Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 15 ir var valin íþróttamaður ársins árið 1992 og svo seinna þegar við fórum að upplifa velgengni golfarana. Allt í þessum dúr, í tengslum við íþrótt- irnar, var mjög skemmtilegt,“ segir Gísli. Rauður þráður „Ég æfði sem krakki, var í fótbolta í KR í gamla daga og spilaði eitt- hvað af leikjum fyrir KR í meist- araflokki.“ Seinna gekk hann til liðs við Old Boys lið Skagamanna og varð með því tvöfaldur Íslands- meistari. „Svo var ég lengi í körfu- bolta í meistaraflokki og í landslið- inu. Eftir að ég kom upp á Skaga spilaði ég í nokkur ár með Skag- anum í körfunni,“ segir hann. Við það má bæta að ef flett er upp í gömlum tölublöðum Skagablaðs- ins má sjá að Gísli spilaði með körfuknattleiksliði ÍA eftir að hann tók við starfi bæjarstjóra, auk þess að þjálfa liðið. Spilandi þjálfarar eru þekkt stærð í liðsíþróttum, en færri dæmi eru þekkt um spilandi bæjarstjóra. Síðar varð Gísli formaður Knattspyrnufélags ÍA og tók sæti í stjórn KSÍ, þar sem hann starfar enn. „Íþróttirnar eru rauður þráð- ur í gegnum mitt líf eiginlega. Þar skiptir auðvitað máli að Hallbera konan mín er gömul sunddrottn- ing og áhugamanneskja um íþrótt- ir. Börnin okkar hafa verið í íþrótt- um. Þeir Jóhannes og Þorsteinn spiluðu báðir með Skagaliðinu og svo er náttúrulega Hallbera ei- lífðardrottning í þessum fótbolta- heimi,“ segir Gísli, en Hallbera dóttir þeirra er sem kunnugt er fyr- irliði Íslandsmeistara Vals og hefur verið fastamaður í landsliðinu til margra ára. „Hún er með vinstri fótinn hans pabba síns,“ segir Gísli og hlær við. „En hún hefur reynd- ar náð betri tökum á honun,“ bætir hann við, léttur í bragði. Eftirminnileg augnablik Hafandi verið viðloðandi íþróttir alla tíð, hverjar eru eftirminnileg- ustu stundirnar? „Það eru kannski tvö atvik sem standa alltaf nálægt manni, þó auðvitað sé að finna hafsjó af atvikum og augnablik- um,“ segir Gísli og fer í fyrsta lagi aftur til ársins 1981. „Þá spilaði ég síðasta leikinn minn fyrir KR, einmitt á móti ÍA. Það var dálít- ið skrautlegur leikur og við félag- arnir hérna á Skaganum höfum oft minnst hans sem dálítið sérstaks leiks,“ segir Gísli. KR-liðið var þá í harðri fallbaráttu. Leikinn gegn ÍA þurfti KR að vinna, en hafði ekki unnið síðan á sjöunda áratugnum. „Það endaði með því að KR vann, 2-1, en það urðu eftirmálar. Leik- urinn var kærður en að lokum fór það svo að úrslitin stóðu. Þetta var eftirminnileg stund,“ segir hann, en sigurinn gegn ÍA gerði það að verkum að KR-ingar björguðu sér frá falli. „Næsta atvik sem er sérstaklega eftirminnilegt er þegar Skaginn varð Íslandsmeistari 2001 í Vest- mannaeyjum. Það var mjög drama- tískt,“ segir Gísli og er það varlega til orða tekið. „Í öllum aðdraganda þess tímabils höfðu verið fjárhags- erfiðleikar hjá félaginu. Við, Gylfi Þórðarson og Haraldur Sturlaugs- son, komum að því að rétta við skútuna. Leikmennirnir sýndu af sér einstakan þroska, þéttu raðirn- ar og stóðu svo uppi sem Íslands- meistarar í Vestamannaeyjum eft- ir mikla dramatík í lokaleiknum,“ segir Gísli. Það voru einmitt Eyja- menn sem höfnuðu í öðru sæti, með jafn mörg stig og ÍA. Þeir þurftu sigur í lokaleiknum til að komast upp fyrir Skagamenn, en honum lauk með 2-2 jafntefli eftir að mark hafði