Skessuhorn - 19.08.2020, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 7
FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF
Þingvangur ehf byggir 10
hæða lyftuhúsnæði á góðum
stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við
verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
3ja 105 fm til 107 fm
Verð frá 46,6 millj. til 50,9 millj.
4ra 126 fm til 128 fm
Verð frá 56,4 millj. til 59,4 millj.
HTH
Parka
Ormsson
898-9396 eða
á hakon@valfell.is
Stillholt 21 – Akranesi
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að
hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is
og panta tíma til skoðunar.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í
eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum HTH
Innhurðir og flísar frá Parka
Heimilistæki frá Ormsson
Dreifbýl sveitarfélög geta sótt
um styrki til að mæta áskorunum
sem hafa fylgt Covid-19 faraldr-
inum í félagsþjónustu og barna-
vernd vorið 2020. Í fjáraukalög-
um, sem samþykkt voru á Alþingi
í maí, var ákveðið að veita 30 millj-
ónum króna til að takast á við þess-
ar áskoranir í dreifðustu byggðum
landsins.
Við úthlutun styrkjanna verð-
ur eingöngu horft til sveitarfélaga
utan svæðisins milli Hvítár í Borg-
arfirði og Hvítár í árnessýslu, það
er sveitarfélaga utan þéttbýlasta
hluta landsins. Sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu, Suðurnesjum,
Akraneskaupstaður, Skorradals-
hreppur, Hvalfjarðarsveit, Borgar-
byggð, árborg, Hveragerði og Ölf-
us eru því undanskilin.
Þau sveitarfélög sem hyggjast
sækja um styrki þurfa að byggja
sínar umsóknir á málum sem lúta
að skjólstæðingum sem búa í dreif-
býli eða byggðakjörnum með 1.500
íbúa eða færri.
kgk
tæpur þriðjungur þeirra sem
keyptu fasteign á fyrri helmingi árs-
ins voru að kaupa sína fyrstu eign.
Hefur hlutfall fyrstu kaupenda
aldrei verið hærra, að því er fram
kemur í mánaðarskýrslu hagdeild-
ar Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
unar. Niðurstöður nýrrar viðhorfs-
könnunar benda enn fremur til þess
að um fjórðungur þeirra sem enn
búa í foreldrahúsum séu í fasteigna-
hugleiðingum.
á sama tímabili hefur íbúðum í
sölu á höfuðborgarsvæðinu fækk-
að. Þær voru um 2000 í maí en eru
1700 nú. Framboðið hefur sömu-
leiðis dregist saman á landsbyggð-
inni. Meðalsölutími nýrra íbúða
lækkaði um 32% á landsbyggðinni
á fyrri helmingi ársins, samanborið
við fyrri helming síðasta árs. Með-
alsölutími nýrra íbúða lengist lítil-
lega á höfuðborgarsvæðinu, en hins
vegar styttist meðalsölutími annarra
íbúða.
Aldrei fleiri ný lán
hjá bönkunum
Júní síðastliðinn var umsvifamesti
einstaki mánuðurinn í hreinum nýj-
um íbúðalánum hjá bönkunum. Alls
var í júní lánaður ríflega 31 millj-
arður króna í hreinum óverðtryggð-
um íbúðalánum á breytilegum vöxt-
um hjá bönkunum, að frádregnum
uppgreiðslum. Ný óverðtryggð út-
lán bankanna á föstum vöxtum voru
hins vegar neikvæð um þrjá millj-
arða, en frá því í október á síðasta
ári hafa ný slík lán verið mánaðar-
lega í minna mæli en uppgreiðslur
í þeim lánaflokki. á sama tíma voru
uppgreiðslur verðtryggða lána einn-
ig um það bil einum milljarði króna
umfram ný útlán til heimilanna hjá
bönkunum.
útlán lífeyrissjóðanna dragast
enn saman, líkt og í apríl og maí, og
ný íbúðalán þeirra voru í fyrsta sinn
lægri að fjárhæð en uppgreiðslur
eldri lána hjá sjóðunum, m.v. töl-
ur Seðlabanka Íslands sem ná aftur
til ársins 2008. Var júnímánuður sá
umsvifaminnsti innan lífeyrissjóð-
anna frá upphafi mælinga. Mikil
útlánaaukning bankanna upp á síð-
kastið er rakin til mikilla vaxtalækk-
ana undanfarinna mánaða, að því er
fram kemur á vef HMS.
Leigusamningum fjölgar
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu
lækkaði annan mánuðinn í röð sam-
kvæmt vísitölu HMS. tólf mánaða
hækkunartaktur leiguverðs á höf-
uðborgarsvæðinu hefur farið hratt
lækkandi frá fyrstu þremur mánuð-
um ársins. Sömu sögu er hins veg-
ar ekki að segja um leiguverð í ná-
grenni höfuðborgarsvæðisins og á
öðrum svæðum á landsbyggðinni.
Þinglýstum leigusamningum
fyrir íbúðarhúsnæði hefur fjölgað
mikið milli ára, en þeir voru 16%
fleiri á höfuðborgarsvæðinu en á
fyrri hluta síðasta árs, 15% fleiri í
nágrannsveitarfélögum borgarinn-
ar og 17% fleiri á öðrum svæðum á
landsbyggðinni. kgk
Aldrei hærra hlutfall fyrstu kaupa
Fjölbýlishús á Akranesi. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Geta sótt um
sérstaka styrki