Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 19.08.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 20206 Tölur um nemendur og kennara VESTURLAND: Í ljósi þess að nú eru grunnskólar að hefja starf eftir sumarleyfi er áhugavert að rýna í tölu Hag- stofa Íslands um fjölda barna og starfsmanna í grunnskól- um landsins. Þar kemur m.a. fram að haustið 2019 störf- uðu 8.600 í grunnskólum hér á landi í 7.644 stöðugild- um. Þar af störfuðu 5.458 við kennslu. Kennurum án kennsluréttinda fjölgaði um 152 frá skólaárinu á und- an. Fjöldi nemenda í grunn- skólum landsins á síðasta ári var 46.254 og skiptist þann- ig að drengir voru 23.713 og stúlkur 22.541. Hér á Vest- urlandi voru grunnskóla- börn við upphaf skólaárs fyr- ir ári 2.234; 1.197 drengir og 1.037 stúlkur. Drengir voru því 160 fleiri en stúlkurnar. Haustið 2019 voru nemend- ur 6. bekkjar fjölmennasti ár- gangurinn á Vesturlandi, eða 237, en nemendafjöldi var mjög svipaður í öllum bekkj- ardeildum utan 1. bekkjar, en þar voru nemendur á Vestur- landi 197 í fyrrahaust. -mm Fjórir fíkniefnaakstrar VESTURLAND: Fjór- ir ökumenn voru stöðvað- ir í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið, grunaðir um akstur und- ir áhrifum fíkniefna. tveir þeirra sem stöðvaðir voru fyrir fíkniefnaakstur reynd- ust enn fremur aka eftir að hafa verið sviptir ökuréttind- um. Þá ók einn mannanna sem var stöðvaður of hratt, en hann var gripinn á 113 km hraða á klst. úti á þjóðvegin- um. Það sem af er ári hafa 50 mál sem lúta að akstri und- ir áhrifum ávana- og fíkni- efna komið inn á borð lög- reglunnar á Vesturlandi. Það gera 6,25 mál á mánuði að meðaltali, eða tæplega 1,5 mál á viku. Slíkur fjöldi mála er ekki óþekktur og þau hafa verið fleiri hér í umdæminu einstök ár, en mál sem þessi eru þó að sögn lögreglu allt- af of mörg. -kgk Óvenju mörg hraðakstursmál VESTURLAND: Óvenju mikið hefur verið um hrað- akstur í umdæmi Lögregl- unnar á Vesturlandi und- anfarna viku. Alls voru 168 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni, sem lögregla segir óvenju mikinn fjölda miðað við meðalviku. Af þessum 168 sem voru kærðir komu 135 hraðakst- ursmál inn á borð lögreglu í gegnum myndavélabílinn. Sá sem hraðast ók var tek- inn á 135 km hraða á klst. á Vesturlandsvegi undir Hafn- arfjalli. -kgk Eitt tilboð í Gufufjörð REYKHÓLAHR: Borgar- verk ehf. í Borgarnesi átti eina tilboðið í endurbygg- ingu og breikkun 6,6 km kafla Vestfjarðavegar um Gufufjörð. tilboð fyrirtæk- isins hljóðar upp á rúmar 305 milljónir króna, sem er tæp- um 17 milljónum yfir kostn- aðaráætlun. Verkið skip- ist í tvo kafla. Annars vegar er um að ræða 1,2 km kafla frá Melanesi að Skálanesi, sem er hugsaður sem hluti af Vestfjarðavegi til framtíð- ar. Hins vegar er um að ræða 5,4 km kafla frá Gufudalsá að Melanesi. „Sá kafli er ekki hluti af framtíðar Vestfjarða- vegi en mun þjóna umferð um Gufudal þar til þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar verður framkvæmd,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Fimmtán sóttu um AKRANES: Akraneskaup- staður auglýsti starf for- stöðumanns