Mosfellingur - 27.08.2020, Blaðsíða 8

Mosfellingur - 27.08.2020, Blaðsíða 8
Ingólfur Hrólfsson formaður s. 855 2085 ihhj@simnet.is Úlfhildur Geirsdóttir varaformaður s. 896 5700 bruarholl@simnet.is Margrét Ólafsdóttir gjaldkeri s. 863 3359 margretjako@gmail.com Snjólaug Sigurðardóttir ritari s. 897 4734 snjolaugsig@simnet.is Kristbjörg Steingrímsdóttir meðstjórnandi s. 898 3947 krist2910@gmail.is Jóhanna B. Magnúsdóttir 1. varamaður s. 899 0378 hanna@smart.is Bragi Bergmann Steingrímsson 2. varamaður bbergman@hive.is StJÓrn FaMoS Eldri borgarar • þjónustumiðstöðin eirhömrum • fram undan í starfinu - Fréttir úr bæjarlífinu8 Skrifstofa félagsstarfsins er opin alla virka daga kl. 13–16. Sími félags- starfsins er 586-8014. Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara í Mosfellsbæ er Elva Björg Pálsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, s: 698-0090. Skrifstofa FaMos á Eirhömrum er opin alla fimmtudaga frá kl. 15–16. FélaG aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni famos@famos.is www.famos.is Nýtt frístundatímabil - 5 ára bætast við Frístundatímabilið 2020-2021 er hafið og nýr aldurshópur bætist við. 5 ára börn sem eru á síðasta ári í leikskóla fá 26 þúsund til niðurgreiðslu á sinni frístund. Börn fædd á árunum 2003 til 2015 eiga rétt á frístundaávísun á frístunda- tímabilinu 15. ágúst 2020 til 31. maí 2021. Það er að segja börn sem eru á síðasta ári í leikskóla til og með ungmenni á öðru ári í framhalds- skóla. Sé barn orðið 18 ára sækir það sjálft um í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Aðeins börn með lögheimili í Mosfellsbæ fá valmögu- leika um að nýta frístundaávísun. Upphæð frístundaávísunar: Frístundaávísun 2020-2021 er 26.000 kr. fyrir 5 ára, 52.000 kr. (var 50.000) fyrir 6-18 ára en hækkar fyrir þriðja barn (6-18 ára) upp í 60.000 kr., einnig fyrir fjórða og fimmta barn o.s.frv. Þetta á við um fjölskyldur sem skráðar eru með sama lögheimili og fjölskyldunúmer hjá foreldri. leIKFIMI Í World Class byrjar 15. september. Byrjendahópur er kenndur mánudaga og miðvikudaga kl 9:30-10:30. Fyrsti tíminn verður þriðjudaginn 15. september. Byrj- endahópurinn er eingöngu fyrir fólk 67 ára og eldra sem er með lögheimili í Mos- fellsbæ. Kennslan fer fram í formi alhliða leikfimi og styrktaræfinga í leikfimisal auk æfinga í tækja- sal. Verkefnið er liður Mosfellsbæjar í heilsueflandi samfé- lagi fyrir alla aldurshópa. Framhaldshópar verða þrír í vetur, kenndir á þriðjudögum og fimmtudögum. Hægt er að velja um hóp 1 tími 9-10, hóp 2 tími 10-11 eða hóp 3 tími 11-12. Lágmarks- og hámarksþát- taka er í hvern hóp og farið er eftir öllum sóttvarnarreglum og takmörkunum sem eru í gildi hverju sinni. Framhaldshóparnir eru ætlaðir þeim sem eru vanir leikfimi og eru þeir opnir og óháðir búsetu ( þ.e.a.s ekki þarf að hafa lögheimili í Mosfellsbæ til að mæta í þessa hópa). Þátttakendur í námskeiðinu hafa fullan aðgang að World Class og Lágafellslaug á öðrum tímum dags meðan á námskeið- inu stendur. Kennarar verða þær Halla Karen og Berta. Opnað verður fyrir skráningu 25. ágúst. Allar nánari upplýsingar og skráning í World Class Lágafellslaug sími 566-7888. Heilsukveðja, Halla Karen og Berta. danS, danS, danS:) Dansinn hjá Auði Hörpu byrjar miðviku- daginn 2. sept. kl 14:15 og verður kennd- ur í íþróttahúsinu Varmá. Þar er auðvelt að halda öllum settum sóttvarnar- reglum og takmörkunun- um. Dansinn hentar jafnt körlum sem konum:) Hlökkum til að sjá ykkur. Skrán- ing fer fram hjá félagsstarfinu í síma 586- 8014 eða 698-0090 eða á elvab@mos.is. Mörg námskeið vetrarins eru enn í vinnslu og ekki útséð með hvernig þeim verður háttað, það er erfitt með þessum takmörkunum sem okkur eru settar. Fríða mun byrja með leir- og glernámskeið á mánudögum og fimmtudögum. Byrjar14. sept. Eins mun nýtt málunarnámskeiðið hjá Hannesi hefjast um miðjan október. Bókbandið fer einnig af stað 15. sept. Öll auglýst námskeið eru í dag háð þeim skilyrðum að þátttakendur og leiðbeinandi verða að vera með grímu þar sem 2 metra reglan er enn í gildi og þar sem ekki er hægt að verða við henni þá er grímuskylda. Spil og það sem kallar á sameiginlega snertifleti