Skessuhorn - 19.08.2020, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 2020 19
Vísnahorn
Fátt er mikilvægara en
góð heilsa. Það sannast
nú á tímum Covid veir-
unnar enda hefur heil-
brigðiskerfið í nógu að
snúast þó lengi hafi það
verið fjársvelt til vandræða. Fyrir margt löngu
orti Ólafur Ólafsson Briem:
Læknirarnir lækna þá
lítið sem til finna.
Meðul þeirra munu á
mörgum þrautum vinna.
Hvað sem líður nú meðulum og virk-
ni þeirra þá er veðurfarið sígilt umræðuef-
ni og snemmsumars 2014 hafði Kristján
Runólfsson þetta að segja um veðrið í Hver-
agerði:
Dropar falla á skorpinn skalla,
skepnur allar leita í var.
Blómin valla, höfði halla,
hér er gallað veðurfar.
Eitthvað hefur veðrið verið blíðara þegar
Ingibjörg Eysteinsdóttir á Beinakeldu orti:
Fjöllin skarta fagurblá
faðma grund og móa.
Sólargeislar gárum á
gylla Húnaflóa.
Guðmundur L Friðfinnsson rithöfundur
rak um árabil allstórt barnaheimili á heimili
sínu Egilsá í Norðurárdal og var það töluvert
umfangsmikil starfsemi. Nágranni hans einn
orti um þann rekstur:
Sumardvalarheimilið eflist nú af auð,
í útsjón tel ég bóndann valinkunnan.
Hann lætur sjóða matinn og baka heima
brauð
en börnin fær hann tilbúin að sunnan.
Helgi Ingolfsson var slæmur í hendi og
varð það tilefni eftirfarandi slitru:
Ver- í hönd er vinstri -kur,
vís- þó sem ég -urnar.
Slæ- er dagur slíkur -mur,
slit- hér koma -rurnar.
Annar ágætismaður var Eiríkur Þorstein-
sson sem lengi bjó í Bakkakoti í Skorradal,
bróðir Erlu skáldkonu. Eftir að hann var flut-
tur á Akranes lenti hann í orðaskakstri við
vinnufélaga sinn. Harðduglegan mann sem
hafði komið upp mörgum og mannvænlegum
börnum með nýtni og hirðusemi en fékk þes-
sa kveðju frá Eiríki:
Opnast Bjarni uppá gátt,
í orðaskaki slyngur
en hann hefði aðeins mátt
eiga styttri fingur.
Bróðir Eiríks og Erlu var Guðmundur Þor-
steinsson sem kenndi sig við Lund í Lundar-
reykjadal. Sá orti um einhvern gæðamann:
Jósef ekkert eftir gefur
eða þjakar tunguhaft.
Kringum allan hausinn hefur
heljarmikinn stólpakjaft.
Ætli það séu ekki komin rúmlega 110 ár
síðan eftirfarandi fyrripartur var lagður fram í
tímaritinu Huginn sem Bjarni frá Vogi gaf út
og beðið um botn:
Er til grafar komu kurl
kappar landsins átu snarl.
Bestur dæmdist botn frá Pálma Pálmasyni:
Eftir þúsund ára nurl
ægði þeim að launa jarl.
En þessi er nú líka góður:
Betra en þetta bölvað nurl
er brennivín og skyrhákarl.
Rögnvaldur Rögnvaldsson sem lengi rak
verslun undir kirkjutröppunum á Akureyri
var ágætlega hagmæltur. Eitt sinn lenti hann
á sjúkrahúsi vegna blóðtappa og varð þá að
orði:
Letin slappar líkamann,
leikni er kappans prýði.
En æðatappatogarann
ég teldi happasmíði.
Eins og vitað er hafa margir ánægju af lax-
veiði og ýmsum snúningum kringum hana.
Að vísu hefur mér alltaf þótt það einkennilegt
athæfi að eltast við að veiða fisk til þess eins
að sleppa honum aftur og væri trúlega í einh-
verjum tilfellum kallað dyreplageri. En það er
nú ekki að marka mig. Hvað um það um einn
ágætan pólitíkus sem var talinn hafa þverri-
funa neðanvert við nefið og lenti einhvern tí-
mann í smá skandala var kveðið:
Eyðir sút frá bankans baxi,
bestu útrás veita má
þrátt að stúta þungum laxi
-og það í Hrútafjarðará.
árið 1948 var ég alltof mikill krakki til að
gera mér nokkra grein fyrir þeim atburðum
sem þá urðu í úttlöndum. Hvað þá að túlka
þá með einhverjum hætti enda virðast mar-
gir enn í dag eiga í erfiðleikum með túlkun
ýmissa alþjóðlegra viðburða þrátt fyrir
aukna menntun og tækni. Hvað um það
snemmsumars 1948 orti Lúðvík Kemp um
ástandið í heimsmálunum:
Félagi Stalín elliær
orðinn og talsvert heimaríkur.
En Tító brúkar kjaft og klær,
kommúnista og fleiri svíkur.
Bjartsýnn er og bíræfinn,
af baki virðist ekki dottinn.
En það er ljótt að svíkja sinn
samherja og lánardrottinn.
