Skessuhorn - 19.08.2020, Qupperneq 22
MIÐVIKUDAGUR 19. áGúSt 202022
Af hverju að spila golf?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Hamarsvelli í Borgarnesi)
Bergsveinn Símonarson
„Það er svo gaman, uppbyggj-
andi og góður félagsskapur.“
Jenny Johansen
„Hreyfing, útivera og félags-
skapur.“
Bergur Bakari
„Golf hefur allt. Góð fjölskyldu-
íþrótt og lengir lífið.“
Sigríður Björk Guðmundsdóttir
„Af því það er svo skemmti-
legt.“
Ásgeir Bjarnason
„Það er svo rosalega gaman.“
Golfklúbburinn Vestarr í Grund-
arfirði var stofnaður 27. júlí árið
1995 og fagnaði því 25 ára afmæli
á dögunum. Sunnudaginn 16. ágúst
var 25 ára afmælismót golfklúbbs-
ins haldið í blíðskaparveðri á Bárar-
velli. Keppendur á golfmótinu voru
svo ekki sviknir með veitingar en
glæsilegt kaffihlaðborð var á boð-
stólnum. Mótið þótti heppnast vel
og fóru keppendur og mótshaldarar
sælir heim að móti loknu. tfk
Þriðja og síðasta viðureign eldri
borgara á Akranesi og Borgarbyggð
í sumarpúttinu fór fram að Hamri í
Borgarnesi þriðjudaginn 11. ágúst.
Fyrr í sumar var keppnin haldin á
Akranesi og í Nesi í Reykholtsdal.
Veður var milt og kyrrt en örlít-
ið úðarigning síðastliðinn þriðju-
dag. Olli það erfiðleikum fyrir rit-
ara og voru sum skorblöðin nær
óskiljanleg er komið var með þau í
hús. En einn hugmyndaríkur leysti
málið. Stakk blaðinu inn í örbygju-
ofn og sú tilraun tókst fullkomlega.
Flemming Jessen og ásgeir Samú-
elsson lögðu skemmtilegan völl.
Þátttakan var að þessu sinni minni
en í lokakeppni undanfarinna ára.
Mótið var fyrr en venjulega vegna
fyrirhugaðs Íslandsmóts eldri borg-
ara í pútti sem fram fer á Ísafirði 21.
ágúst, en því var frestað um ár.
Í einstaklingskeppninni stóð
Magnús E. Magnússon uppi sem
sigurvegari. Lék hann samtals á 194
höggum og bætti fyrra met Guðrú-
nar Birnu Haraldsdóttur frá 2018
og Eddu Elíasdóttur frá 2019 um
11 högg. Nokkrir voru einnig undir
gamla metinu. ásgeir Samúelsson
og ásdís B. Geirdal léku á 202 hög-
gum og Halldór Fr. Jónsson á 203
höggum. Að þessu sinni lék lið Bor-
garbyggðar á 443 höggum og því
samtals á 1375 höggum á mótinu
og bættu fyrri árangur sinn frá 2018
um 63 högg. Lið Akranesinga lék á
476 höggum eða samtals á 1446
höggum sem er aðeins tveimur
höggum frá besta árangri liðsins.
Högglægstu púttarar heimaman-
na; Þorbergur Lind Egilsson og
Katrín R. Björnsdóttir tóku á móti
bikarnum fyrir hönd Borgarbyg-
gðar, sem hefur nú unnið keppni-
na fjögur ár í röð. Jón Guðjónsson
hlaut viðurkenningu fyrir þátttöku-
na. Er hann elsti púttarinn í þessari
keppni frá upphafi, 94 ára gamall.
á næsta ári hefst keppni liðanna í
Nesi í Reykholtsdal.
ii
Knattspyrnufélag ÍA hefur samið
við Guðmund tyrfingsson um að
leika með liðinu næstu tvö árin, eða
út keppnistímabilið 2022. Guð-
mundur er fæddur árið 2003 og
uppalinn hjá liði Selfyssinga. Hann
þykir efnilegur leikmaður, á að baki
32 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss
í deild og bikar og hefur skorað í
þeim átta mörk. Hann á að baki sex
landsleiki fyrir U16 ára landslið Ís-
lands, níu fyrir U17 ára liðið og tvo
fyrir U18 ára landsliðið.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf-
ari ÍA, fagnar komu Guðmundar til
liðsins. „Guðmundur er ungur og
efnilegur leikmaður sem passar vel
inn í okkar uppbyggingu. Hann er
líka með mikinn metnað til að ná
langt í fótbolta og það er það sem
við leitum að í leikmönnum hérna á
Skaganum, svo hann á bara eftir að
vaxa og dafna og gera frábæra hluti
í framtíðinni. Hann á framtíðina
fyrir sér,“ segir Jóhannes Karl.
kgk
Skallagrímsmenn skildu jafnir í leik
gegn Hafnarfjarðarlinu Ká þegar
þau mættust í sínum fyrsta leik í C-
riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu
á mánudagskvöld, eftir hlé á Íslands-
mótinu vegna kórónuveirunnar. Þeg-
ar var búið að fresta tveimur umferð-
um og verða dagsetningar fyrir þær
viðureignir ákveðnar síðar. Var því
farið beint í 11. umferð mótsins þar
sem einmitt Skallagrímur og Ká átt-
ust við. Spilað var á Skallagrímsvelli í
Borgarnesi í einmuna veðurblíðu.
