Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Side 10

Skessuhorn - 19.08.2020, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202010 Síðastliðinn föstudag kynnti ríkis- stjórnin mjög svo hertar aðgerð- ir til að koma í veg fyrir aukin Co- vid-19 smit hér á landi. Frá og með deginum í dag, 19. ágúst, skulu all- ir komufarþegar til landsins, bæði þeir sem eru búsettir hér á landi og þeir sem eru í styttri erindagjörð- um, verða skimaðir við komuna til landsins og svo aftur að fjögurra til fimm daga sóttkví liðinni. Slíkt set- ur sjálfkrafa hömlur á vilja erlendra ferðamanna til styttri ferða til Ís- lands og munu þessar aðgerðir nán- ast loka fyrir komu þeirra á meðan reglurnar verða óbreyttar. Fram kom á upplýsingafundi stjórnvalda á föstudaginn að ekki hafi tekist að rekja uppruna að minnsta kosti 36 smita í stórri hóp- sýkingu um miðjan júlí. „Rökin fyr- ir þessu eru annars vegar þróunin innanlands og hins vegar þróunin á heimsvísu,“ sagði Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra, en tíðni smita vegna Covid-19 fer nú vax- andi í nágrannalöndum og um all- an heim. Sagði hún þjóðhagslega hagkvæmt að skima við landamær- in þar sem tiltölulega stórt hlutfall smitaðra greinist þar. Hagræn rök hnígi frekar að því að herða reglur um landamæraskimun en að rýmka þær. Katrín gat þess að ljóst væri að veiran hefði flotið inn í landið þar sem landsmenn væru að greinast með annan veirustofn í nýju bylgj- unni en í fyrstu bylgjunni í vor. Þá sagði hún að erfitt hafi verið að hafa eftirlit með því hvort far- þegar hefðu dvalið í öruggu landi fjórtán daga fyrir komu til Íslands þegar sumir hafi verið undanskild- ir skimun. Með nýju fyrirkomulagi verð hægt að grípa alla. Smit af kór- ónaveirunni eru nú í öllum lands- fjórðungum. Ljóst er að þessi ákvörðun stjórn- valda setur íslenska ferðaþjónustu í afar þrönga stöðu. Afbókanir eru nú teknar að berast erlendis frá og fyrir næstu mánaðamót er bú- ist við fjölda uppsagna í fyrirtækj- um. Nefnt hefur verið talan þrjú þúsund um þá sem búast mega við uppsögnum. mm Samkvæmt auglýsingu heilbrigð- isráðherra í síðustu viku, um tak- mörkun á samkomum vegna far- sóttar verða reglur um nálægðar- takmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Nýjar reglur tóku gildi 14. ágúst sl. Að öðru leyti gildir áfram megin- reglan um tveggja metra nálægð- armörk. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunar- heimilum, öðrum heilbrigðisstofn- unum og sambærilegum stofnunum verður gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heim- sóknir utanaðkomandi að heimil- um og stofnunum. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að há- marki. Eins og fram kemur í aug- lýsingu ráðherra er rík áhersla lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir og almennar smitvarnir með tíðum og reglubundnum þrifum þar sem fólk kemur saman. Þær breytingar sem verða með nýrri auglýsingu um takmörkun á samkomum eru í samræmi við til- lögur sóttvarnalæknis sem fram koma í minnisblaði hans til ráð- herra frá 11. ágúst síðastliðnum. Nálægðartakmörkun í framhalds- og háskólum Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa einn metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrím- ur séu notaðar. Þar skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla skal lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir. Nálægðartakmörkun í íþróttum Þrátt fyrir meginregluna um tveggja metra nálægðartakmörk- un verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppn- um. Aftur á móti skal virða tveggja metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálf- arar, starfsmenn og sjálfboðalið- ar, skulu ávallt virða tveggja metra regluna. Íþrótta- og ólympíusam- band Íslands skal setja sérsam- böndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, með- al annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna. Andlitsgrímur Við aðstæður þar sem skylt er að nota andlitsgrímur líkt og skil- greint er í auglýsingunni skal að- eins nota grímur sem uppfylla kröfur evrópsku staðlasamtakanna (CEN) og hefur sóttvarnalæknir jafnframt sett nánari leiðbeiningar þar að lútandi. Börn Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram undanskilin ákvæðum 3. gr. auglýsingarinnar sem snúa að fjöldatakmörkun og 4. gr. um al- menna nálægðartakmörkun. Breytingarnar sem hér um ræð- ir snúa einungis að takmörkunum á samkomum vegna farsóttar inn- anlands frá 14. ágúst sl. „Í minn- isblaði sóttvarnalæknis til heil- brigðisráðherra er einnig fjallað um mögulegar breytingar á fyrir- komulagi vegna skimana á landa- mærum. Gildandi reglugerð hvað það varðar gildir til 15. septem- ber,“ segir í tilkynningu frá heil- brigðisráðuneytinu. mm Stjórn Knattspyrnusambands Ís- lands hefur samþykkt nýjar reglur um framkvæmd æfinga og knatt- spyrnuleikja. Hefur hún verið stað- fest af Íþróttasambandi Íslands og heilbrigðisyfirvöldum, þann- ig að knattspyrnuleikir geti haf- ist að nýju. Markmið reglnanna er vitaskuld að tryggja að áfram verði hægt að leika knattspyrnu á Íslandi þrátt fyrir Covid-19. Eins og greint var frá á vef Skessuhorns fyrr í vik- unni verður óheimilt að hafa áhorf- endur á leikjum, í það minnsta fyrst um sinn, samkvæmt ákvörðun sótt- varnalæknis. Því verður spilað fyr- ir tómum stúkum í Íslandsmótinu í knattspyrnu að sinni. Í leik Reglurnar sem stjórn KSÍ hefur samþykkt miða að því að lágmarka hættu á smiti með því m.a. að tryggja tveggja metra bil milli ein- staklinga áður en leikur hefst, s.s. við komu á leikvöll, í búningsklef- um og upphitun. Öllum nema þátt- takendum í leiknum sjálfum, þ.e. leikmönnum, þjálfurum og dóm- urum er skylt að bera andlitsgrím- ur á meðan upphitun stendur. All- ur búnaður skal vera sótthreinsað- ur og heimaliði hverju sinni ber að tryggja að sótthreinsivökvi sé að- gengilegur. Liðin skulu ganga í sitthvoru lagi út á völlinn áður en leikur hefst og yfirgefa völlinn í sitthvoru lagi í hálfleik og að leik loknum. Leik- mönnum verður óheimilt að heils- ast fyrir og eftir leiki og mega ekki fagna mörkum með snertingu. Heimaliði ber að tryggja að hægt sé að virða tveggja metra fjarlægðar- mörk á varamannabekkjum. Heimaliði er óheimilt að útvega gestaliði, dómurum og fjölmiðlum veitingar. Allar veitingar sem þetta fólk ber með sér að leikvanginum skulu vera í lokuðum umbúðum. Óheimilt er að deila drykkjarílátum eða mataráhöldum, hvort heldur í leik eða á æfingum. Hér hefur aðeins verið farið yfir helstu atriði reglnanna. Þær eru fleiri og miða sem fyrr segir allar að því að lágmarka smithættu. Hverju félagi verður gert að skipa sérstak- an sóttvarnafulltrúa sem ber ábyrgð á að farið verði eftir reglugerðinni. Fjölmiðlum sem fjalla um knatt- spyrnuleiki ber að tryggja sér sótt- varnaraðgerðir á sínu vinnusvæði á hverjum leikvangi og fara eftir þeim. Á æfingum Þó undanþága hafi verið veitt frá tveggja metra reglunni í leikjum mælist KSÍ til þess að henni sé fylgt eins og kostur er á æfingum. tak- marka