verður að bíða um stund en vonandi fer allt starfið í rétt horf sem fyrst og nauðsynlegt að fylgjast með því hlutirnir geta breyst hratt á þessum fordæmalausu tímum. Tréútskurður byrjar eftir áramót. Skráning er hafin á þessi námskeið í síma 586-8014 eða 698-0090 eða á elvab@mos.is. FreStað Áður auglýstum síðsumarsfagnaði þriðjudaginn 8 sept. í Harðarbóli hefur verið frestað eitthvað fram á haustið vegna Covid-19. Nánar auglýst síðar. VatnSleIKFIMI Haust 2020 Lágafellslaug Fyrsti tími í vatns- leikfimi haustið 2020 er 16. sept- ember. En vegna breyttra aðstæðna verður vatnsleikfim- inni háttað þannig að 20 manns komast á hvert námskeið og geta valið sér einn dag/hóp. Nokkrir dagar/hópar verða í boði og verður send auglýsing til allra félaga FaMos. Einnig munu koma fleiri fréttir um ringó, boccia, línudans, gönguhópa og margt fleira. Fylgist því vel með:) atHUGIð Nýjar demantamyndir eru komnar til okkar í félagsstarfið, komið og kíkið á okkur kl. 13:00-16:00 á Eirhömrum. www.kronan.is Krónan Mosfellsbæ – Opið alla daga 9-20 Við höfum áhuga á að taka þátt í uppbyggingu í samfélaginu og auglýsum eftir styrktarumsóknum. Hvað getum við gert saman? Árlega veitir Krónan styrki til verkefna í nærumhverfi verslanna Krónunnar. Um er að ræða samfélagsstyrki sem styðja samfélagið t.d. á sviði íþrótta/hreyfingar, menningar og lista eða menntunar. Ert þú með hugmynd? Mosfellsbær! Megum við vera memm? Krónan í Mosfellsbæ auglýsir eftir styrktarumsóknum Hæ Ofureinfalt ferli: Sækja þarf um styrk - rafrænt* Kronan.is/styrktarumsokn Öllum umsóknum verður svarað og tilkynnt verður hvaða verkefni fær styrk í ár. Umsóknarfrestur er til . ágúst 2020 *Styrktarumsóknum verður einungis svarað í gegnum heimasíðu Í júní opnaði í Álafosskvosinni ilmsýn- ingin Ilmbanki íslenskra jurta og lítil búð sem selur ýmsar vörur sem unnar eru úr íslenskum jurtum. Það eru þær Elín Hrund Þorgeirsdóttir og Sonja Bent sem standa að baki sýningunni en þær hafa unnið saman síðastliðin þrjú ár og reka saman fyrirtækið Nordic angan. „Við höfum verið að vinna að rann- sóknarverkefni á ilmum í íslenskri náttúru síðastliðin tvö ár og er sýningin afrakstur þeirrar vinnu. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur og er komin til að vera áfram,“ segir Elín. Sýningin er opin allar helgar, aðgangseyrir er 1.200 kr. en frítt fyrir 16 ára og yngri. Frábært að vera í Kvosinni „Við erum rosalega ánægðar með að vera hér Álafosskvosinni en hér erum við bæði með sýninguna og vinnustofuna okkar. Við vinnum með íslenskar jurtir, eimum úr þeim ilmkjarnaolíur og hönnum ilmtengd- ar vörur. Svo umhverfið hérna smellpassar við okkar starfsemi. Það er búið að vera mjög áhugavert að vinna að þessari rannsókn því það er sterk hefð fyrir því á Íslandi að nota jurtirnar okkar á ýmsan hátt en engin hefð fyrir því að eima úr þeim ilmkjarnaolíur. Við höfum unnið að því að rannsaka hvaða jurtir er hægt að eima og hvaða virkni er í olíunum. En svo fórum við líka að vinna með þær jurtir sem ekki var hægt að eima og reyna að ná ilmi út þeim líka.“ leikið með lyktarskynið Sýningin er fallega uppsett en þar getur fólk lyktað af ýmsum íslenskum jurtum og trjám á skemmtilegan og aðgengilegan hátt. Einnig er svokölluð ilmsturta sem þær stöllur hönnuðu og kynntu á Hönnun- armars í fyrra en um er að ræða tæki sem gefur frá sér kalda þurrgufu með íslenskum ilmkjarnaolíum. „Við erum rosalega ánægðar með útkom- una og viðbrögð, það er greinilegt að þessi nýjung með ilmupplifum og jafnvel tengsl á milli lyktar, tilfinninga og minninga er eitthvað sem fólki finnst áhugavert. Það er alltaf að aukast að við séum að taka á móti hópum s.s. vinkonuhópum, saumaklúbbum, vinnustöðum og öðrum hópum. Við getum boðið upp á leiðsögn um sýninguna og jafnvel léttar veitingar. Best er að hafa bara samband við okkur til að bóka heimsókn fyrir hópa,“ segir Elín að lokum og býður alla Mosfellinga sérstaklega velkomna. Nordic angan með ilmupplifun í Álafosskvos • Eima ilmolíukjarna • Rannsóknarverkefni opna ilmbanka íslenskra jurta sonja og elín reka saman fyrirtækið áhugaverð sýning í álafosskvos

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.