Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 16

Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202016 Undanfarna daga hefur verið að skýrast með hvaða hætti skólahaldi verður háttað við upphaf kennslu grunn- og framhaldsskóla þetta haustið. Kennsla hefst í Fjölbrauta- skóla Vesturlands í dag, miðviku- daginn 19. ágúst og í Menntaskóla Borgarfjarðar á morgun, fimmtu- dag. Kennsla hefst formlega hjá öllum nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga í næstu viku. Í öllum þremur framhaldsskólum lands- hlutans hefur verið gripið til sér- stakra ráðstafana vegna Covid-19. Alls staðar verður auðvelt að nálg- ast sótthreinsivökva og -búnað og nemendur eru hvattir til að þvo hendur sínar og sótthreinsa reglu- lega. Borðum og stólum hefur ver- ið raðað upp með að minnsta kosti eins metra millibili og starfsfólk og nemendur munu bera grímur þeg- ar þörf þykir. Í einhverjum tilfell- um verður í auknum mæli gripið til fjarkennslu. FVA og MB hefur ver- ið skipt upp í sóttvarnarhólf, með sér inngöngun, til að mæta kröfum um hámarksfjölda. Mötuneyti FVA er lokað og verður að minnsta kosti næstu daga, en starfsemi í mötu- neytum FSN og MB verður með breyttu sniði. Framhaldsskólarnir hafa birt ítarlegar leiðbeiningar um upphaf kennslunnar á tímum farsóttar á heimasíðum sínum. Þar geta nem- endur og forráðamenn lesið allt um umgengnisreglur á hverjum stað fyrir sig. Grunnskólar byrja í næstu viku Víðast hvar hefst kennsla í grunn- skólum landshlutans í næstu viku. á heimasíðum sumra grunnskólanna má sjá orðsendingar er varða skóla- setningu þar sem beðið er um að aðeins foreldrar yngstu nemenda mæti með börnum sínum, en eldri nemendur komi einir til skólasetn- ingar, nema sérstök ástæða þyki til. Í einhverjum tilfellum er jafnframt óskað þess að aðeins eitt foreldri eða forráðamaður fylgi börnum sínum á skólasetningu. Vel að merkja hafa ekki allir grunnskólar á Vesturlandi birt slíkar leiðbeiningar á heima- síðum sínum, aðeins sumir þeirra sem fyrr segir. Aðstæður eru mis- munandi í hverjum skóla fyrir sig. Foreldrum og forráðamönnum er því bent á að fylgjast vel með upp- lýsingum frá skólum barna sinna í upphafi kennslunnar. kgk Meitill - Gt tækni ehf. og Orku- virki ehf. hafa ákveðið að ganga til formlegs samstarfs sem nær til þjónustu við stóriðjufyrirtæki og orkusækinn iðnað á Íslandi. „Það er mat stjórnenda fyrirtækjanna að víðtækir möguleikar felist í sam- starfinu þegar tvö öflug fyrirtæki leggja krafta sína saman en fyrir- tækin eiga langa sögu þegar kem- ur að þjónustu við stór fyrirtæki í orkusæknu umhverfi á Íslandi,“ segir í tilkynningu. Meitill - Gt tækni á rætur sínar að rekja til viðhaldsdeildar Íslenska járnblendifélagsins allt aftur til árs- ins 1979. Fyrirtækið veitir þjónustu á sviði málm-, véla-, rafmagns- og farartækja. Orkuvirki er tækni- og verktakafyrirtæki sem var stofnað 1975 og hefur yfir að ráða víðtækri þekkingu og reynslu á hverju sem viðkemur háspennu- lágspennu og orkuafhendingu. „Meitill - Gt tækni og Orkuvirki bjóða upp á lausnir fyrir þá sem krefjast þess að fá örugga og skjóta þjónustu, og hafa fyrirtækin á að skipa öfl- ugum iðn- og tæknimönnum með mikla reynslu á sínum fagsviðum,“ segir í tilkynningunni. „Innan fyr- irtækjanna er mikil starfsmanna- þekking þegar kemur að öllu sem snýr að véla- og rafmagnsvinnu, hvort heldur sem um er að ræða viðhaldsverkefni, nýframkvæmd- ir, fyrirbyggjandi og reglubundið viðhald. Virkt samstarf beggja fyr- irtækja býður upp á meiri og víð- tækari þjonustu ásamt auknu þjón- ustustigi fyrir okkar viðskiptavini.“ Í tilkynningunni er jafnframt greint frá því að bæði fyrirtækin séu með ISO 9001 vottun, vottaða suðuferla og löggildingu A og B á rafmagns- sviði. kgk Frá nýnemadegi Fjölbrautaskóla Snæfellinga í gær, þriðjudaginn 18. ágúst, þar sem nýnemar mættu í skólann í fyrsta sinn og hittu námsráðgjafa og umsjónarkennara. Ljósm. tfk. Fyrirkomulag skólahalds að skýrast Að lokinni undirritun samstarfssamningsins. Guðmundur Sigvaldason, fram- kvæmdastjóri Orkuvirkis (t.v.) og Bolli Árnason, framkvæmdastjóri Meitils - GT Tækni. Ganga til formlegs samstarfs Festi hf. og Akraneskaupstað- ur hafa skrifað undir samning um lóðaskipti. Þau fela í sér að lóðin þar sem núverandi afgreiðslustöð N1 stendur við Þjóðbraut verð- ur afhent bænum í skiptum fyr- ir nýja lóð við Hausthúsatorg. Bú- ist er við því að framkvæmdir hefj- ist á nýrri lóð snemma á næsta ári, að því er fram kemur í tilkynningu. „Þessi nýja lóð við Hausthúsatorg gefur okkur mikil tækifæri til fram- tíðar í að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa,“ segir Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1, í tilkynningunni. Hann segir renn fremur að samstarfið við Akranes- kaupstað um lóðaskiptin hafi verið ánægjulegt og að það komi til með að nýtast báðum aðilum afar vel. Með lóðaskiptunum fær Akranes- kaupstaður lóðirnar við Þjóðbraut 9, 11 og 14, ásamt þeim mannvirkj- um sem þar standa og afhendir N1 í staðinn 13 þús. fermetra lóð við Hausthúsatorg. „Við höfum verið að skoða þessi mál í nokkurn tíma og fundum strax að samhljómur var með aðilum í málinu og því gekk þetta skjótt fyrir sig,“ segir Sæv- ar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Þá kemur fram að N1 verði með eldsneytissölu, verslun og þjónustu á nýrri stöð við Hesthúsatorg, en áætlað er að hún verði opnuð um það bil ári eftir afhendingu lóðar- innar. Núverandi afgreiðslustöð verður starfrækt áfram þar til nýja stöðin verður opnuð. kgk Afgreiðslustöð N1 við Þjóðbraut á Akranesi. Ljósm. kgk. N1 á nýjan stað á Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.