Mosfellingur - 27.08.2020, Blaðsíða 20

Mosfellingur - 27.08.2020, Blaðsíða 20
 - Mosfellingurinn Svala Árnadóttir20 Myndir: Ruth Örnólfsdóttir og úr einkasafni. Svala Árnadóttir er kraftmikil kona sem vill leggja sín lóð á vogaskál-arnar til að koma hlutum í fram- kvæmd. Hún hefur verið virk í margs konar félagsstarfi í gegnum tíðina sem hún segist hafa haft mikla unun af og er hvergi hætt þótt komin sé á besta aldur. Í dag sækir hún fundi hjá Rótarýklúbbi Mosfellsbæjar, situr í öldungaráði bæj- arins og svo hefur hún mikinn áhuga á að stofnað verði hollvinafélag fyrir hjúkrunarheimilið Hamra. Á milli funda nýtur Svala lífsins með börnum sínum og barnabörnum. Svala er fædd í Hveragerði 5. janúar 1945. Foreldrar hennar eru þau Sigríður Guð- mundsdóttir húsfreyja og Árni Sigfússon bóndi og garðyrkjubóndi. Svala á tvö syst- kini, Karólínu f. 1947 og Sigfús Ægi f. 1954. Náði gamla tímanum í sveitinni „Ég ólst upp á bæ rétt hjá Laugarvatni sem heitir Böðmóðsstaðir. Ég náði gamla tímanum í sveitinni en foreldrar mínir hófu búskap út frá búi afa míns og ömmu. Í eldhúsinu var kolaeldavél sem hélt hita í eldhúsinu og það var ekkert heitt vatn svo það þurfti því að þvo þvottinn niður við ána. Engin voru salernin, bara útikamrar og það þurfti að ganga nokkra kílómetra til að komast í símasamband. Rafmagnið kom ekki fyrr en ég var 16 ára. Pabbi byggði svo nýtt hús og allt varð nýtískulegra. Okkur leið vel þarna og oft var glatt á hjalla enda þekktum við ekkert annað.“ Léku leikrit fyrir sveitungana „Ég var heppin að skólastjórinn í barna- skólanum mínum hafði mikinn áhuga á að láta okkur sveitakrakkana læra góða framsögn. Við fengum að leika leikrit einu sinni á vetri fyrir fólkið í sveitinni sem var gaman. Ég get ekki gleymt að þegar ég var 8 ára skotta þá var ég látin lesa kvæði fyrir fullu húsi af gestum. Eins minnist ég líka ömmu minnar sem var best af öllum, hún fór með okkur krakkaskarann í langan göngutúr að steini sem heitir Grá- steinn til að segja okkur sögu.“ Skellti sér í síldina á Raufarhöfn „Ég gekk í gagnfræðaskólann á Laugar- vatni og lauk prófi þaðan 1962. Þar eignað- ist ég góða vini sem ég hef haldið sambandi við alla tíð. Eftir útskrift skellti ég mér í síldina á Raufarhöfn, þar hitti ég flottan mann á balli í lopapeysu með brennivínsflösku í beltis- strengnum. Mér fannst hann meiriháttar sætur og satt best að segja ákvað ég í fyrsta dansi að þessum manni ætlaði ég að giftast, án þess að hann vissi að sjálfsögðu,“ segir Svala og brosir. „Honum var ég svo gift í nærri 50 ár.“ Eftir ævintýrið á Raufarhöfn fór Svala að vinna í farþegaafgreiðslunni á Umferðar- miðstöðinni og í 11 ár vann hún sem ritari hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Þaðan lá leiðin í TBR og svo á þrjár lögmannastof- ur. Hún sinnti aðalbókarastarfi hjá Lækna- félagi Íslands og endaði starfsferil sinn hjá Kvennaskólanum í Reykjavík. Hestarnir átu fyrstu blómin Svala giftist Vigfúsi Aðal- steinssyni viðskiptafræðingi 1967 en hann lést árið 2017. Hann starfaði hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur en setti síðan á fót sína eigin bókhaldsstofu, Reikniver. Svala og Vigfús eignuðust tvö börn, Árna Gunnar f. 1967 og Aðalheiði f. 1973. Barnabörnin eru fjögur, Daníel Freyr, Almar Nökkvi, Embla Soffía og Svala. „Við byrjuðum okkar búskap í Reykjavík en fluttum síðan í Mosfellssveitina árið 1974 og mér leist nú ekkert of vel á það í byrjun. Mér fannst eins og við værum að flytja á hjara veraldar,“ segir Svala og hlær. „Vegurinn frá Reykjavík var malarvegur og engin ljós á leiðinni. Garðurinn okkar var malarbingur með engu grasi og hestar átu fyrstu blómin mín. Nágrannarnir tóku vel á móti okkur og við fundum fljótt að þetta var úrvalsfólk. Við kunnum strax að meta hvað krakkarnir okkar höfðu mikið frjálsræði og stutt var í alla íþróttaiðkun.