Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 4

Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Tækifæri til náms á friðsælum stað töluverð tíðindi urðu á föstudaginn þegar ríkisstjórnin tók þá ákvörðun að allir komufarþegar til landsins skuli frá og með deginum í dag fara í tvö- falda skimun áður en þeir hefja samneyti við landsmenn, skulu sæta sóttkví á milli skimana. Þar með er nánast slegið á þann möguleika um sinn að er- lendir ferðamenn komi hingað til lands. Fáir munu sætta sig við að verja fimm dögum í stofufangelsi áður en hið eiginlega ferðalag um landið hefst. Engum blöðum er um það að fletta að þessi ákvörðun er reiðarslag fyr- ir íslenska ferðaþjónustu. Hvenær sem þessum ferðatakmörkunum lýkur er ljóst að þá verðum við á ákveðnum byrjunarreit hvað markaðssetningu varðar til erlends ferðafólks. En þrátt fyrir þessi válegu tíðindi fyrir ferðaþjónustuna munu fjölmargir njóta góðs af ákvörðuninni, þótt umdeild sé. Gera verður ráð fyrir að smám saman takist að einangra virk smit innanlands og innan tíðar mun samfé- lagið losna við veiruna ef við lærum að haga okkur eins og fólk og förum að ráðum sóttvarnayfirvalda, hvar í virðingarstiganum sem við erum! Smám saman mun þá ýmis starfsemi innanlands taka við sér að nýju þegar líða tekur á haustið og samskipti almennt verða miklu auðveldari en þau eru í dag. Fátt er svo með öllu illt að ei boði nokkuð gott. Í Skessuhorni í dag er viðtal við nokkra íbúa á Bifröst. Blaðamaður leit í heimsókn í háskólaþor- pið í síðustu viku og ræddi við starfsfólk og íbúa. Nú hefur skólinn boðað sókn í þá veru að fjölga bæði staðnemendum í háskólanámi en einnig al- mennum íbúum. Það er gert til að fylla þær nýlegu íbúðir sem nú standa tómar á staðnum. Fasta búsetu á Bifröst hafa nú um hundrað einstaklingar, en hæglega er pláss til að fjölga þeim um 250. Meðal annars er í blaðinu rætt við ungt par sem bæði misstu vinnuna í byrjun árs út af Covid. Fólkið bjó þá í 40 fermetra kjallaraíbúð í vesturbæ Reykjavíkur. Það ákvað að segja upp leigunni, hefja nýtt líf á nýjum stað og fluttu búferlum upp í Borgar- fjörð. Eru bókstaflega alsæl með þá ákvörðun; búa í helmingi stærra hús- næði en áður en greiða mun lægri húsaleigu. Ætla að sinna sínu háskólaná- mi í fullu starfi og njóta umhverfisins og þess sem Norðurárdalurinn he- fur uppá að bjóða. Sjálfur var ég nemandi í háskólanum á Bifröst á tíunda áratugnum og persónlega hefði ég ekki viljað sinna því námi samhliða an- narri vinnu, eins og algengt er að gert er í dag. Þótt fjarnám hafi sína kosti, þá er það hreint ekki hentugt fyrir alla. Nú í haust má fastlega búast við því að fjöldi fólks missi vinnu sína við fer- ðaþjónustu. Sumir hafa nefnt töluna þrjú þúsund í því sambandi og kemur sá fjöldi til viðbótar við þann mikla fjölda sem nú þegar er án vinnu, eða er við það að ljúka uppsagnarfresti. Það eru því mikil tækifæri fyrir háskó- la á landsbyggðinni að laða til sín nýja nemendur við þær fordæmalausu aðstæður sem nú ríkja. á það til dæmis við á Bifröst, en ekki síður Hvan- neyri þar sem aðstaða til búsetu og náms er sömuleiðis góð, þótt framboð af lausu húsnæði sé minna en það er á Bifröst. Við Íslendingar erum síst verr settir en íbúar annarra landa á tímum Covid. Að mörgu leyti meira að segja betur t.d. í ljósi þess að landið er stórt en íbúarnir