skuli þátttakendur æfinga við leikmenn, þjálfara og sjúkra- tyemi og ber sóttvarnafulltrúa liðs að tryggja að enginn óviðkomandi sé viðstaddur. Félög skulu kanna möguleika þess að skipta leik- mönnum í hópa eins og kostur er og láta þá æfa á mismunandi tím- um þar sem því verður við komið. Þjálfarar og aðrir starfsmenn liða skulu bera andlitsgrímur á æfing- um. Starfsmenn íþróttamannvirkja skulu sömuleiðis nota andlitsgrím- ur á meðan æfingum stendur. Lágmarka skal notkun líkams- ræktaraðstöðu félaga og virða tveggja metra regluna þegar hún er notuð. Sótthreinsa skal allan bún- að sem notaður er á æfingum bæði fyrir og eftir notkun, hvort held- ur það eru líkamsræktartæki eða boltar. Lágmarka skal notkun bún- ingsklefa og í öllum tilvikum halda tveggja metra regluna. Þátttakend- um í æfingum er óheimilt að nota aðra félagsaðstöðu, s.s. eldhús og önnur sameiginleg rými. Utan vallar KSÍ mælist til þess að þátttakend- ur í íþróttinni lágmarki ýmsa þætti daglegs lífs sem snúa að öðru en heimilislífi og vinnu. „Leikmenn, þjálfarar, dómarar og aðrir starfs- menn liða skulu því lágmarka sam- skipti við aðra eins og kostur er. Þetta á sérstaklega við um leik- menn. Í þessu felst m.a. að þessir aðilar ættu almennt að forðast fjöl- menna staði eins og veislur, versl- anir, veitingastaði, kvikmyndahús, skemmtistaði, bari o.s.frv.,“ seg- ir í reglunum. Leikmenn eru jafn- framt hvattir til að fylgja reglum um heimkomusmitgát og sóttkví í heimahúsi eins og kostur er til að vernda fjölskyldur sínar, vinnufé- laga og aðra leikmenn. Þeir sem geta sinnt sínu starfi í fjarvinnu eru hvattir til að ræða slíkt fyrirkomu- lag við vinnuveitendur. Gagnrýnisraddir Þegar drög að þessum nýju reglum KSÍ voru birtar gagnrýndu Leik- mannasamtök Íslands þær. For- maður samtakanna sagði í Frétta- blaðinu að það væri ósanngjörn krafa að ætlast til þess að leikmenn lágmörkuðu þá þætti daglegs lífs sem sneru að heimilislífi og vinnu, í ljósi þess að knattspyrnuleikmenn á Íslandi væru langflestir áhuga- menn en ekki atvinnumenn. Víðir Reynisson yfirlögreglu- þjónn svaraði þeirri gagnrýni á upplýsingafundi almannavarna á miðvikudag. Sjálfsagt mál væri að gera þá kröfu á knattspyrnufólk að það sýndi ábyrgð í sínu daglega lífi, í ljósi þeirra forréttinda sem það nyti varðandi tveggja metra regl- una. „Það er verið að veita íþrótta- mönnum heimild sem ekki marg- ir aðrir í samfélaginu hafa, til að stunda sína íþrótt. Þetta er meiri heimild en við öll hin höfum. Því fylgir auðvitað mikil ábyrgð sem menn þurfa að sýna,“ sagði Víðir. Þegar nýjar reglur voru staðfest- ar á fimmtudag birti KSÍ áskorun til allra sem lifa og hrærast í knatt- spyrnuheiminum á tímum kórón- uveirunnar. Þar segir að allir sem koma að þessum málum þurfi að snúa bökum saman og sýna að þeir séu traustsins verðir. ábyrgðin sé mikil hjá íslensku knattspyrnu- hreyfingunni. „Við skulum ekki efast um það eina einustu mínútu að samfélagið allt horfir til okkar og fylgist með því hvernig tekst að framfylgja þessum reglum. Með sameiginlegu átaki allra hagsmuna- aðila getum við tryggt að hægt sé að stunda knattspyrnu áfram þó takmarkanir séu miklar,“ segir á vef KSÍ. kgk Ákvörðun tekin um að komufarþegar fari í fimm daga sóttkví Strangar sóttvarnakröfur gerðar til liða Ítarlegar reglur hafa verið settar fram svo leika megi knattspyrnu á tímum Covid-19. Ljósm. úr safni/ gbh. Breyttar reglur um sóttvarnir teknar gildi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.