íþróttamann- virkja laust til umsókn- ar um miðjan júlí síðastlið- inn. Umsóknarfrestur rann út sunnudaginn 9. ágúst og sóttu 15 um starfið. Um- sækjendur eru, í stafrófsröð: Brynja Kolbrún Pétursdótt- ir, Dagný Ósk Halldórsdótt- ir, Davíð Svansson, Gunnar ásgeir Karlsson, Hallgrím- ur Viðar Arnarson, Jón Þór Hallgrímsson, Kristín Þórð- ardóttir, María Esther Guð- jónsdóttir, Páll Guðmundur ásgeirsson, Pétur t. Gunn- arsson, Ragnar Heimir Gunnarsson, Salvör Sigríð- ur Jónsdóttir, Valdimar Leó Friðriksson, Vignir Björns- son og Þorvaldur Hjaltason. -kgk Heildarvelta innlendra greiðslu- korta hér á landi nam 81,2 millj- örðum króna i júlí en þar af nam verslun 44,7 milljörðum króna. Aldrei hefur kortavelta Íslendinga hérlendis verið jafnhá í einum mán- uði, að því er fram kemur í könn- un Rannsóknaseturs verslunarinn- ar. Hlutfallsvöxtur innlendra korta hérlendis nam 18,5% frá sama mánuði í fyrra. „ástæðu kröftugr- ar neyslu Íslendinga hérlendis má rekja til þess að fáir landsmenn hafa leitað út fyrir landsteinana í sum- ar. Hefur neysla því færst hingað til lands í staðinn. Íslendingar greiddu ríflega tvö- falt meira til gististaða í júlí síðast- liðnum samanborið við júlí í fyrra, alls 2,2 milljarða í júlí í ár saman- borið við 930 milljónir í fyrra. Í júnímánuði var innlend kortavelta gististaða einnig há eða um 1,3 milljarðar, 75% meira en í júní í fyrra. Innlend kortavelta veitinga- staða jókst hóflegar á milli ára, um 29% og nam 6,8 milljörðum í júlí sem leið. Þá jókst eldsneytissala til Íslendinga um tæp 7% samanborið við júlí 2019. Verslun var sömuleiðis blómleg í júlí og nam innlend kortavelta versl- unar, líkt og áður sagði 44,7 millj- örðum króna í mánuðinum, 27,4% meira en í júlí í fyrra. Óvenjulegt er að verslun sé jafn fjörug í júlímán- uði og til samanburðar má nefna að verslun í desember síðastliðnum, stærsta verslunarmánuði ársins, nam ríflega 45 milljörðum króna út frá sama mælikvarða. Innlend kortavelta jókst á milli ára í öllum undirflokkum verslunar sem Rannsóknasetrið birtir. Versl- un á netinu jókst á milli ára um 83% og versluðu Íslendingar fyrir 1,7 milljarða í innlendum netversl- unum í júlí. Þegar samkomutak- markanir voru sem mest íþyngjandi í apríl, var hlutfall netverslunar af heildarverslun 9%. mm Vegna malbikunarvinnu hefur Vest- urlandsvegur verið lokaður milli Geldingaár og Lyngholts í Hval- fjarðarsveit síðustu tvö kvöld, milli klukkan 20:00 og 07:00 að morgni. Verður vegurinn einnig lokaður á sama kafla í kvöld og annað kvöld, vegna framkvæmdanna. á með- an á vinnu stendur er sett upp hjá- leið um Hvalfjarðarveg og Borgar- fjarðarbraut. Þannig þarf fólk sem kemur að sunnan að beygja inn á Hvalfjarðarströnd, aka yfir Drag- háls og koma niður í Skorradal og þaðan sem leið liggur niður á Borg- arfjarðarbraut og þjóðveginn sunn- an við Borgarfjarðarbrú. Hér er því um töluvert langa hjáleið að ræða. kgk Lokunin merkt með rauðu og hjáleið með grænu. Teikning: Vegagerðin. Kvöldlokun Vesturlandsvegar Innlend kortavelta Íslendinga hefur aldrei verið meiri

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.