verið dæmd af ÍBV, eins og frægt varð. „Þetta var alveg ógleymanleg stund,“ segir hann. Gefandi og árangursríkur tími Eins og áður greinir hefur Gísli verið hafnarstjóri Faxaflóahafna undanfarin 15 ár, en samhliða starfi bæjarstjóra Akraness var hann hafn- arstjóri yfir Akraneshöfn. „Þann- ig að ég er svo sem búinn að vera í hafnarmálum frá 1987. Upp úr aldamótum var gerður samning- ur um að Akraneshöfn sæi líka um höfnina á Grundartanga. Þannig að þegar ég byrjaði hjá Faxaflóahöfn- um þá var ég að fara inn á svið sem ég þekkti ágætlega til,“ segir Gísli. „Hafnarmálin eru mjög skemmti- leg og þessi tími hjá Faxaflóa- höfnum hefur verið mjög gefandi og að mörgu leyti árangursríkur, með mörgum skemmtilegum verk- efnum,“ bætir hann við. Hver eru þau helst? „Stærstu málin tengjast höfnunum í Reykjavík, uppbygging á Sundahöfn og þróun og breyting- ar á gömlu höfninni í Örfirisey, þar sem hefur verið reynt að finna jafn- vægi milli atvinnulífsins annars veg- ar og hins vegar aðgengis almenn- ings og ferðamanna. Það hefur að mörgu leyti tekist ágætlega,“ seg- ir Gísli. „Að hluta hefur líka orð- ið jákvæð þróun inni á Grundar- tanga, þó síðustu árin hafi þar verið tiltölulega rólegt. Þar er hins veg- ar ennþá mýgrútur af tækifærum til að byggja upp skynsamlega atvinnu sem myndi styrkja bæði höfnina og samfélagið,“ segir hann og nefnir sem dæmi framleiðslu rafeldsneyt- is, sem nú er í skoðun hjá Þórunar- félagi Grundartanga og hefur áður verið greint frá í Skessuhorni. Hann segir þó að hann hefði viljað sjá meiri grósku í höfninni á Akra- nesi á sínum tíma. „Það var mark- miðið að styrkja Akranes sem fiski- höfn, en þar má segja að þróunin hafi farið á annan veg, með tilfærslu á fiskvinnslunni sem var auðvitað áfall bæði fyrir höfnina og Akranes í heild,“ segir Gísli. „En þá þarf að finna ný tækifæri til að byggja upp til framtíðar. Það eru verkefni sem bíða eftirmanns míns,“ segir hann og brosir, en bætir því við að hann von- ist til að nýtt þróunarfélag á Breið- inni geti stutt við þá uppbyggingu. „Síðan verður að geta þess að síð- asta árið hafa menn staðið vel sam- an hérna á Skaganum í að reyna að halda vel utan um þessa smábátaút- gerð sem þó er hér og hefur verið þungamiðjan í starfseminni, ásamt sements- og áburðarflutningum,“ segir hann. „Aðstaðan hér fyrir smá- bátaútgerð er mjög góð og maður hefur séð fleiri aðkomubáta hér und- anfarið en áður. Það er gott og skilj- anlegt, því aðstaðan og þjónustan er góð,“ bætir hann við. Þenur nikkuna í frístundum Gísli hefur haft í mörg horn að líta um langt skeið. Hefur hann haft einhvern tíma til að sinna öðru en vinnu og félagsstörfum undanfar- in ár? „Já, ég er í tónlistarskólan- um á Akranesi,“ segir hann og hlær við. „Ég var búinn að horfa til þess lengi að einhvern tímann myndi ég vilja spila á harmonikku. Hugsunin á bakvið það var að prófa að gera eitt- hvað sem maður kynni alls ekki og athuga hvað maður kæmist langt,“ segir hann léttur í bragði. úr varð að fyrir nokkrum árum síðan skráði hann sig í hálft nám á harmonikku í tónlistarskólanum. „Það hefur hins vegar verið að vinda upp á sig,“ seg- ir Gísli og heldur áfram: „Ég var svo heppinn að lenda hjá henni Rut Berg Guðmundsdóttur tónlistarkenn- ara, sem hafði í fyrsta lagi skilning á