Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 20202 Mikil veðurblíða hefur verið á Vest- urlandi undanfarna daga og má búast við áframhaldandi sólskini. Því er vert að minna á sólarvörn- ina og mikilvægi þess að löðra á sig slíkri vörn til að vernda húðina áður en farið er út. Ekki viljum við verða eins og gamlar leðurtöskur! Á morgun verður norðaustanátt og hvassast við suðausturströndina, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 5-10 stig austast á landinu, en allt að 16 stig á Vesturlandi. Á föstu- dag helst sama vindátt. Skýjað verð- ur á austanverðu landinu. Sums- staðar má búast við vætu en annars léttskýjað. Hiti 5-14 stig og hlýjast á suðvesturhorninu. Á laugardag er reiknað með hægri norðlægri átt og víða björtu veðri. Kaldi og skýjað með austurströndinni. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir hæglætis- veður, bjart með köflum og milt að deginum. „Ætlar þú að ganga til berja í sum- ar,“ var spurningin á vef Skessu- horns í síðustu viku. Flestir segjast örugglega ætla það, eða 37%. Næst- flestir segjast ekki ætla á berjamó, eða 28%. 21% sögðust sennilega fara í berjamó en fæstir, eða 14% voru ekki vissir hvort þeir myndu ganga til berja í sumar. Í næstu viku er spurt: Saknar þú þess að komast ekki til útlanda? Ingimundur Ingimundarson í Borg- arnesi hefur verið öflugur við þjálf- un og ekki síður að skipuleggja og stýra púttmótum fyrir eldriborg- ara í sinni heimabyggð og mótum á Vesturlandsvísu. Vestlenskir pútt- arar eru þar af leiðandi komnir í rað- ir þeirra öflugustu. Ingimundur er Vestlendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Umfjöllun en ekki stjórnsýslu- rannsókn LEIÐRÉTT: Í síðasta tölu- blaði var frétt með fyrirsögn- inni „Sveitarstjórnarráðuneyt- ið boðar stjórnsýslurannsókn.“ Um er að ræða ákvörðun ráðu- neytisins þess efnis að fram fari skoðun á embættisfærslum á umhverfis- og skipulagssviði Borgarbyggðar. Í tilkynningu frá Borgarbyggð til Skessuhorns í kjölfar birtingu fréttarinnar var óskað eftir leiðréttingu þess efnis að sveitarstjórnarráðu- neytið er ekki að taka stjórn- sýslu Borgarbyggðar til rann- sóknar. „Rannsókn myndi þýða að starfsmenn ráðuneytis tækju stjórnsýsluna út og skila eigind- legri niðurstöðu þar sem far- ið væri yfir vankantana í stjórn- sýslunni. Ráðuneytið hefur til- kynnt Borgarbyggð að það sé að hefja formlega umfjöllun þar sem leitast verði við að gefa út leiðbeiningar/álit um lögmæta athafna sveitarfélagsins og að ráðuneytið muni einungis beina sjónum sínum að því hvort stjórnsýsla sveitarfélagsins hafi verið í samræmi við meginregl- ur stjórnsýsluréttar og vandaða stjórnsýsluhætti. Ráðuneytið tekið svo ákvörðun um hvort og þá með hvaða hætti ráðuneyt- ið fylgi eftir umfjöllun sinni. Það er því mikill greinamunur á þessum tveimur orðasambönd- um,“ segir í tilkynningu frá Borgarbyggð. Ritstjóri biðst af- sökunar á ónákvæmri orðanotk- un í fyrirsögn, en tekur fram að staðið er við efni fréttarinnar að öðru leyti. -mm Slasaðist á fæti HVALFJ: Um klukkan 18:30 á sunnudagskvöld fengu björgun- arsveitir á Vesturlandi boð um að koma slasaðri konu til að- stoðar á gönguleiðinni að foss- inum Glymi í Hvalfirði. Björg- unarsveitarmenn komust á fjór- hjóli til konunnar og gátu ekið með hana niður að bílastæði í veg fyrir sjúkrabíl. Hún var ekki alvarlega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu. Verkefninu var lokið tæpum tveimur tímum. -mm SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Almennt er reiknað með að at- vinnulausu fólki fjölgi í haust þeg- ar uppsagnafrestur rennur út hjá mörgum. Ekki hvað síst mun fjölga í hópi starfsfólks ferðaþjónustu og tengdra greina sem missir fram- færslu sína á vinnumarkaði. „Þetta er