Mosfellingur - 27.08.2020, Blaðsíða 2
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 17. september
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.500 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Við erum að lifa ótrúlega tíma. Að takast á við kórónuveiruna
er líklega stærsta einstaka verkefni
sem íslensk þjóð hefur þurft að takast
á við í lengri tíma. Óvissan
fylgir okkur og erfitt er
til þess að hugsa að
heimsbyggðin þurfi
að lifa með veirunni,
jafnvel árum saman. Ég
held þó að við eigum
eftir að læra margt á
þessum tímum og
ekki síst að meta
það sem við
höfum.
Bæjarhátíðinni sem fram átti að fara um helgina hefur verið
frestað. Það er auðvitað hundfúlt en
kannski léttvægt í stóra samhenginu.
Hér í Mosfellsbæ hafa smit greinst
á hjúkrunarheimilinu Hömrum og
leikskólanum Huldubergi í þessari
bylgju sem nú er í gangi. Það eru því
margir Mosfellingar sem nú þurfa að
aðlagast breyttum aðstæðum.
Förum varlega en töpum þó ekki gleðinni. Það er nauðsynlegt að
hlúa að sér og sínum vitandi það
að bráðum kemur betri tíð. Nú er
ég farinn að hljóma eins og einhver
spekingur. Góðar stundir.
Bráðum kemur betri tíð
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
- Fréttir úr bæjarlífinu62
Héðan og þaðan
Úr Mosfe l lspóst inum 9 . desember 1982
Búnaðarbankinn fluttur
í nýja, fína húsið sitt
Búnaðarbankinn er nú fluttur í nýja banka-
húsið, sem risið er við Þverholt. Hefur
þarna orðið gjörbyltig í húsnæðismálum
bankans, sem áður var í litlu húsi við Mark-
holtið. Afgreiðsla bankans á jarðhæðinni
hefur nú til umráða 265 fermetra húsnæði.
Á efri hæðinni eru viðtalsherbergi banka-
stjórans, biðstofa, kaffistofa starfsfólks og
tölvuherbergi. Í ráði er að Brunabótafé-
lagið fái aðstöðu á efri hæð hins glæsilega
bankahúss.
„Við unnum af kappi að því að geta flutt
á föstudegi. Starfsfólkið vann frameftir
nóttu og í gærkvöldi við flutninginn,“ sagði
Dóra Ingvarsdóttir, fulltrúi útibússstjórans
Moritz Sigurðssonar í samtali við Mosfells-
póstinn fyrsta morguninn í nýja húsnæð-
inu. „Það heitir að föstudagur sé til fjár,
- hjátrúin er alltaf rík í okkur Íslendingum“
segir Dóra.
Starfsmenn Búnaðarbankans eru þrettán
talsins í ellefu stöðugildum, en fjórir vinna
hálfsdagsvinnu.
Fyrsta afgreiðsludag bankans í nýja
húsnæðinu var mikill straumur af við-
skiptavinum sem komu til þess að óska
forráðamönnum og starfsfólki til hamingju
með þessa nýju og glæstu byggingu og
þiggja veglegar veitingar.
Útibússtjóri Búnaðarbankans í Mosfells-
sveit er Moritz Sigurðsson. Var hann áður
útibússtjóri í Hótel Esju í Reykjavík. Tók
Moritz við starfi af Páli Briem sem verið
hafið útibússtjóri síðan bankinn opnaði hér
árið 1972.