Þó margt breytist geta vatnavextir ennþá
sett strik í samgönguáætlanir manna. Að vísu
er trúlega sjaldgæft orðið að menn þurfi að
bíða með hesta sína eftir að lækki í ánum en
ekki óþekkt að þeir fjórhjóluðu fákar nemi
staðar í miðri á og vilji ekki lengra. Ekki veit
ég hver fékk þessa vísu hjá Guðmundi Frí-
mann en eitthvað hefur honum orðið slark-
samt á lífsgöngunni:
Þér torfært varð margt vonarskarð.
Hjá vaði á margri Svartá beiðstu.
Að úr þeim drægi aldrei varð
og ógæfuna í taglhvarf reiðstu.
Fyrir tíma brúargerðar kom Hjörleifur
Kristinsson að Norðurá í nokkrum vexti seint
um haustkvöld og þurfti að bíða birtingar til
að sjá sér leið yfir. Dundaði þá við að fram-
leiða þessa á meðan:
Deginum seinkar og myrkrið er meira en
nægt,
því morgunstjörnurnar lítilli birtu skila.
Jesús minn góður, hvað jörðin snýst orðið
hægt,
- ég held alheimsmótorinn sé að bila!
Og fóstri hans og nafni Hjörleifur Jónsson
orti þessa og ætli við ljúkum ekki þættinum
með henni:
Margan spretta úr spori ég sá,
spauga að glettum villu
en fáa detta ofaná
alveg rétta hillu.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Hann lætur sjóða matinn og baka heima brauð - en börnin fær hann tilbúin að sunnan
„Spilaðu formann flokks á þingi
sem keppist við að koma sem flest-
um þingmönnum í eigin vasa -
styddu málefni, settu lögbann á
hneyksli og stingdu svo hina for-
mennina í bakið! Spil fyrir fólk sem
þolir ekki spillingu, nema það fái að
spila með.“ Þannig hljómar athygl-
isverð kynning á nýju borðspili sem
nú er leitað stuðnings til útgáfu á
Karolina fund.
Í kynningunni segir að markmið
Þingspilsins sé að klára sem fle-
star umferðir með flesta þingmenn.
Þingspilið er samansett af þremur
bunkum. Í fyrsta lagi er Forman-
na bunki og spilarar draga eitt For-
mannspil. Þá er Málefna bunki þar
sem eitt Málefnaspil er lagt út í by-
rjun umferðar. Loks er Framtíðar
bunki en þar draga spilarar tvö spil
á hendi í byrjun umferðar. „Í spi-
linu geta spilarar kosið um málef-
ni og stundað pólitíska spillingu til
að fá fleiri þingmenn, ásamt því að
láta aðra spilara missa þingmenn
í hneykslum (nema þeir spili út
„Lögbanni á fjölmiðla“ til að stöð-
va hneykslið eða „Hvítþvott“ til að
fá þingmennina aftur). Sigurvega-
rar eru spilarar með Formannaspil
sem hafa flesta þingmenn í lok um-
ferðar. Fleiri en einn geta sigrað.
Spilarar velja hvort spilið taki tvær
eða þrjár umferðir.
mm
Síðasta sunnudagskvöld safnaðist
hópur af fólki á höfninni og í fjör-
unni við bæjarmörkin að Grund-
arfirði til að fylgjast með nokkr-
um hrefnum sem voru að næra sig
nánast í fjöruborðinu. Þær fóru
þó víðsvegar um fjörðinn og voru
á tímabili við fjöruna í Kirkjufelli
og seinnipart dags við Grundar-
kamb en þær höfðu einnig verið að
svamla makindalega í hafnarkjaft-
inum. á meðfylgjandi mynd má
sjá hversu nærri landi hún er en í
bakgrunni er brúin yfir Kverná við
bæjarmörk Grundarfjarðar. tfk
Bókin Saga guðanna er komin út
hjá bókaútgáfunni Sæmundi. Hér
er á ferð fróðleg og yfirgripsmikil
bók þar sem lesandanum er boðið í
ferðalag um heim trúarbragðanna.
Fjallað er á aðgengilegan hátt um
það sem helstu trúarbrögð mann-
kyns hafa sjálf fram að færa, saga
þeirra rakin í stórum dráttum og
helstu einkennum þeirra lýst.
„Með skrifum sínum vekur
höfundur upp spurningar hjá
lesendum og fær þá til að leita
eigin svara andspænis því mark-
miði trúarbragðanna að kanna
djúp mannshugans og leita
uppi kjarna tilverunnar. Þór-
hallur Heimisson hefur lengi
verið starfandi prestur í íslensku
og sænsku þjóðkirkjunni og hef-
ur stundað framhaldsnám í trúar-
bragðasögu. Þá hefur höfundur
ferðast vítt og breitt um heiminn
einn og sem leiðsögumaður þar
sem heimsóttar hafa verið höfuð-
stöðvar og söguslóðir trúarheima.
Bókin er prýdd fjölda ljósmynda
sem höfundur hefur tekið á ferðum
sínum,“ segir í tilkynningu frá Sæ-
mundi.
mm
Kvöldverður í fjöruborðin
Saga
guðanna
eftir Þórhall
Heimisson.
Saga guðanna eftir
Þórhall Heimisson
Í Þingspilinu hafa
þátttakendur þing-
menn í vasanum