“ Eljan skilaði sér alla leið „Við Fúsi fórum fljótlega að starfa með Aftureldingu því sonur okkar var bæði í handbolta og fótbolta. Ég tók að mér að vera gjaldkeri handboltans í eitt ár og satt best að segja var þetta ár erfiðasta árið í lífi mínu vinnulega séð, það var svo mikið að gera. Deildin var rekin eins og lítið fyrirtæki og ekkert var gefið eftir. Eljan skilaði sér alla leið og farið var með unglingana á Partille Cup í Svíþjóð um vorið.” Er afar stolt af þessari framkvæmd „Eftir störfin hjá Aftureldingu tók við langt tímabil hjá okkur báðum í Sjálfstæðis- flokknum. Við fundum út að þar áttum við heima, fólkið var hresst og skemmtilegt. Eftir nokkurn tíma var komið að því að kjósa nýjan formann í félaginu, ég bauð mig fram og var kosin, fyrsta kon- an til að gegna því embætti. Ég ákvað að félagið yrði að eignast sitt eigið húsnæði en það var ekki mikið til í kassanum. Það var því ákveðið að leggja af stað með fjáraflanir og allir lögðust á eitt. Á endanum keyptum við svo húsnæði og var það vígt með mikilli viðhöfn og var formaður flokksins viðstaddur. Ég er afar stolt af þessari framkvæmd,“ segir Svala og brosir. „Við hjónin tókum þátt í mörgum nefnd- um hjá félaginu en nú er þetta farið að róast aðeins hjá mér og það er bara ágætt.“ Mér finnst gott að knúsa „Við hjónin vorum dugleg að ferðast bæði hér heima og erlendis og við veiddum líka í mörgum vötnum og ám. Ég er algjört félagsmálafrík og Fúsi minn var það líka, við vorum dugleg að sinna félagsmálunum og ég er enn að stússast í þessu,“ segir Svala og hlær. „Ég hef oft komið dauðþreytt heim úr vinnunni en þurft að fara á fund um kvöldið. Þegar heim er komið er ég yfirleitt full af orku, ég fæ svo mikið út úr félagsskap við annað fólk og mér finnst gott að knúsa. Ég sæki núna fundi hjá Rótarýklúbbi Mosfellsbæjar og finnst það frábær félags- skapur. Ég sit líka í öldungaráði Mosfellsbæjar og ég var gjaldkeri FaMos í 4 ár. Ég hef líka mikinn áhuga á að það verði stofnað holl- vinafélag hjúkrunarheimilisins Hamra. Eft- ir því sem aldurinn færist yfir hef ég sífellt meiri áhuga á eldra fólkinu.“ Vil eyða ævikvöldinu hér „Bærinn okkar hefur vaxið úr sveita- mennskunni og í dag búa hér yfir 12.300 manns. Fólki líður vel hér í nálægð við náttúruna, hér er bæði skjólgott og fallegt en samt svolítið sveitó. Íþróttaaðstaðan er frábær, bæði fyrir unga sem aldna og félagslífið blómlegt. Ég vil hvergi búa nema í Mosfellsbæ og ég vona sannarlega að ég geti eytt ævikvöldinu hér og fái svo að hvíla í Mosfellskirkjugarði, sátt við mitt líf.“ Mér fannst eins og við værum að flytja á hjara veraldar. Garðurinn okkar var malarbingur með engu grasi og hestar átu fyrstu blómin mín. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is HIN HLIÐIN Besti helgarmaturinn? Lambalæri á franska vísu, auðvelt að elda og alltaf gott. Hvaða bók lastu síðast? 60 kíló af sólskini, er með Storytel í símanum og Hallgrímur Helgason las hana fyrir mig, meiriháttar bók. Fallegasti staður á Íslandi? Litli hellirinn á Hellnum. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Sonur minn gaf mér miða á brekkusönginn í Vestmannaeyjum í sum- ar. Mig hefur alltaf langað til að komast til Eyja á sunnudeginum og syngja með. Það varð ekki úr því í ár svo það verður líklega farið að ári. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Þar sem ég er mikil félagsvera þá finnst mér skemmtilegast að vera í góðra vina hópi. Uppáhaldsverslun? Ég er blómakerling og því mundi ég segja Blómaval. Hvað myndi ævisaga þín heita? Lífið er ekki alltaf skyr og rjómi. Hvaða litur lýsir þér best? Ég er blá í gegn. Fjölskyldan árið 1974, Svala, Aðalheiður, Árni Gunnar og Vigfús. Ég er algjört félagsmálafrík Svala Árnadóttir bókari hefur verið virk í margs konar félagsstarfi í gegnum tíðina hjónin vigfús og svala á tenerife svala og þorsteinn skála í vígslu almar nökkvi, svala og embla soffía svala og daníel freyr

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.