þekkingarleysi mínu á verkefninu í upphafi og þolinmæði til að koma mér áfram,“ segir hann. „Það end- aði með því að fyrir tveimur árum síðan tókum við ákvörðun um að ég færi í stigspróf og lauk grunn- stigi. Og nú erum við sammála um að stefna á miðstig,“ segir hann og hlær við. „Þetta hefur verið mjög gefandi og skemmtilegt og ég vil meina að barnabörnin og fjölskyld- an sé farin að geta hlustað á mig án þess að kvarta,“ bætir hann við létt- ur í bragði. Engar áhyggjur af framtíðinni á þessum tímamótum sem nú standa yfir, þegar hann lætur af störfum sem hafnarstjóri er ekki úr vegi að biðja Gísla að líta heildstætt yfir farinn veg. „Ég er þakklátur fyrir allt sem ég hef fengið að taka þátt í á þessum árum eftir að ég kom hingað á Skag- ann. Flest hefur sem betur fer geng- ið vel. Auðvitað hafa verið þrösk- uldar á leiðinni, en maður hefur til- hneigingu til að gleyma þeim,“ seg- ir Gísli. Hann er þannig ekki einn þeirra sem muna alltaf mótlætið. „Ég er mjög innstilltur á að það sé gott að þekkja fortíðina en til þess að vita hverju er hægt að breyta og hafa áhrif á, þarf alltaf að horfa fram á veginn, því fortíðinni breytir mað- ur ekki,“ segir hann. En hvað tekur við hjá Gísla nú þegar hann hefur látið af hafnar- stjórastarfinu? „Núna fram að ára- mótum verð ég í nokkrum smærri verkefnum, m.a. fyrir Faxaflóahafnir og svo tók ég að mér að sitja í stjórn nýs þróunarfélags á Breiðinni. Ég er líka í nefnd fyrir hönd Faxaflóahafna varðandi Sundabraut. Við skulum sjá til hvort ekki verður hægt að koma því í eitthvað horf, þannig að málið komist áfram. Þetta eru verkefnin fram að áramótum, en eftir áramót- in hef ég bara ekki hugmynd,“ seg- ir hann og hlær við. „Og það er líka ákveðin áskorun í því, að vita ekk- ert endilega að hverju maður geng- ur. Maður er pínulítið að kasta sér út í ákveðna óvissu, sem ég held að sé bara hollt,“ segir Gísli og kveðst fyr- ir löngu hafa verið búinn að ákveða að haga málunum á þennan veginn. „Ég hef ágætis tíma til að skoða hvað tekur við. Það er mjög ólíklegt að það verði eitthvað fast starf, ég stefni ekki á það. Mig langar að fá að gera hitt og þetta og ráða tíma mínum sjálfur með henni Hallberu minni eins og hægt er. Ég vona að ég og við bæði verðum við góða heilsu, hún skiptir gríðarlega miklu máli til að maður hafi ánægju af lífinu og lífs- gæði. Ef manni gefst það þá hef ég engar áhyggjur af framtíðinni,“ segir Gísli Gíslason að endingu. kgk Hjónin Gísli og Hallbera Jóhannesdóttir koma í mark í Akraneshlaupinu árið 1992. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness/ Árni S. Árnason. Skóflustunga tekin að Akraneshöll vorið 2005. Gísli var þá bæjarstjóri og fylgist hér með knattspyrnuhetjunni Ríkharði Jónssyni taka fyrstu skóflustunguna ásamt Stefáni Teiti Þórðarsyni sex ára og Bryndísi Rún Þórólfsdóttur sjö ára, sem bæði eru lykilmenn í meistaraflokkum ÍA í dag. Ljósm. úr safni/ mm. Gísli veitir hér sýnikennslu í því að bera björgunarmaska, þegar Spölur gaf Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar rafbíl ásamt tækjum og björgunarbún- aði. Ljósm. úr safni/ þá. Grundartangahöfn í maí síðastliðnum. Þar segir hafnarstjórinn mýgrút af tækifærum til uppbyggingar. Ljósm. úr safni/ mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.