins að koma mér inn í mál- in. Það er rosalega gott að koma aftur,“ segir hún ánægð. En hvaða mál ætlar Ingibjörg að setja á odd- inn sem nýr sveitastjóri? „Fyrst og fremst að vinna mína vinnu vel og í góðu samstarfi við starfsfólk og íbúa sveitarfélagsins,“ svarar hún. „En það sem ég hef mikinn áhuga á að gerist í okkar sveitarfélagi í dag er að við förum að huga bet- ur að heilsunni okkar, bæði líkam- legri og sér í lagi andlegri heilsu. Ég vil að við setjum þetta á odd- inn og finnst það í raun mikilvægt í öllum samfélögum. Heilsan okkar skiptir svo miklu máli í stóra sam- henginu og ég held að sem betur fer séum við alltaf að átta okkur betur á því, og ekki síður hvað and- leg heilsa skiptir miklu máli líka,“ segir hún. „Sem betur fer er sveit- arstjórnin hér núna skipuð fólki sem veit þetta og er byrjað að taka fyrstu skrefin í að þeirri vinnu að gera Reykhóla að heilsusamfélagi. Ég hlakka til að fara af stað með fleiri verkefni í tengslum við það,“ heldur hún áfram. Aðspurð segist hún ekki búin að skipuleggja neina sérstaka leið að þessu markmiði. „Þetta er bara verkefni sem ég mun tækla með mínu starfsfólki. Ég veit að þessu verður vel tekið og við munum halda þessu á lofti næstu misseri. Stress og streita er að hafa svo mikil áhrif á líf okkar alls stað- ar, meira að segja grunnskólabörn eru að upplifa það, og jafnvel niður í leikskóla. Við þurfum að bregð- ast við og koma því inn í venjulegt líf að huga að heilsunni til að við getum staðist það stress sem sam- félagið okkar skapar. Þar sem fólki líður vel er gott að búa,“ segir hún að endingu. arg Ingibjörg Birna er sest á ný í sveitarstjórastólinn á Reykhólum. Ljósm. aðsend „Þar sem fólki líður vel er gott að búa“ -segir Ingibjörg Birna sveitarstjóri á Reykhólum Menntaskóli Borgarfjarðar, með stuðningi Sóknar- áætlunar Vesturlands, heldur þann 19. maí stafræna ráðstefnu undir yfirskriftinni „Menntun fyrir störf framtíðarinnar“. Hvernig ætlum við að undirbúa nemendur, skólakerfið og fyrirtækin fyrir hraðar breytingar næstu ára og hefur COVID-19 flýtt þessum breytingum? Fjöldi spennandi fyrirlesara munu halda erindi og hvetja okkur til að „hugsa út fyrir boxið“. Fyrirlestrarnir verða stuttir og snarpir og í lokin mun panell ræða saman og svara spurningum sem berast rafrænt á meðan á ráðstefn- unni stendur. Helmingur fyrirlesaranna hefur rætur að rekja til Borgar- fjarðar auk fjölda annara frábærra gesta: Hjálmar Gíslason, Hvanneyringur, stofnandi og fram- kvæmdastjóri GRID og áhugamaður um tækni, fjöl- miðla, lífið, tilveruna og alheiminn. Hlín Helga Guðlaugsdóttir, úr Reykholtsdal, kennari við Stockholm School of Entrepreneurship ofl menntastofn- anir í gegnum tíðina, curator hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, ráðgjafi í Design Thinking. Bjarki Þór Grönfeldt, úr Norðurárdal, er doktorsnemi og aðstoðarkennari í stjórnmálasálfræði við Kent-háskóla í Bretlandi. Sigurður Hannesson, Hvanneyringur, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Nánari dagskrá og upplýsingar um fyrirlesarana má nálgast á https://menntaborg.is/radstefna/ Ráðstefnan er öllum opin og verður streymt af heima- síðu og Facebooksíðu Menntaskóla Borgarfjarðar. Menntun fyrir störf framtíðarinnar

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.