veruleiki sem blasir við allt of mörgum en í júní reiddu 16.165 einstaklingar sig á atvinnuleysis- bætur. Það þarf því ekki að fara mörgum orðum um það að mán- aðarlegar skuldbindingar eru jafn- an hærri en atvinnuleysisbæturn- ar; húsnæðiskostnaður, samgöngu- kostnaður, sími, tryggingar og svo mætti áfram telja,“ segir Drífa Snæ- dal forseti Alþýðusambands Íslands í vikulegum föstudagspistli sínum. Drífa bendir á að grunnatvinnu- leysisbætur í dag eru 289.510 kr. á mánuði. Það þýðir um 240 þúsund krónur útborgaðar. Að auki fá at- vinnuleitendur 11.580 krónur með hverju barni undir 18 ára aldri. Í þrjá mánuði fær fólk þó tekjutengd- ar atvinnuleysisbætur (70% af með- altali heildarlauna) þó að hámarki 456.404 kr. á mánuði. „Að vera atvinnulaus er fjárhags- legt og félagslegt áfall. áhyggjur af framfærslu, skert sjálfstraust því maður er ekki að „standa sig“, töp- uð tengsl við vinnufélaga og það að detta úr rútínu í daglegu lífi reynist mörgum afar erfitt og er ekki hlut- skipti sem fólk almennt velur sér,“ skrifar Drífa. „Að halda fólki sem missir vinnuna í fátæktargildru er ómannúðlegt. Það er skaðlegt fyrir einstaklinga sem lenda í slíku og býr til meiri samfélagleg og efnahags- leg vandamál en við glímum við nú þegar. Þess vegna er nauðsynlegt að hækka útgreiddar atvinnuleysis- bætur og lengja tímabilið þar sem fólk fær tekjutengdar bætur,“ skrif- ar Drífa í áskorun til stjórnvalda. mm Dagurinn í dag, miðvikudagurinn 19. ágúst, verður síðasti strand- veiðidagurinn á þessu tímabili. Frá og með morgundeginum verða strandveiðar bannaðar, tæpum tveimur vikum áður en veiðitíma- bilið er á enda. Greint hefur verið frá þessu á vef Fiskistofu. Strandveiðitímabilið er frá 1. maí og út ágústmánuð, en útgefnar afla- tilboð í fyrsta áfanga breikkunar Vesturlandsvegar um Kjalarnes voru opnuð hjá Vegagerðinni þriðjudag- inn 11. ágúst síðastliðinn. Aðeins tvö tilboð bárust og átti Ístak hf. lægra tilboðið, eða rúmar 2.305 milljónir króna sem er um fjórum prósentum yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 2.226 milljónir. Hærra boðið var sameiginlegt tilboð Suðurverks og Loftorku, upp á 2.587 milljónir, eða um 16% yfir kostnaðaráætlun. Í þessum fyrsta áfanga verks- ins felst breikkun Vesturlands- vegar á 4,13 km löngum kafla frá Varmhólum að Vallá, með hring- torgi við Móa og undirgöngum við Varmhóla og Saltvík, auk hlið- arvega og stíga. Núverandi Vestur- landsvegi verður breytt í 2+1 veg með aðskildum akbrautum. Verk- inu skal vera að fullu lokið fyrir júní 2023. kgk/ Ljósm. úr safni. Strandveiðar stöðvaðar í dag heimildir duga ekki til að ljúka yfir- standandi vertíð. Við upphaf tíma- bilsins lá fyrir að leyfilegur heild- arafli yrði 11.100 tonn, þar af tíu þúsund tonn í þorski. Um miðjan júlí var ljóst að þær heimildir dygðu ekki til að ljúka tímabilinu og 20. júlí ákvað sjávarútvegsráðherra að bæta við 720 tonnum í þorski. Var leyfilegur heildarafli þar með orðinn 11.820 tonn, þar af 10.720 tonn í þorski. Er sá kvóti nú að klárast. Síðastliðinn fimmtudag stóð þorskaflinn í 10.244 tonnum og heildaraflinn í 11.253 tonnum, að því er fram kemur á vef Lands- sambands smábátaeigenda. Alls hefur 676 bátum verið róið til strandveiða á yfirstandandi veiðitímabili, eða 47 fleiri en á tímabilinu í fyrra. Bátum með út- gefin strandveiðileyfi hefur fjölgað á öllum svæðum, mest á svæði D þar sem þeir eru 25 fleiri en á síð- asta ári og næstmest á svæði A þar sem þeim hefur fjölgað um 16. kgk Unnið við löndun strandveiðiafla í Grundarfirði fyrr á veiðitímabilinu. Ljósm. úr safni/ tfk. Forseti ASÍ hvetur til hækkunar bóta Drífa Snædal er forseti ASÍ. Ístak átti lægra boðið í breikkun á Kjalarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.