Gestirnir komu mun sterkari til
leiks og voru alltaf skrefinu á undan
heimamönnum. Fyrsta mark kom frá
Ká þegar Marteinn Víðir Sigþórs-
son skilaði boltanum í netið. Stund-
arfjórðungi síðar urðu einhverjar
stimpingar í teig Skallagríms með
þeim afleiðingum að gestirnir upp-
skáru víti. Gísli Þröstur Kristjáns-
son fór á punktinn fyrir sína menn
og tvöfaldaði forystu gestanna fyrir
leikhlé.
Eitthvað hefur hálfleiksræðan
kveikt undir leikmönnum Skalla-
gríms því þeir félagar komu mun
beittari inn í seinni hlutann. Magnús
Helgi Sigurðsson minnkaði muninn
í eitt mark á 74. mínútu og þegar rétt
rúmar tíu mínútur lifðu af leik, bætti
Viktor Már Jónasson við jöfnunar-
markinu og lokastaðan því 2-2.
Þetta er þriðja jafntefli Skallagríms-
manna í röð en liðið er nú í þriðja sæti
riðilsins með 15 stig. Ká er í sætinu
fyrir ofan með 18 stig en á toppnum
eru Hamarsmenn með 21 stig.
Næsti leikur Borgnesinga verð-
ur gegn Berserkjum á Víkingsvelli í
Reykjavík. Leikurinn fer fram næsta
þriðjudag og hefst kl. 19:00.
glh
Mótanefnd Körfuknattleikssam-
bands Íslands hefur ákveðið að af-
lýsa keppni í deildarbikarnum í
körfuknattleik, sem átti að hefjast í
fyrsta sinn 23. ágúst næstkomandi.
Þeim möguleika hefur verið velt
upp að æfingar og keppni í liðsí-
þróttum fullorðinna geti hafist að
nýju, að uppfylltum ströngum skil-
yrðum. Í tilkynningu á vef KKÍ
kemur fram að talsverð vinna hafi
verið lögð í að skoða hvaða skil-
yrði þyrftu að gilda um opinbera
keppni innanhúss miðað við nú-
verandi aðstæður. Líklegt megi
telja að þær ráðstafanir sem grípa
þyrfti til myndu reynast flestum
félögum íþyngjandi.
Mótanefnd taldi ekki ástæðu
til að leggja þær kvaðir á félögin
í undirbúningsmóti fyrir keppnis-
tímabilið, þar sem því hefði fylgt
töluvert álag á sjálfboðaliða. Þó
mörgum spurningum sé enn ósvar-
að verður unnið að því að undirbúa
mögulegt regluverk sambandsins
komi til þess að hefja þurfi keppni
í Íslandsmótinu í körfuknattleik
við sambærislegar takmarkanir
og nú eru í gildi. áhersla verður
lögð á að móta reglur sem þurfa
að gilda um körfuknattleiksæfing-
ar innanhúss, svo lið geti hafið æf-
ingar sem fyrst. Verða þær ráðstaf-
anir kynntar um leið og þær eru
tilbúnar.
kgk
Guðmundur Tyrfingsson og Jóhannes
Karl Guðjónsson, þjálfari karlaliðs ÍA.
Ljósm. KFÍA.
Guðmundur
til ÍA
Viktor Már Jónasson er hér í baráttunni. Hann skoraði jöfnunarmarkið fyrir
Skallagrím.
Jafntefli hjá Skallagrímsmönnum
Nýjum deildarbikar í körfunni frestað
Frá leik Skallagríms og Snæfells í 1. deild karla síðastliðinn vetur. Ljósm. úr safni/ glh.
25 ára afmælis-
mót Vestarr
Á fyrsta keppnisdegi púttmótsins í
sumar var spilað á Akranesi í einmuna
veðurblíðu. Ljósm. mm.
Borgarbyggð vann púttkeppnina á nýju mótsmeti
Frá vinstri Þorbergur Lind Egilsson, Magnús E. Magnússon, Jón Guðjónsson og
Katrín R. Björnsdóttir. Ljósm. Baldur Magnússon.