Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 23
Káramenn unnu góðan útisigur á
Völsungi, 2-3, þegar liðin mætt-
ust í 2. deild karla í knattspyrnu á
laugardaginn. Leikið var norður á
Húsavík.
Heimamenn fengu óskabyrjun,
þegar Elvar Baldvinsson kom Völ-
sungi yfir strax á 2. mínútu leiks-
ins. En Káramenn voru betri í fyrri
hálfleik. Þeir jöfnuðu metin á 20.
mínútu með marki frá Páli Sindra
Einarssyni. á 33. mínútu leiksins
skoraði Elís Dofri G. Gylfason og
kom Kára í 1-2 og þannig var stað-
an í hálfleik.
Aðeins fjórar mínútur voru liðn-
ar af síðari hálfleiknum þegar Andri
Júlíusson skoraði þriðja mark Kára.
Þannig stóðu leikar þar til tíu mín-
útur voru eftir. Þá minnkaði ásgeir
Kristjánsson muninn fyrir Völsung
og þar við sat. Kári vann 2-3.
Káramenn hafa 14 stig í 8. sæti
deildarinnar, fjórum stigum meira
en ÍR en stigi á eftir næstu liðum.
Deildin er afar jöfn og aðeins sex
stig skilja að 1. og 8. sætið. Næsti
leikur Kára er gegn Þrótti V. í Akra-
neshöllinni í kvöld, miðvikudaginn
19. ágúst. kgk
ÍA og Víkingur R. skildu jöfn,
1-1, þegar liðin mættust í 1. deild
kvenna í knattspyrnu. Leikið var í
Akraneshöllinni á mánudagskvöld.
Leikurinn var markalaus framan
af, eða allt þar til skammt var eftir af
fyrri hálfleik. Þá skoraði Unnur Ýr
Haraldsdóttir og kom Skagakon-
um yfir. Þannig var staðan lengi vel
og virtist stefna í að þær gulklæddu
færu með sigur af hólmi. Það var
ekki fyrr en tíu mínútur lifðu leiks
að gestirnir úr Víkingi R. jöfnuðu
metin með marki frá Dagnýju Rún
Pétursdóttur. Staðan því orðin 1-1
og þannig lyktaði leiknum.
Skagakonur sitja í 6. sæti deild-
arinnar með átta stig eftir átta
leiki, jafn mörg og Víkingur R. og
Augnablik í sætunum fyrir neðan
en stigi á eftir Aftureldingu. Næsti
leikur ÍA er útileikur gegn Gróttu
á laugardaginn, 22. ágúst næstkom-
andi. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Skagamenn unnu dramatískan sig-
ur á Fylki, 3-2, þegar liðin mætt-
ust í Pepsi Max deild karla í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Leikið var
á Akranesi.
Snemma leiks settu Skagamenn
boltann í stöngina en þess utan
voru gestirnir hættulegri fram á
við í fyrri hálfleik. Þeir komust yfir
á 39. mínútu þegar Arnór Gauti
Ragnarsson skoraði eftir fyrirgjöf
frá Valdimar Ingimundarsyni.
Steinar Þorsteinsson jafnaði fyrir
ÍA á 55. mínútu. Hann fékk bol-
tann fyrir utan vítateiginn vinstra
megin, sneri inn á miðjuna og sen-
di hann í stöngina fjær og í netið.
Einstaklega laglegt mark hjá Stei-
nari. Skagamenn voru sterkari eft-
ir jöfnunarmarkið og þeir komust
yfir á 75. mínútu. Fylkismönnum
mistókst að hreinsa eftir hornspyr-
nu sem endaði með því að boltinn
barst á Stefán teit Þórðarson sem
var einn á auðum sjó og átti ekki í
vandræðum með að skora úr mark-
teignum. En Fylkismenn voru ekki
af baki dottnir og jöfnuðu metin
á 84. mínútu, þegar Orri Sveinn
Stefánsson skoraði með skalla eft-
ir laglega fyrirgjöf frá Djair Partiff-
Williams.
Orri átti eftir að koma meira við
sögu á lokamínútum leiksins. Þe-
gar komið var fram í uppbótartí-
ma var boltinn sendur innfyrir
vörn Fylkismanna á tryggva Hrafn
Haraldsson, sem var kominn einn
á móti markmanni í vítateignum
þegar Orri braut á honum. Hlaut
hann rautt spjald að launum og Sk-
agamenn fengu vítaspyrnu. tryg-
gvi fór sjálfur á punktinn, skoraði
af miklu öryggi og tryggði Skag-
amönnum dramatískan sigur, 3-2.