fáir. Allir geta því rölt út í náttúruna án þess að eiga það á hættu að troða öðrum um tær. Ungt fólk og miðaldra getur því litið á það sem sóknarfæri á veirutímum að setjast á skólabekki. Því hvet ég fólk til að skoða þann möguleika, ekki síst þegar hægt er að velja skóla í fallegasta héraði landsins. Magnús Magnússon Akraborg rekur tvær niðursuðu- verksmiðjur; eina á Akranesi en aðra í Ólafsvík. Fyrirtækið er leið- andi í framleiðslu á hágæða nið- ursoðinni þorsklifur og er í dag stærsti framleiðandi sinnar teg- undar í heiminum. á undanförn- um misserum hefur mikið verið að gera í starfsstöðinni í Ólafsvík. Fyrr á þessu ári var gerð sú breyting að ein af vinnslulínum fyrirtækisins á Akranesi var flutt til Ólafsvíkur til að auka afkastagetuna þar. Aðspurð segir Anna Rodziewicz, sem er ný- ráðinn rekstrarstjóri í Ólafsvík, að sú ákvörðun hafi verið tekin í miðju Covid fárinu í vor. „Í stað þess að draga úr starfsemi var ákveðið að bæta í fjárfestingu og koma upp viðbótar vinnslulínu á svæðinu. Með þessari tæknivæðingu bætum við vinnuaðstöðu starfsfólks og tvö- földum afköstin á staðnum.” Anna segir að tilgangurinn með þessari breytingu hafi verið að halda störf- um á staðnum, halda uppi fullri starfsemi og tryggja að það hráefni sem fellur til á svæðinu verði unn- ið í samfélaginu í stað þess að flytja hráefnið annað til vinnslu. „Með þessum breytingum höfum við ver- ið að fá töluvert af hráefni annars staðar af landinu, sérstaklega yfir sumar- og haustmánuðina,“ sagði Anna. þa Sunnanáttin í Grundarfirði get- ur verið ansi hressileg og var í sér- staklega miklum ham síðastliðinn miðvikudag. Meðan á þessu gekk var unnið við að skipa upp salti úr flutningaskipinu Falksea sem skrá- sett er í Noregi. Alls fóru tólf- hundruð tonn af salti í land síðasta miðvikudag og létu löndunarmenn vindhviðurnar ekki á sig fá og klár- uðu verkið. tfk Björgunarsveitin í árneshreppi á Ströndum og þyrla Landhelgis- gæslunnar voru kölluð út um klukk- an 14 á mánudag vegna veiks sjó- manns norður af Norðurfirði. Sjó- maðurinn, sem var einn um borð í trillu á strandveiðum, náði sjálfur að kalla eftir aðstoð. Björgunarsveitar- fólk fór ásamt öðrum heimamönn- um á móti sjómanninum, hlúðu að honum og fylgdu honum til hafn- ar. Þyrla Landhelgisgæslunnar og sjúkrabíll komu svo um hálftíma síðar og var maðurinn fluttur til Reykjavíkur með þyrlunni. mm Forsvarsmenn Vélsmiðju Grundar- fjarðar standa í ströngu þessa dag- ana en starfsmenn eru nú á fullu við að stækka húsnæði fyrirtækis- ins. Í vélsmiðjunni er einnig rekið bifreiðaverkstæði og nú á að auka þjónustuna þar til muna. Stefnt er að því að starfsemin verði komin á fullt í október næstkomandi eða áður en vetrardekkjavertíðin fer í gang. Eitthvað hefur veðrið verið að setja strik í reikninginn hjá iðn- aðarmönnum en menn eru samt vongóðir um að geta umfelgað dekk í nýja hlutanum í haust. tfk Hér má sjá hvar viðbyggingin er komin vel á veg. Vélsmiðja Grundarfjarðar stækkuð Anna Rodziewicz, rekstrarstjóri Akraborgar, ásamt Óla Olsen fráfarandi rekstrar- stjóra sem fer nú til starfa hjá Lýsi. Afköst aukin í niðursuðu Akraborgar í Ólafsvík Skipuðu upp salti í stóra sunnan Sjórinn gekk yfir skipið og löndunarmennina í mestu hviðunum. Sóttu veikan sjómann í Norðurfjörð

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.