Skessuhorn - 19.08.2020, Síða 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 23. árg. 19. ágúst 2020 - kr. 950 í lausasölu
Tilboð gildir út ágúst 2020
* 330 ml. af Coca Cola
eða Coca Cola
án sykurs fylgir með
Hot dog & Coca cola
529 kr.
& coke
Í dós
Á næstu dögum hefja skólar landsins vetrarstarfið. Skólahald á framhaldsskólastigi hefst nú í vikunni og grunnskólar fara af stað eftir helgi. Vinirnir Hlífar Bragi
Bjarnason, til vinstri, og Gunnar Logi Guðmundsson á Akranesi taka hér stökkið við Fjölbrautaskóla Vesturlands í gærdag. Hlífar Bragi segist ætla að fara í FVA þegar
hann verður stór, en ætlar að klára Grundaskóla fyrst. Gunnar Logi var ekki alveg viss með sín framtíðarplön. Sjá nánar frétt um upphaf skólastarfs á bls. 16. Ljósm. glh.
Er þess
vegna skrýtinn
Hann er fæddur í Hafnarfirði, alinn upp í Vest-
urbæ Reykjavíkur og ættaður úr Vestmannaeyj-
um. „Það er ástæðan fyrir því að ég er dálítið
skrýtinn.“ Þannig mælist Gísla Gíslasyni þegar
hann er spurður út í upprunann. Gísli er í ítar-
legu viðtali í Skessuhorni í dag. Þar fer hann yfir
ferilinn sem lögmaður, bæjarstjóri, hafnarstjóri,
íþróttamaður, félagsmálamaður og nú námsmað-
ur sem stefnir á miðstig í harmonikkuleik. Gísli
lætur senn formlega af störfum hafnarstjóra en
kveðst hafa næg verkefni engu að síður.
Sjá bls. 14-15.
Vilja fjölga íbúum
á Bifröst
Flestir sem stunda nám við Háskólann á Bifröst
gera það í fjarnámi og er skólinn í fararbroddi
þegar kemur að slíku námsfyrirkomulagi. Nú er
hafið átaksverkefni sem felst í að fjölga íbúum
á Bifröst, sem eru nú 100 talsins en geta hæg-
lega verið 350 miðað við framboð góðra íbúða.
„Hugmyndafræðin er að fólk geti komið á Bif-
röst, búið á Bifröst, sinnt námi á Bifröst og not-
ið lærdómssamfélagsins sem hérna er,“ segja
þeir sem kynna þennan vænlega kost til búsetu.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn í há-
skólaþorpið.
Sjá bls. 12-13
Strandveiðum
að ljúka
Í dag er síðasti dagur strandveiða á þessu sumri.
Veiðiheimildir upp á tæplega 12 þúsund tonn
eru uppurnar og því ekki annað í boði en halda
í land. Eins og spáð hafði verið héldu margir til
veiða í vor, ekki síst þegar fyrir lá að grásleppu-
vertíð yrði endaslepp. Veiðar hafa gengið vel í
sumar og verð verið þokkalegt fyrir aflann.
Sjá bls. 2.
Opið alla daga
Ljómalind Sveitamarkaður,
Brúartorgi 4, Borgarnesi
Sími 437-1400,
ljomalind@ljomalind.is
Haust
grænmetið er
komið.
Pólskar
kjötvörur
í úrvali,
kjöt og fiskur
Arion appið
Skv. könnun MMR.
Besta bankaappið
�jórða árið í röð