Skagamenn hafa 13 stig í 7.
sæti deildarinnar, jafn mörg og
Víkingur R. í sætinu fyrir neðan en
tveimur stigum á eftir Fylki. Næs-
ti leikur ÍA í deildinni er útileikur
gegn KA laugardaginn 22. ágúst
næstkomandi. Í gær mættu Skag-
amenn liði Vals á Hlíðarenda í 16
liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Sá
leikur var hins vegar ekki hafinn
þegar blaðið fór í prentun, en um-
fjöllun um hann má sjá á vef Skes-
suhorns. kgk/ Ljósm. úr safni/ gbh.
Snæfellingar áttu sér ekki við-
reisnar von gegn KFR, þegar lið-
in mættust í 4. deild karla í knatt-
spyrnu á laugardaginn. Leikið var
í Stykkishólmi, þar sem gestirnir
skoruðu hvert markið á fætur öðru
en Snæfell komst ekki á blað. Gest-
irnir skoruðu sjö mörk í fyrri hálf-
leik og héldu áfram í þeim síðari,
þar sem þeir skoruðu sex. Snæfell-
ingar komust hins vegar ekki á blað
og leiknum lauk með því að KFR
sigraði með hvorki fleiri né færri
en 13 mörkum gegn engu. Aron
Daníel Arnalds skoraði sex mörk
fyrir KFR, þeir Ævar Már Viktors-
son, Kristinn ásgeir Þorbergsson
og Kacper Bielawski skoruðu tvö
mörk hver og Helgi Valur Smára-
son skoraði eitt.
Snæfellingar hafa eitt stig í 7. og
neðsta sæti B riðils 4. deildarinnar,
þremur stigum á eftir álafossi í sæt-
inu fyrir ofan. Næsti leikur Hólm-
ara er gegn Kormáki/Hvöt á úti-
velli föstudaginn 22. ágúst næst-
komandi.
kgk/ Ljósm.sá.
Víkingur Ó. beið lægri hlut gegn
Þrótti R. á heimavelli, 1-2, þeg-
ar liðin mættust í 1. deild karla í
knattspyrnu á laugardagskvöld. Var
þetta fyrsti sigur Þróttar í deildinni
í sumar.
Ólafsvíkingar fengu prýðilegt
færi strax í upphafi leiksins. Ívar
Reynir Antonsson fékk þá boltann
á fjærstöng eftir fyrirgjöf, átti gott
skot að marki sem Franco Lalic í
marki Þróttara varði vel. Bæði lið
sýndu annars ágætis tilburði fram-
an af fyrri hálfleik. Þróttarar fengu
dauðafæri á 25. mínútu þegar Oli-
ver Heiðarsson slapp einn í gegn en
Brynjar Atli Bragason varði vel frá
honum.
Ísinn var brotinn á 33. mínútu
leiksins þegar Esau Rojo Martinez
kom Þrótti yfir. Hann fékk boltann
í teignum eftir fyrirgjöf og potaði
honum í stöngina, tók síðan sitt
eigið frákast og kom því yfir lín-
una.
Ólafsvíkingar voru öflugri eftir
að hafa lent undir og náðu að jafna
metin á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Harley Willard fékk þá boltann eft-
ir vandræðagang í vörn gestanna,
fór framhjá nokkrum varnarmönn-
um og lagði boltann snyrtilega í
hornið fjær.
Snemma í fyrri hálfleik kom síðan
markið sem átti eftir að ráða úrslit-
um. Oliver Heiðarsson fékk bolt-
ann úti vinstra megin, geystist fram
völlinn. Varnarmenn Víkings virt-
ust vera að bíða eftir fyrirgjöfinni
og bökkuðu frá honum, en Oliver
setti boltann bara fast í hornið og
kom Þrótti yfir.
Víkingar voru ívið sterkari það
sem eftir lifði leiks en tókst ekki að
skapa sér nein alvöru tækifæri til að
jafna metin. Leiknum lauk því með
sigri gestanna, 1-2.
Víkingur Ó. situr í 10. sæti deild-
arinnar með níu stig eftir níu leiki,
stigi á eftir Leikni F. en með fimm
stiga forskot á Þrótt. Næsti leik-
ur Ólafsvíkinga er útileikur gegn
Keflavík í kvöld, miðvikudaginn 19.
ágúst. kgk
Þrettán marka
tap Snæfellinga
Harley Willard skoraði eina mark Ólafsvíkinga í tapleiknum gegn Þrótti. Ljósm. af.
Þurftu að lúta í gras
á heimavelli
Vítaspyrna í uppbótartíma réði úrslitum
Jafnt í Akraneshöllinni
Páll Sindri Einarsson skoraði fyrsta
mark Kára í sigrinum norðan heiða.
Ljósm. úr safni/ Knattspyrnufélagið
Kári.
Góður sigur á Húsavík